mánudagur, desember 27

Hef það of gott í kotinu í Grindó. Veðrið úti hvetur mig til þess að fara ekki úr náttfötunum né rúminu. Djammaði ekkert í gær og þakka fyrir það á þessari stundu að vera laus við slappleika og timburmenn. Mikið búin að horfa á sjónvarpið og video og er efni meðal annars þetta:

How to loose a guy in 10 days (ótrúlega skemmtileg) *** Horfði á hana í 3ja skiptið
Blindsker - bjóst við meiru í þessari mynd **
Pay it forward (grát grát) *** annað skiptið
A walk to remamber (grát grát) **
Christmas vacation (fyndnast í heimi) **** 20 skiptið, must að horfa á jólunum
Wall Street *
Kill Bill 2 ****
Reserviour Dogs ** (spes)
Ken Park (sjokk sjokk) *

Ætla að vindast upp í rúm aftur með lúku af konfekti og taka enn eina Tarentino myndina.......Pulp Fiction


föstudagur, desember 24

Mínar bestu óskir til ykkar allra um

Gleðileg jól
og
farsælt komandi ár
Þakka ykkur sem ég hef notið samveru með á árinu kærlega þær stundir og vona svo sannarlega að jólin og áramótin verði ykkur öllum ánægjuleg
Guð blessi ykkur börnin mín
Þess óskar
Kristín María

miðvikudagur, desember 22

Grindjánaborgin rokkar:

Spennufall mikið í gær þegar ég gekk út úr Aðalbyggingu Háskóla Íslands eftir að hafa lokið við síðasta prófið á 1 og 1/2 klst. Tjattaði við Hilla a.k.a Mr Thule sem var búin með prófið rétt á undan mér. Gaman að segja frá því að við sátum hlið við hlið í prófinu. Eitthvað sem gerist aldrei í Háskólanum. Gamla yfirsetu kellan hefur eitthvað misreiknað sig. Guðfræðineminn sat fyrir aftan mig, hefði með réttu átt að sitja þar sem Himar sat.

Hittumst í koti Kristínar í gær, drukkum, hlustuðum á tónlist og rifumst um hvaða lag ætti að spila. Fórum svo í Sjallakofann á nesinu og tjúttuðum með Sálfræðinni og Hagfræðinni. Fólk hreinlega missti sig í drykkjunni - mikill losti og gredda ríkti á svæðinu. Fólk úti um allt slefandi upp í hvort annað. Skemmtilegt. Ég tók hins vegar "netta" salsasveiflu með Salsakónginum sjálfum............herra Conclusion........Ipod owner með meiru.

Þakka hér með stjórn Politicu fyrir skemmtilegt partý. Hefði viljað sjá meira af þeim ágætu krökkum á dansgólfinu.

Ég er hins vegar komin heim í kotið í Grindavík og ætla að slaka á. Skreyta jólatréð, sjóða skötu, hengja upp útiseríurnar, pakka inn pökkum og skrifa á jólakort fyrir familíuna :)

Later



laugardagur, desember 18

Þegar það sem maður vill síst í lífinu verður óskhyggja..............

Fór með Sigga bró í Kringluna í dag.........eða öllu heldur á Kringlusvæðið. Umferðin og traffíkin var þvílík að nett geðveiki ríkti á svæðinu. Bílar alls staðar í öllum krókum og kimum, uppi á gangstéttum og á miðjum götum. Við fórum niður............á stæðin sem eru yfirbyggð.......nýja þið vitið?? Vorum í hálftíma minnsta kosti að komast hálfan hringinn þarna niðri án þess þó að fá stæði. Allir að stopp og bíða......tékka hvort að þessi sé ekki örugglega að fara....nei nei. Afi gamli þarna gaf okkur Sigga svo falskar vonir.....var eitthvað að dútla við bílinn sinn eins og hann væri að fara og labbaði svo í burtu!! MAN!!

Keyrðum svo aðeins lengra.........tvö laus stæði!!! Jei.......fyrir fatlaða. Á þessum tíma óskuðum við þess já (en Siggi bróðir sagði það samt upphátt) !! ljótt að segja það en........

við gáfumst upp og slepptum Kringlugeðveikinni og keyrðum í burtu.

föstudagur, desember 17

DORRIT ER KONAN

Las á bloggiBryndíar þegar við fórum á Bessastaði...... henni líkaði einstaklega vel við Dorrit Moussaieff. Ég kann líka ótrúlega vel við hana. Svo vel að í nótt dreymdi ég að við værum ótrúlega góðar vinkonur og mér fannst það vera í mínum verkahring að hrósa henni og segja við hana hvað öllum fyndist hún æðisleg. Það var ótrúlegt svona "vinkonu-konexjón"

Svo vakna ég eftir Dorrit-drauminn og fer og næ í Fréttablaðið (sama rútínan hjá Kristínu) og hver blasir þá við? Nýja vinkonan Dorrit!! Svona smekkleg framan á Birtu. Þetta líf....ótrúlegt.

Langaði að deila þessu með múganum. Kannski að fleiri hafi upplifað svipað?

fimmtudagur, desember 16

Á Þorláksmessu klessti Svanurinn á steininn..........bleh!

Sá sem fattar þessa setningu fær verðlaun. P.S. fólkið sem er með mér í fræðinni mun eiginlega bara koma til með að fatta.

Þetta lýsir því hvað ég er orðin súr á þessum endalausa lestri. Búin að rústa bakinu á þessum vonlausa eldhússtól sem ég sit alltaf á!! Fór of lamdi hel***** tu***** á efri hæðinni sem bara getur ekki hætt að færa til húsgögn á næturna!! Hvað er að þessu djö*******s pakki??

Var ég búin að minnast á það hvað ég hef gaman af lífinu þessar stundirnar?? Nei hélt ekki. Þá ætlaði ég nebbla að leiðrétta þann misskilning :)

ha? ég á túr?

da sidste próf er 21.desember. Þá verður skemmtilegra.

Good luck ya all!

mánudagur, desember 13

Búum til betri heim.......

Veit ekki hvort það séu margir þarna úti sem höfðu það að markmiði þegar þeir voru 5 ára að bjarga Afríku frá hungursneyð. Ég ætlaði a.m.k að gera það. Stefni ennþá að því einvern daginn.

Svo ánægð með RÁS 2, næstum eina útvarpsstöðin sem spilar frábæra lagið sem kom út´1985, "Sameinumst hjálpum þeim". Lagið var spilað of oft í mínu koti (ég var dj-inn þar á bæ) að nálin brann yfir hvað eftir annað.

En án þess að ætla að fara að vera væmin þá finnst mér þetta svo magnað lag. Fæ alltaf gæsabólur í hvert sinn sem það heyrist. Finnst það líka í góðu lagi að á tímum sem þessum þá reynum við að sýna samkennd. Fyllum baukinn góða og þökkum fyrir það að vera hluti af einni ríkustu þjóð heims............(eins og segir í laginu: Gleymd´ekki þínum minnsta bróður, þó höf og álfur skilji að......)

.....en því miður er fólk á klakanum sem á hvergi höfði sínu að halla. Það er einmitt aftur á þessum tímum sem við eigum að taka kaupmanninn í Gravarvoginum okkur til fyrirmyndar. Hann ætlar að vera með verslun sína opna og elda fyrir þá sem eiga í engin hús að vernda á jólunum. Ekki það að við eigum að kaupa verslun og hafa hana opna.........bara eitthvað annað sem kannski gleður lítil og stór hjörtu.

Nú ef að einhver sem les þetta er í sömu vandræðum þá má hann alveg koma heim til mín og fá sér að snæða............ef hann borðar reykt svínakjört :)


föstudagur, desember 10

TV-ið

Ég horfi á sjónvarpið þegar ég á síst að vera að því. Horfði á endursýningu á Piparjónkunni í gærkveldi og greip hvað eftir annað fyrir andlitið vegna þess að ég skammaðist mín svo fyrir hennar hönd. Hver gefur BLEIKA INNISKÓ á fyrsta stefnumótinu

Prentun stendur yfir í Odda á BNA glósum........og ég blogga á meðan ég bíð. Ég er alveg að komast á lagið með að nýta tímann minn............í óþarflegustu hluti greinilega!!

þriðjudagur, desember 7

Do they know it´s terrible??

Fyrir þá sem ekki vissu þá hefur lagið "Do they know it´s christmas?" verið mitt uppáhalds jólalag í gegnum tíðina, enda ég jólabarn með meiru. Í ár eru 20 ár síðan það lag kom út sem aðallag styrktartónleika sem bæði voru haldnir í BNA og Bretlandi á sínum tíma. BAND-AID kölluðu þeir sig og í fremstu víglínu þá voru Bono í U2 og Bob Geldof. Það er svolítið síðan ég heyrði að það ætti að gera afmælisútgáfu . Nú er sú útgáfa komin í spilun og Guð minn góður!! Ég gæti grátið þegar ég hlusta á þessa ógeðsútgáfu enda tekst þeim ekkert annað en að eyðileggja lagið!

Skil ekkert í Bono að hafa sætt sig við að vera með í því að rústa laginu....en auðvitað er þetta gert með góðgerðarvilja í huga og allir vilja gefa sitt í þetta. Lagið er samt ljótt.

......að lokum þá ætla ég að koma með smá fróðleiksmola, farið að finnast það svo ótrúlega skemmtilegt: Eftir styrktartónleika BAND-AID árið 1984 þá samsvaraði upphæðin sem safnað var bæði í BNA og Bretlandi upphæð sem nægði til þess að greiða niður skuldir Eþíópíu í einn dag, svo skuldugt var landið. En auðvitað voru peningarnir notaðir í annað, eins og að fæða og klæða fólkið þar á bæ.

P.S: Munið svo eftir rauða bauknum og gíróseðlinum fyrir aumingjans börnin í Afríku. Sleppið svona eins og einni bjórkippu og þá er það komið :)

gleðilegan próflestur!

laugardagur, desember 4

Lærdómsgeðveiki hf.

Ég er búin að sitja hérna í allan dag á ómögurlegasta stól heims lesandi svo magnaða bók um bandarísk stjórnmál. Vaknaði upp úr hádegi vegna þess að ég var staðráðin í því í nótt þegar ég ákvað að leggjast að ég myndi ekki láta klukkuna vekja mig. Ætlaði að gera tilraun. Sjá hversu langan tíma það tæki áður en ég myndi vakna af sjálfsdáðum. 9 tímar! Hvorki meira né minna. Svo úthvíld og fín.

En á meðan ég er búin að renna í gegnum bókina um alla pólitísku geðveikina í BNA þá hef ég rekist á marga fróðlega punkta. Á hverri blaðsíðu er dálkur í horni sem segir "DID YOU KNOW..." svo kemur eitthvað sniðugt. Þetta er svo spennandi og það ættu ALLAR námsbækur að hafa svona mola.

Á bls. 409 í útgáfunni frá 98-99 (gefin út árlega þessi doðrantur vegna þess hve mikið er að gerast í pólitíkinni og svonna) þá segir:

Did you know that the expression "O.K", which is used worldwide, was coined in the presidential campaign of 1840 in reference to Martin Van Buren, who was kalled "Old Kinderhook" after his birthplace? His New York supporters formed the "O.K." club and shouted the expression at political rallies and parades.

Magnað!

miðvikudagur, desember 1

Til hamingju..............
....................með daginn kæru landar. Fyrir þá sem ekki vita þá er 1.des fullveldisdagur okkar. Það gerðist jú árið 1918. Ætla ekki að fara að tíunda það hér nákvæmlega enda er ég búin að vera að skrifa ritgerð hjá honum Svan um þessi mál og þennan tíma.

Þegar við fengum fullt lýðræði 1944 varð dagurinn 17.júní en við stúdentar höfum ávalt haldið 1.des hátíðlegan. Farið prúðbúin með krans að leiði Jóns Sigurðssonar og heyrt á ræðuhöld í hátíðarsal HÍ.

Svo fór stúlka í fyrsta sinn á Bessastaði. Hitti forsetann og Dorrit ásamt Vigdísi Finnboga. Nokkuð skemmtilegt hús þar á ferð. 3 hæðir sem hægt er að virða fyrir sér. Bókasafn þar sem hægt var að glugga í bækur eins og Vídalíns postulu, herlækninn, Bandalag gegn bakkusi og margar fleiri sniðugar.

Kampavínið fengum við en engar veitingar. Kannski sparnarður hjá ríkinu eða þá hafa marsípan-kransa-mynslurnar ekki fallið stúdentum í geð fyrri ár.

Þakka samt sem áður boðið, þetta var mér sönn ánægja.

sunnudagur, nóvember 28

Þú þarft ekki að eiga allt...........(húsráð Kristínar, part I)

Sem námsmaður með takmarkað fjármagn hefur mér tekist að nýta hluti sem eru kannski ekki alveg gerðir fyrir ákveðna hluti til ýmis brúks. Ég á ekki samlokugrill, en finnst grillaðar saml0kur með miklum og sterkum osti ótrúlega góðar. Þá rak ég augun í vöfflujárnið, sem Siggi bróðir gaf mér á góðum degi í fyrra. Það er sniðugt fyrir einbúa eins og mig. Það tekur bara eina samloku sem er ágætt og hún er tilbúin á svona 20 sek, ef að vöfflujárnið er vel heitt. Snilldarbragð sem ég mæli með.

Svo er annað sem mér hefur tekist að nýta mér. Fyrir þá sem ekki þekkja "Skype" þá er það tölvu-forrit sem gefur fólki kost á að tala saman eins og í gegnum síma, í gegnum tölvuna, FRÍTT. Til þess að geta nýtt sér þessa tækni þarf tölvu-headsett, svona eins og þeir sem vinna við símavörslu eru með. En það er samt hægt að redda sér án þess að kaupa tölvuheadsett sem kostar sitt. Náið bara í venjulegt headsett og setjið í samband á bak við tölvuna.(fyrir þá sem eru jafn gamaldags og ég með PC ennþá)
Það er nefninlega hægt að snakka í gegn um það. Svo sniðugt og skemmtilegt.

Verði ykkur að góðu og góða skemmtun.

laugardagur, nóvember 27

Stelluverðlaunin!

Þetta finnst mér magnað........... og annað sem er mjög magnað er að bærinn minn góði Grindavík er orðinn heimsfrægur!

Gaman að segja frá þessu............. sérstaklega þar sem Noregur er þarna líka....... (Aðallega vegna þess að þessi lönd eiga það sameiginlegt að standa utan ESB a.k.a. útundanlöndin :) *hóst*

miðvikudagur, nóvember 24

Skrásetningargjöld og hrollvekja...........

Fór á þingpalla góðan mánudag ásamt stúdentaráðsliðum, til umræðu voru blessuð skrásetningargjöldin (eða skólagjöld?) við Háskólann minn Íslands. Ekki nema um 40% hækkun á þeim ágætu útgjöldum. Menntamálaráðsfrúin gat engan veginn svarað Merði Árna um hvort um var að ræða þjónustugjöld eða skatta. Furðulegt.

Fór svo á The Grudge. Sú filma átti stærstu opnun í Bandaríkjunum þegar kemur að horror. Fannst The ring verri. Ég get þó sofið núna...... annað en eftir Hringinn og var ég meira að segja búin að sjá japönsku útgáfuna.

Framundan er ritgerð, önnur ritgerð og þrjú skemmtileg próf. Heimsókn litla bró og fleira skemmtilegt..........




þriðjudagur, nóvember 16

ELSKA ÞETTA VEÐUR!

.........Þú rétt ræður ef það fer að rigna ofan í þetta......Nokia símann á hún......en ekki da stövle!

Stúlka dundaði sér við að skrifa um innflytjendur í gærkveldi og hve mikill auður er í þeim minnihlutahópi. Áhugasamir geta lesið um það hér.

mánudagur, nóvember 15

Fallið verk!

Kristín er ekki alveg að skilja kennara í dag........kannski af því að hún er ekki kennslukona.....kenndi nú samt einu sinni einn vetur í Holtaskóla í Keflavík. Það var mjög skemmtilegt en mikil vinna. Þá virkilega skildi ég kröfu kennara um hærri laun. En hvað er samt málið með hegðunina? Ef fólk vill láta taka sig alvarlega þá verður það nú að halda sig á virðingarstallinum. Mér finnst þeir hafa farið offari í baráttu sinni fyrir betri launum. Og að mæta ekki í dag til þessa að kenna þegar búið er að setja lög á þá.........hvaða fordæmi er það? Alla vegana, ég styð það að kennarar eiga skilið betri laun og allt það, en ekki með þessum hætti........já já, kannski má það vera að það gerist ekkert á Íslandi nema fólk geri allt brjálað, en mér finnst þetta samt einum of............

......Það var nú þannig einu sinni að sjómenn máttu þola sömu aðstöðu og kennarar í dag. Það voru sett lög á þá eftir að þeir höfðu verið í verkfalli í um tvo mánuði. Þeir voru sendir út á ballarhaf í brælu með ekki eina einustu bót meina sinna..........Ekki komust þeir upp með það að mæta ekki vegna veikinda.........enda jaxlar að guðs náð sem ekki þurfa á áfallahjálp að halda þó móti blási!


föstudagur, nóvember 12

Jólasnjór & jólalög........

....pínu stress í kjölfar, en yljar rætur hjartans engu að síður. Fyrsti snjórinn féll á suðvesturhornið í gær. Dundaði mér við að skoða fótspor á leiðinni heim áðan......Puma, Ecco, Nike, Reebook.

Er að hefja tímamótalestur í bandarískum stjórnmálum. Þakka peyjunum, Adda, Rebba, JP & Þóri, frábærasta fyrirlestur áðan.

Nixon forseti var víst hetja! Skemmtilegt.

miðvikudagur, nóvember 10

Lánasjóðsdagurinn næstum liðinn og sáttir stúdentar með súkkulaði og köku í maga. FM 94,3 segja að jólin séu að koma, ég er sátt við það. Á morgun er kynningarfundur á stafi Ungra frjálslyndra og hvert ég allt það fólk sem hefur áhuga á okkur að mæta í Aðalstræti 9 á morgun kl.20:00.

Náði í pakka frá Natan & Olsen í gær. Innihaldið voru sárabætur vegna orma í eplum og falleg bréf...... "Kæra Kristín María"...... Skemmtilegt og mun innihald pakkans án alls efa nýtast vel. Betty Crocker kökumix ásamt kremi og fullt, fullt, fullt af öðrum kremum frá Dove, og get ég smurt mig í bak og fyrir eftir að ég er búin að smyrja da kake og mun eflaust ilma vel það sem eftir er, á nærunum með rauða Betty-svuntu sem einnig var í pakkanum.

Kristín María þakkar Natan & Olsen kærlega fyrir!

þriðjudagur, nóvember 9

Lífshættir og hamingja kvenna
The Joys of Womanhood
Höfundur: óþekkt afburðakona Brilliant Woman Author Unknown
Íslenskað: óþekkur afburðakeli

Konur yfir fimmtugt, eignast ekki börn. Þær mundu aldrei muna hvar þær lögðu þau frá sér.
Women over 50 don't have babies because they would put them down and forget where they left them.
Ein ráðgátna lífsins er hvernig 750 gr af konfekti verða 2 kg af konu.
One of life's mysteries is how a 2 pound box of candy can make a woman gain 5 lbs.
Ég læt hugann reika.., en stundum yfirgefur hann mig
My mind not only wanders, it sometime leaves completely.
Besta leiðin til þess að gleyma öllum vandræðum, er að ganga í of þröngum skóm.
The best way to forget all your troubles is to wear tight shoes.
Hið góða við að búa í litlum bæ, er að þegar ég veit ekkert hvað ég er að gera, veit einhver annar það.
The nice part about living in a small town is that when you don't know what you're doing, someone else does.
Með aldrinum verður erfiðara að léttast. Árin, líkaminn og fitan bindast vináttuböndum.
The older you get, the tougher it is to lose weight because by then, your body and your fat are really good friends.
Ég var einmitt að sættast við gærdaginn, en þá kom þessi dagur
Just when I was getting used to yesterday, along came today.
Stundum finnst mér ég skilja allt, en svo kemst ég aftur til meðvitundar.
Sometimes I think I understand everything, then I regain consciousness.
Ég hætti að skokka mér til heilsubótar þegar hitinn af læranúningnum kveikti í sokkabuxunum.
I gave up jogging for my health when my thighs kept rubbing together and setting my pantyhose on fire.
Undarlegt! Ég hengi eitthvað upp í skáp og eftir smátíma hefur það hlaupið um tvö númer!
Amazing! You hang something in your closet for awhile and it shrinks two sizes!
Horrenglur pirra mig! Sérstaklega þegar þær láta út úr sér hluti eins og : "Veistu, stundum bara gleymi ég að borða." Sko, mér hefur tekist að gleyma hvar ég á heima, hvar ég lagði bílnum, hvers dóttir mamma er og hvar ég setti lyklana, En ég hef aldrei gleymt að borða. Hvílík heimska: að gleyma að borða!
Skinny people irritate me! Especially when they say things like, "You know, sometimes I just forget to eat." Now I've forgotten my address, my mother's maiden name, and my keys. But I've never forgotten to eat. You have to be a special kind of stupid to forget to eat.
Vinkona mín tók feil á Pillunni sinni og valíuminu sínu. Hún á orðið 14 börn, en henni er eiginlega alveg sama.
A friend of mine confused her valium with her birth control pills. She had 14 kids, but she doesn't really care.
Vandi sumra kvenna er að þær æsast upp útaf einhverju ómerkilegu og giftast því svo.
The trouble with some women is that they get all excited about nothing and then they marry him.
Það stóð í grein að dæmigerð einkenni streitu væru: að borða of mikið, kaupa það allt sem manni dettur í hug og að aka of hratt. Er ekki í lagi með þetta lið? Þetta er það sem gefur lífi mínu gildi.
I read this article that said the typical symptoms of stress are: eating too much, impulse buying, and driving too fast. Are they kidding? That is my idea of a perfect day.
Ég hef komist að leyndarmáli fatanna frá Victoria's Secret. Leyndarmálið er að engin eldri en þrítug passar í þau.
I know what Victoria's Secret is. The secret is that nobody older than 30 can fit into their stuff.
Fagnið kvenleikanum! Sendu þessa síðu (eða rif úr þinni, ef þú ert karl) til allra geislandi kvennanna í lífi þínu.
Celebrate Womanhood! Please forward this page as an attachment to all the brilliant women in your life!
Kveðja NiceBro
Þakka Stellu frænku fyrir að senda mér þessa skemmtilegu speki!! :)

mánudagur, nóvember 8

Oslo var súper!!

Helginni eyddi ég á ráðstefnu um innflytjendur. Margt fróðlegt þar að heyra og sjá og ýmislegt sem betur má fara varðandi þann minnihlutahóp. EN, það var ýmisleg annað bruggað í norsku borginni. Hitti skemmtilegt fólk (eins og alltaf þegar ég hitti unga liberala frá norðurlöndunum) og auðvitað sumt áhugaverðara en annað.....bara eins og gengur og gerist.

Mikið var að gerast í borginni þessa helgi og brjálaðir fótboltaaðdáendur flyktust í borgina til þess að horfa á leik Brann vs Lyn. Brann vann nokkuð örugglega. Stúlka vissi að það væru nokkrir íslenskir piltar að spila botlann í Norge. Mundi líka að Ólafur nokkur Bjarnason, Grindjáni með meiru var að spila þarna. Mundi bara ekki með hvaða liði.......já, ég veit, asnalegt að vera ekki með svona hluti á hreinu.

Þegar mín var komin á flugvöllinn var eina fólkið sem ég sá þarna, Brann áhangendur enda þurftu þau að taka flug alla leið til Bergen. Stúlka hefur sig til brottfarar og þegar ég er að labba að gate-inu þá hitti ég ekki bara Óla Bjarna og Kollu!! "Nei hæ, hvað ert þú að gera hér??" segja þau og ég skýrði mál mitt. "En þið? Eruð þið að fara til Íslands líka?" Sá svo að við hlið hans stóð stæðilegur spilari í eins jakkafötum og með eins bindi. Fattaði fljótt og sagði, "bíddu já þú ert að spila fótbolta hérna í Noregi?" Þá svara Óli "Já, við vorum að verða bikarmeistarar og núna erum við að fara heim (Til Bergen) og fagna!!, Fylgistu ekki með stelpa??" Ummmmm, langaði að segja "Jú, hahah, auðvitað, bara að grínast, datt aðeins út" en sleppti því auðvitað og bað að heilsa þeim :) Skemmtilegt. Var að spá í að biðja um númerið hjá Gylfa Einars en sleppti því líka.

Þannig að núna er ég komin í kotið mitt aftur og hef nýlokið við að taka skemmtilegt lokapróf í SPSS. Framundan er lánasjóðsdagurinn og hvet ég alla sem vilja forvitnast um LÍN málin að gera sér ferð í byggingar skólans (Odda, Lögberg, Árnagarð, VRII og Öskju) núna á miðvikudaginn á milli 10.00 - 13.oo og fá sér eitthvað smá að drekka og fræðast um lánasjóðsmálin.

Thanx to Unge venstre in Norge for good weekend!

miðvikudagur, nóvember 3

NÁGRANNAR...........afsakið þetta!

Skunduðum niður í Listasafn Reikjavíkur í gærkveldi. Gestalistinn vandlega skoðaður og merkt samviskusamlega við nafnið mitt. Sögðum okkar álit á því hvern við TÖLDUM að myndi vinna forsetakosningarnar. Smelltum á skjáinn, "Female, 24 years old, John Kerry". Fólkið í Hafnarhúsinu, sem var hátt í 500 talsins, taldi svooooo rangt. Niðurstaða þessarar könnunnar sýndu að 70% sögðu Kerry vinna en 30% Bush. Phúúúú!!

Eftir að hætt var að "servera" áfengar veigar missti fólk áhugann á því að vera þarna. Skrýtið. Fékk mér Mac kjúlla burger, hann var góður, enda stúlka hungruð as hell! Skemmtilegt hversu fjölbreyttar veitingar voru í boði og þakka ég hér með bansaríska sendiráðinu kærlega fyrir þetta skemmtilega boð.

Aftur á móti langar mig að biðja þá nágranna mína, sem ekki sváfu sökum mikillar kosningaspennu og tónlistar úr íbúð stúlku, afsökunar. Áttaði mig ekki alveg á stöðunni fyrr en tveir einkennisklæddir lögreglumenn mættu í dyrnar og spurðu um húsráðanda...........Við lækkuðum í okkur og allir sáttir.............I hope. Fékk það á tilfinninguna í gær að ég væri á Hrafnistu-campusnum.

mánudagur, nóvember 1

Fékk þetta sent í meil..........hafi það hver eins og hann vill:

BARA BENSÍN!
Olíufélögin stálu af okkur peningum í mörg ár. Það liggur skýrt fyrir í niðurstöðum Samkeppnisstofnunar. Þeir viðurkenna það - en segja að málið sé fyrnt. Þeir vilja ekki borga sektir eða skaðabætur- vegna þess að það er svo langt síðan þeir stálu frá okkur! Við getum svarað fyrir okkur.
Það þýðir ekkert að hafa bensínlausan dag. Það er bara rugl því þá verslum við bara meira á morgun. Við refsum þeim með buddunni og kaupum BARA BENSÍN! Alveg þangað til þeir hætta að röfla og borga sínar sektir og skammast sín - þá kaupum við BARA BENSÍN!Ekki sígarettur, ekki pylsur, ekki hreinsiefni, leikföng, nammi, mat, hanska, grill né neitt annað, Við kaupum allt slíkt annars staðar. Hjá olíufélögunum kaupum við BARA BENSÍN! EKKERT ANNAÐ!
Þeir finna fyrir því. Dreifðu þessu á þína vini - og stattu við það að kaupa BARA BENSÍN! Næst þegar þú freistast til þess að kaupa eitthvað annað á bensínstöð en BARA BENSÍN þá sannar þú orð markaðsstjóra OLÍS sem sagði í samráðinu "Fólk er fífl".
Vilt þú láta hafa þig af fífli?
Ef ekki þá kaupir þú BARA BENSÍN! Almenningur Félögin sem um ræðir eru: Skeljungur, OLÍS og ESSO
Kveðja
Vigdís Harðardóttir

Veit ekki með ykkur en ég er að spá í fara bara á Bókhlöðu-kaffistofuna næst þegar mig langar í pylsu á Select :)

(En fyrir þá sem ekki vita þá er sú verslun ská á móti Hlöðunni og þangað förum við krakkarnir stundum ef við erum að læra lengi.......sem styttist óðum í........læra lengi á Hlöðunni......... jibbí, því ég er viss um að fjármagnið mun koma von bráðar og þá verður kátt á hjalla og allir í HÍ ánægðir með opnunartíma Hlöðunnar.)
Ritgerðarspan........

Kæruleysi í ritgerðarsmíð borgar sig ekki............kannski að stúlka hafi gróflega áætlað tímamörk fyrir þessa vinnu heldur tæplega. Þannig var málið að ég náði varla að lesa verkið yfir áður en inn var skilað. Baldur er mjög strangur á tíma og eigi síðar en 15:00 mátti hún berast. Sannkallað kapphlaup við tímann........móð og másandi náði ég í tæka tíð og henti inn allt að því hálfkláruðu verki. Veit að innan um öll footnote-in leynast einhverjar ásláttarvillur og fleira skemmtilegt.

En það þýðir lítið að væla yfir einni ómerkilegri ritgerð. Bara 30% af lokaeinkunn og svo fæ ég mjög sennilega 10 á lokaprófinu. Núna er bara að spýta í lófana því framundan er vertíð mikil í lærdómi og prófum. Fyrsta lokaprófið er eftir viku í tölvutíma kenndan við SPSS!! Og svo kemur þetta koll af kolli í desember. Ljúft og ennþá skemmtilegt.

Svo minni ég mitt fólk á kosningavökuna annað kvöld í Listasafninu þar sem ég er í þann mund að fara að vinna lite-kippu af honum Adda!! Þetta verður svooooooo spennandi. Vona bara að úrslit kosninga komi ekki eftir jólin. Go Kerry, go Kerry, go Kerry!!!!!

laugardagur, október 30

Læridagur í dag.........

Við Addi erum hérna að hamast við að klára ritgerðina okkar áður en við skundum í ammli til Önnu Völu. Í því tilefni kemur mynd:

Addi eins og draugur og ég að bora í nefið. Skemmtilegt.


föstudagur, október 29

Omar & egg (eða nit?)

Stúlkan er komin í hollustuna........það því marki sem hún nær. Fór með moms að versla í bónus í síðustu viku. Eftir að hafa fyllt körfuna af hollum mat þá ákvað ég rétt áður en ég fór að borga að kippa einum poka af þurrkuðum eplum með mér. Finnst þau góð.

Í gærkveldi þegar sykurþörfin var allveg að fara með mig hugsaði ég til eplanna minna uppi í skáp. Reif pokann úr skápnum og opnaði hann. Hélt áfram að pikka á tölvuna og borðaði eplin úr pokanum hugsunarlaust.

Svooooooo í morgun áður en ég skaust út úr dyrunum, til þess að fara í tíma, hugsaði ég með mér "það væri nú gott að taka eplin með, til að narta í í frímó ef að ég verð nú svöng". Þannig að eplapokinn fékk að fara með í töskuna. Í gagnagreiningu tek ég upp pokann í pásunni og fæ mér. Býð Siggu Dögg og fleirum. (Atli afþakkaði, heppinn)

Þegar ég er að gæða mér á einu af eplunum, ákveð ég að skoða það aðeins, enda var ég þarna bara í dundinu í frímó. Hafði ekkert annað að gera en að tékka aðeins á því sem ég var að borða, en hefði betur gert það aðeins fyrr, eins og til dæmis í gærkveldi þegar ég var að hakka þau í mig hugsunarlaust!!

Þegar ég fer að rýna í eplið, NEI, þurfti ekki einu sinni að rýna! Er ekki bara félagi ORMUR mættur á svæðið. Svona hress bara, brosir vandræðilega framan í mig, með sitt svarta trýni, og ég er viss um hann hefur sagt á ormamálinu, ekki borða mig líka, PLESAE!

.........Og ekki borða alla ófæddu ormana sem hafa ekki enn náð að klekjast! Því ekki var einungis félagi Ormur þarna heldur trilljón egg út um allt!!

Nei, þetta var ekki draumur. Gerðist reyndar bara núna í morgun. Ég sit hérna og mig klæjar alls staðar. ALLS staðar.

Það fyndna var svo að í hádeginu fórum við krakkarnir á Vegamót. Ég og Anna Steinunn ákváðum að vera nettar og fá okkur humar og súpu. Með humrinum kom svo salat með hrísgrjónum. Litlum sætum hrísgrjónum sem minntu óneitanlega á félaga Orm og hans fjölskyldu í Lions Quest.

Ég mun fara með pokann góða á mánudaginn til framleiðanda, ákvað að tékka á félaganum, svona rétt aðeins. Hann er í góðum málum með sín egg og kúrði sig í pokanum ásamt fleirum................Spurnign hvort ég endurskoðu ekki hollustu fæðið og kaupi mér bara það sem mér finnst best..........Freyju hríspoka!! ummmmmm


fimmtudagur, október 28

Við Quarashi diskinn mun ég bæta rafmagns-dósaupptakara.

Svo verður Kristín að hætta að naga naglaböndin......þetta er ekki hægt.
Umsóknir um kúrufélaga voru allt of margar þannig að ég ákvað að fresta vali um stund.

Er í ritgerðarsmíð um ESB, í tilefni þess ætla ég að koma með punkt um hvers vegna við ættum EKKI að sækja um aðild:

Ísland er að borga u.þ.b. 2 milljarða í EES-samstarfinu. Skv. Heildarniðurstöðu Hagfræðistofnunar myndi Ísland borga 3,7-5,6 milljarða á ári ef að við værum aðilar að ESB. Svo er gert ráð fyrir því að þetta framlag tvöfaldist við fulla stækkun ESB, yrði þá um 8,3 – 10,1 milljarður!! ............ha? sækja um? Finnst þér það?

This and many many more...........Skemmtilegt.

þriðjudagur, október 26

Kristín María ætlar klárlega að kaupa sér nýja Quarashi diskinn: "GUERILLA DISCO"

Ég er með eitthvað "thing for Quarashi" þessa dagana.
DAGURINN Í DAG

Skellti mér á fyrirlestur í hádeginu í Lögbergi: "Ógnar slæðan lýðræðinu?" Með elskulegri Sunnu dísinni minni :) Verið að ræða bannið við trúartáknum, eins og nýleg dæmi sýna í Frakklandi. Ágætur.

Fór í viðveru uppi í Stúdentaráði það sem stúlka sinnir lánasjóðsmálunum. Alltaf gaman að hitta Vökuliða, hressa og káta að vanda. Fór í bóksöluna & keypti mér bókina: "Iceland, Norway and the EC Common Fisheries policy" Mjög fróðlegt.

Fór svo á Stúdentaráðsfund sem var sá lengsti til þessa. Við erum að sjálfsögðu búin að vera að standa okkur í meirihluta og fullt af málum sem við megum vera stolt af eins og ábyrgðamannakerfið, office pakkatilboðið, Rannsóknadagurinn framundan, búið að lengja opnunartíma byggina, Odda, Lögberg, Árnagarð og VR II til 24.00 og margt margt margt fleira :)

Fórum svo á Brennsluna og fengum okkur að borða og spjölluðum saman yfir bjór, vatni og kókglasi.

Annars vildi nú ágætur aðili meina að þetta væri týpískur dagur hjá stúlku:

Vaknaði, fór í Grindó, las í hlöðunni, seldi harðfisk, skipulagði mót fyrir 200 frjálslynda frá afríku sem eru í 2 vikna heimsókn og gista allir heima hjá mér, skrapp til Brussel...og fór svo í vísindaferð um kvöldið, eftir að ég kom heim skrifaði ég heimildaritgerð um pólitísk áhrif Nitzsche á Norðurlöndin áður en ég ákvað stefnu íslands í kvótamálum...

Dæmi nú hver fyrir sig...........

VILL MINNA Á:
Það er HREKKJAVÖKU-PARTÝ Vöku á Pravda á föstudaginn klukkan 20.00. Þeir sem mæta í búning fá frían bjór. Allir að láta sjá sig......Treysti á ykkur Elítumeðlimi. Ekkert að skrópa þó svo það séu ritgerðaskil á mánudaginn sko!

sunnudagur, október 24

Jæja, þá er ný vika hafin og Kristín bara nokkuð bjartsýn. Tókst að sofna yfir afleitri mynd í gærkveldi í sófanum og vaknaði ekki fyrr en 10 í morgun......ennþá í sófanum. Já ég vaknaði nokkrum sinnum svona hálfpartinn og var alltaf of þreytti til þess að færa mig.

Stend núna í ritgerðarsmíð og er málið ESB eða ekki? Þjóðernishyggja eða hvað?

Ef þið þarna elskurnar úti langar að koma til mín og kaupa af mér harðfist þá eruð þið velkomin............kenndur við Stjörnufisk sem er THE besti.

Langar ferlega mikið til þess að skella jólalagi á fóninn. Kom nebbla út úr Odda áðan og fann svona frostlykt......hún minnir mig alltaf á jólin :) En það styttist í þessar himnesku stundir. Ég fékk lagið "Svona eru jólin" á heilann á leiðinni heim. Skemmtilegt.

Ekki taka myndina "Laws of attraction" á leigu. AFLEIT.

laugardagur, október 23

STJHAG dagurinn var í gær........

Skellti mér í vísindaferð í KB-Banka í gær. Fróðlegt og skemmtileg húsakynni þar á bænum. Tilvalið til þess að taka á móti fólki í vísindaferðir. Það sem mér fannst einna skemmtilegast var allt starfsfólkið sem kom niður og naut nærveru okkar stjórnmálafræðinema......gáfu sig ekkert sérlega mikið á tal við okkur og í lok fyrirlestrarins sá Kristín ástæðuna.

Margar og miklar voru veitingarnar sem starfsmenn KB-Banka slógu ekki hendinni á móti. Það athyglisverða við þetta allt saman var að þetta voru ALLT karlmenn!! Eftir að fyrirlestri lauk og fólk var búið að þamba bjórinn og gúffa í sig lá leiðin á Pravda. Þar kepptu stjórnmálafræðinemar við hagfræðinema í ræðukeppni, bjórþambi & sjómanni karla og kvenna. Við sigruðum ræðukeppnina ásamt því að Rebbi var kosinn besti ræðumaðurinn, svo sigruðum við líka sjómann karla og kvenna og stóðu Þormóður og Anna Steinunn sig eins og sannar hetjur! Auðvitað sigruðum við svo Hólmsteininn!

Eftir að Kristín var búin að þamba 15 glös var vatni þetta kvöldið lá leiðin heim um eitt leytið. Skellti með mér einum ógeðs-Kebab og mun aldrei aldrei, aftur kaupa mér þann óþverra! Eitt stykki langt svart hár og mín fékk nóg, auk þess er þetta viðurstyggð á bragðið.

Nú liggur leiðin með honum Adda mínum á Hlöðuna þar sem við tekur ritgerðarvinna. Addi er ekki jafn hress og Kristín í dag enda var allt annað en vatn í glasinu hjá honum í gær! Hann hvílist hinum megin í íbúð Eyrúnar sem er alltaf svo ágæt í að hýsa þennan Grafarvogsbúa!

Leiter folks!

miðvikudagur, október 20

OFNARNIR KOMNIR Í LAG.........

Skellti mér á Þjóðarbókhlöðuna í dag. Aldrei þessu vant! Hún er líka opin til 22.00 á miðvikudögum. Hafinn er undirbúningur á ritgerð í Evrópusamvinnu-námskeiðinu..............a.k.a. Brussel-liðið. Fór og aflaði mér nokkurra heimilda til þess að geta hafið vinnuna fyrir alvöru. Þar var auðvitað Brussel-familían mín...........nei, nema Addi, alveg rétt, hann ákvað að fara EKKI í þessa ferð. Leiðinlegt. Framundan er nebbla Brussel-partý. Nei ég er hætt að bögga þessa elsku. (Bara að standa við það sem ég sagði þér, ef þú kæmir ekki með)

En ég kom inn í hlýja íbúð í dag. Hringdi nebbla í hr. Gunnar umsjónarmann fasteigna hér á svæðinu og þjónustan er frábær! Þegar ég kom heim voru allir ofnar á milljón og ég er hætt að drekka sjóðandi te í bili.

Annars er það nýjasta að frétta af stúlku að framundan er læri-helgi og skemmtilegheit, nammidagur og alles. Svo VERÐ ég reyndar að kíkja á STJHAG daginn (bara fyrir Siggu formann) og svo aftur í læri læri. Svo eftir rúmar tvær vikur er ég flogin af landi brott til Norge. Ætla að búa þar í nokkur ár....................nei nei, bara smá helgarstopp.

Well, that´s all folks!!
...........for now

þriðjudagur, október 19

KULDABOLI KOM Í GÆR..............KÚRUFÉLAGI ÓSKAST!!

Það hefur örugglega farið fram hjá fæstum að vetur konungur þjófstartaði í gær. Hann kom með látum. Ekki nóg með það, hann henti í mig hálsbólgu og kvefi. Það gerðist það sama nú í ár eins og í fyrra þegar fór að kólna, ofnarnir hættu að virka! Skemmtilegt. Núna dæli ég ofan í mig heitu sítrónute með hunangi og sit með trefilinn vel vafinn um hálsinn. Ullarsokkarnir eru komnir fram og teppið líka. Það vantar eitthvað meira í rúmið mitt, þar eru fyrir 6 koddar, tvær sængur og tvö teppi.............nei ég er ekki að gínast. Jú oft verður heitt en það er bara gott. En fyrir utan mig og öll teppin og sængurnar og koddana er alveg meira pláss. Ef einhverjum öðrum er jafn kalt og mér, og á kannski ekki svona mikið af koddum þá má hinn sami koma og kúra við mig.

Kúr er hollt og gott..............í svona veðri!

sunnudagur, október 17

KOMIN HEIM FRÁ BRUSSEL

Ég á ekki orð yfir að lýsa þessari ferð minni til Brussel. Hún kostaði nokkuð í peningum en þeir eru algjört aukaatriði miðað við upplifunina. Krakkarnir voru frábærastir & að fá að kynnast þeim á öðrum vettvangi en á kaffistofunni í Odda var ómetanlegt. Get ekki sagt annað en ég hlakki til að mæta í skólann aftur á morgun og rifja upp skemmtilegar stundir liðinnar viku. Það var mikið gert og stífir fyrirlestrar sem við sóttum, NATO, SHAPE, EFTA, ESA, ESB. Allt mjög fóðlegt. Þegar við vorum ekki í fyrirlestrum þá vorum við annað hvort að versla, úti að borða eða að fá okkur Belgískan bjór, ummmmm hvað hann var góður og sjaldan undir 8% í styrkleika. Kristín drakk mikið af honum enda eitt það besta sem hún fær sér. En bjórinn er fitandi og undir lok ferðarinnar varð hún að fara og kaupa sér pils til þess að geta verið í einhverju öðru en joggingbuxum því ekki pössuðu gallabuxurnar lengur. Ég er svo óþolinmóð og fór allt í einu að pæla í þessum Hollywood-kúr sem alltaf er verið að auglýsa, væri kannski sniðugt að prufa og geta þá farið í gallabuxurnar fyrr. En ég held að ég sé hætt við eftir reynslusöguna sem ég las um þennan kúr. Elísa María sendi mér hana á meil og ég ætla hér með að deila þessari skemmtilegu sögu með ykkur hinum og líka þeim sem eru eða voru að spá í því sama og ég.

Reynslusaga af Hollywoodkúrnum:

Ég ákvað að prófa þennan umtalaða Hollywoodkúr sem allir eru að tala um. Það var nefnilega árshátíð í fyrirtækinu mínu akkúrat eftir tvo daga ogmig langaði til að vera flott í kjólinn. Ég átti einmitt akkúrat fyrirflöskunni og miða á árshátíðina. Eftir að hafa lesið leiðbeiningarnar þátók ég við að drekka djúsinn. Hann var rammur og vondur á bragðið en églét það auðvitað ekki stoppa mig. Svo átti ég að þamba vatn á milli þesssem ég fengi mér djúsinn.

Eftir ck. klukkutíma varð ég að hlaupa á klóið því það var eins og flóðhefði farið af stað í iðrum mér. ÉG ætla ekki að lýsa því hér hvernig mérleið á klóinu og hvað margir lítrar runnu úr rassinum á mér en alla vegafór örugglega eitt kíló af mér þarna.Ég hélt svo áfram að þamba vatn og fá mér gollara af djús öðru hvoru. Umhádegið eftir nokkrar klósettferðirnar þá var ég hreinlega að deyja úrhungri. Drakk meira vatn og meiri djús - á klósettið - meira vatn og meiridjús - á klósettið..osfr.

Um kvöldið var hætt að renna úr æðri endanum enég pissaði þeim mun meira. Fór drullusvöng i háttinn og svaf vægast sagtmjög illa, með heiftarlega magaverki , trúlegast af svengd.Næsta dag byrjaði sama píningin aftur en nú var ég ekki eins svöng - enóstjórnlega illt í maganum. Allan daginn drakk ég djúsinn og vatnið og fórþess á milli á klósettið. Um kvöldið var ég að fara á árshátíðina og éghlakkaði mikið til að stíga á vigtina.

LOKSINS drakk ég síðustu dropana úrflöskunni og kúrinn var búinn! JIBBÝ! Ég klæddi mig úr öllu og hljóp inn ábað , steig á vigtina og trúði varla mínum eigin augum! 4,5 kíló farin!Bara sísvona. En það var svo sem ekki eins og ég hefði ekkert haft fyrirþessu, allar klósettferðirnar og svengdin og magaverkirnir..uss. Ég varlíka hálfslöpp, kom mér varla í árshátíðarkjólinn og hafði enga orku í aðmála mig. Tók leigubíl niður á hótel Sögu og rétt var komin inn um dyrnarþegar að það leið yfir mig!

Næringarskortur sögðu læknarnir..og ég missti af árshátíðinni!

miðvikudagur, október 13

DIPLOMA BRUSSEL

Skemmtilegt er that i henni Brussel nuna. Stulka for adan med lidinu i Kebab og gos og bara nokkud god stemmning midad vid hanott i Bussel. Vorum i allan dag i islenska sendiadinu og hafdi mjog gaman ad enda vel {[]]}}}]~~´´

föstudagur, október 8

...............8 tímar í brottför til borgar diplómanna, Brussel. Viku dvöl með frábærasta fólki í heimi!! Verður án efa geðveik upplifun og allir ganga með "work in Brussel" í maganum eftir ferðina. En anyhú, þið sem eruð áfram á klakanum í hinu hefðbundna amstri...........hafið það gott. Hægt verður að ná í mig með póstkorti...........sendist á íslenska sendiráðið í Brussel bara.

Hvað er svo málið með þetta ídol?? Ég get varla horft á þetta. Vorkenni þessu fólki sem er að gera sig að algjörum hál****m þarna. To much for me to handle og þið sem voruð að spá í að bjóða mér í Idol-partý...............sleppið því bara.

fimmtudagur, október 7

MÁLEFNARÁÐSTEFNA VÖKU Í KVÖLD!!

Mæli með því að allir áhugasamir kíkji við í Garðsbúð (húsið sem bóksalan er í) í kvöld klukkan 20:00 og fái sér veitingar. Við í VÖKU ætlum að kynna starfsemi okkar og það sem við erum að fást við í Stúdentaráði. Kristín mun auðvitað kynna lánasjóðsnefndina og allt það skemmtilega sem við erum að gera þessa dagana.

Allir að láta sjá sig. Ég lofa því að enginn verður svikinn á því að mæta og hitta allt frábæra fólkið sem stúlka er að vinna með í félagsstörfunum :)

miðvikudagur, október 6

NÆST Á DAGSKRÁ:

Fyrir utan það að vera að fara til Brussel á laugardaginn þá ætla ég mér að fara með Björn Óskar bróðir á BLINDSKER, saga Bubba Morthens. Við erum álíka spennt.

Dagurinn er föstudagur 8.október.

Þakka Bryndísi samveru í gærkveldi þar sem við snæddum ljúfan kvölverð og áttum gott spjall. Mikið sem drífur á okkar daga þessar stundirnar.

mánudagur, október 4

FÍNASTA HELGI
Fór suður til Grindavíkur og var markmiðið að læra. Tjái mig ekki meira um það. Gott að koma heim í kotið og hitta meðlimi fjölskyldunnar, þó svo það hafi vantað Sigga bró sem því miður fékk ekki að koma heim á laugardag, vinurinn búinn að hafa sig til brottfarar og þá sýndi blóðrannsókn að drengur varð að vera í lækna"spa" áfram. Kristín gerði þá stormandi lukku að fara með mömmu til Reykjavíkur að ná í Sigga og ætlaði svo að vera eftir í kotinu sínu til að læra meira. Kom þá í ljós þegar í borgina var komið að lyklunum gleymdi hún heima. Skemmtilegt. Eftir 3ja klukkustunda tjill í bænum komust lyklar á leiðarenda.

Afmæli Konna var nokkuð nett. Flaut þar allt í áfengum drykkjum og átti enginn að komast út með höfuðið á réttum stað. Kristín ákvað að droppa við hjá afmælisbarninu svona aðallega til þess að hitta hann og Elítu-meðlimi enda sakna ég þeirra ávalt ef það líða lengur en 24 tímar á milli hittings. Það fór ekki svo að Kristín færi ein á EGO því í Konna-partýi hitti ég EGO-fan dauðans og vin hans sem ákváðu að skella sér með stúlku á NASA. Þegar niður á Austuvöll var komið voru þeir þegar byrjaðir að spila og gvöð hvað húsið var troðið. Mátti þakka mínu sæla að komast út af dansgólfinu þegar ég rauk inn á það til þess að taka þátt í stemmningunni. Skaust aftur út úr þvögunni með skottið á milli lappanna og upp að bar þar sem ég stóð bara í tröppunni þar og fylgdist með úr fjarlægð. En það var í góðu vegna þess að sama hvar maður tróð niður fæti, allstaðar var maður inni í miðju fjöri. Hitti svo auðvitað Grindjána sem voru BARA hressir og fleira fullt fólk. Eftir að EGO lauk sér af tæmdist húsið og stúlka lét sig hverfa inn á annan stað þar sem hittingur var við áhugaverða aðila. Komin heim seint eftir leigubílaröð dauðans!! Næst þegar á djammið er farið eru það strigaskór og dúnúlpa...............eftir á...........skokk heim :)

fimmtudagur, september 30

EGO er það......................
Loksins loksins þegar minns er búin að ákveða maraþon lestur, þá gerist það!! EGO. Eftir allt það sem i boði er búið að vera í allt sumar hefur ekkert heillað mig nóg mikið til þess að láta verða að því að fara út úr húsi. Ég er búin að vera nokkuð öflug núna, mun vera það líka á morgun og svo allan laugardaginn..............svo skelli ég mér á NASA og hlusta á mína bestu tóna fyrr og síðar. Svo á sunnudaginn er markmiðið að vakna fersk og halda áfram maraþoni!! Jibbí jibbí....................næ í tvö stykki miða á morgun og mun hita upp með "Fjöllin hafa vakað" & "Stórir strákar fá raflost" á leið til Grindavíkur. ..............jafnvel fleiri góðum.

Hver vill koma með? Held einhvern veginn að það séu aðallega bara strákar sem ég þekki sem fíla Bubba og EGO eins mikið og ég. I want FAN with me, og þar sem Siggi bró er ennþá á la hospital þá kemst hann ekki með mér. Fúlt.

miðvikudagur, september 29

Svo sniðug í plönum!!
Miss Kris var farið að hlakka til helgarinnar enda sá tími yfirleitt ánægjulegur hjá minni, þá sjaldan hún fær sér einn kaldan........stundum fleiri. Um helgar gleymist amstur vikunnar og ég sökkvi mér ofan í unað og gleði................Var búin að gera mér það í hugarlund að njóta "Október-Fest" sem verður 1.október og svo kíkja yfir til miss Eyrúnar nágrönnu og heiðra hana með nærveru minni. En svo ákvað stúlka að láta skynsemina ráða ferð og mætti hún alveg gera það oftar. Nú er svo komið að prófa á mannskapinn í stjórnmálum 3ja heimsins á mánudaginn og því um lítið annað en að lesa og lesa, enda hefur minn tími þessa önnina farið í allt annað en lestur á námsefninu............sama hvað ég ætla alltaf að vera dugleg þá endar þetta allaf í sama hel****s farinu. En alla vegana, búin að blása fyrri plön af og hafði hugsað mér að hendast suður til Grindjánaborgar og hjúfra mér í fangið á múttu, derka við Sigga bró sem er nota bene sjúklingur og lesa á hinum stundunum.
CLEVER!!

En núna ætlar stúlka líka að fara í það að lesa og kannski...........bara kannski verða afköstin það mikil að mín kannski gerir eitthvað á laugardaginn. Who knows...............svo spennandi.

mánudagur, september 27

Splendid weekend
Er þá ekki barasta komið að því að skella inn pistli um það sem átti sér stað þessa helgina? Þessi vikulok voru frekar stíf en skemmtileg. Kristín byrjaði á því að mæta samviskusamlega í Bandarísku stjórnmálin á föstudagsmorgun eftir að hafa skutlað Sigga bró á la hospital í rokrassgati dauðans. Ég sá fram á að mæta seint í tímann þannig að ég ákvað að fara þessa stuttu vegalengd á bílnum. Hefði sko betur átt að sleppa því auk þess að vera með það á hreinu hvar tíminn átti að vera. Byrjaði á því að bruna upp í bíóið og gekk þar inn í ranga stofu. Hringdi svo sos call í Siggu og hún sagði hann vera í Lögbergi! Fylgjast með Kristín!! Allt í læ, mín brunar þá út í lögberg og eyddi svona 15 mín að rúnta um bílastæðin (sem eru mjööööög takmörkuð) Kemst sveitt og móð loksins í tíma. Siggi var búin að segjast þurfa vera alla vegana svona 3 tíma á spítalanum og Kristín gleymdi svo símanum sínum í bílnum. Þegar ég er svo búin í tíma og (sem var 4 faldur) og rölti að Norræna húsinu þar sem ég lagði sé ég 14 missed calls á símanum!! Siggi var þá eftir allt ekki nema í 1 og 1/2 tíma þarna í kotinu á la hospital.
Það reddaðist nú alls saman og hann tók allt lesefnið og las það upp til agna.

Krakkarinir frá Norge, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi voru nú öll að berast til landsins og allt að hefjast hjá UF. Byrjuðum á að hittast í Aðalstræti 9 og röltum þaðan út í Alþingi þar sem við fórum túr, þó ekki inn í aðalhúsið vegna framkvæmda. Skelltum okkur í nefndahúsið og hlustuðum á sögu þingsins á video í máli og myndum. Eftir það var farið aftur út í Aðalstræti þar sem flokkurinn bauð upp á hákarl, brennivín og harðfisk að vestan, ásamt ostum vínberjum og gosi.Kristín gerðist svo kræf að smakka brennivínið og það 2 staup! Geri aðrir betur. Eftir það fórum við á Rossopomodoro þar sem við fengum allt of mikið og gott að borða. Vorum afvelta og rúlluðum eftir það niður Laugavegninn og enduðum á Pravda það sem lýðurinn átti ekki orð til að lýsa ánægju sinni með þann stað. "Frjálslynda" myndin á veggnum þar gerði sína lukku. Þar tjúttuðum við frameftir nóttu og mættum síðan galvösk á Kaffi Reykjavík daginn eftir þar sem dagskráin hófst að alvöru með fyrirlestri prófessors nokkurs úr HÍ. Hann var mjöööög "hress" með bjór í hönd og byrjaði á því að fara út um víðan völl og frekar út fyrir efnið sem hann var fenginn til þess að ræða um. Kristín sló því á það ráð að taka "breik" frekar snemma og ýtti herra prófessor aftur á sporið. Eftir það vou spurningar og svör. Hádegisverðurinn var mjög fínn, hlaðborð á Kaffi Reykjavík (sem er NB orðinn hinn glæsilegasti staður) og svo tók við hópavinna þar sem við ræddum norræna samvinnu ýtarlega. Klukkan 16 var ferðinni heitið í Bláa lónið. Kristín stóð sig með stakri príði í að vera leiðsögumaður með fóninn og sýndi þeim helstu pósta Reykjavíkur. Eftir spa-ferðina í lónið fór rútan með okkur heim til mín og minna á Dalbrautina í Grindavík þar sem við tók dinner a la mamma. Fólkið átti vart orð yfir að lýsa ánægju sinni í þetta skiptið á matseld móður minnar og ég er búin að lofa að senda öllu liðinu uppskrift af humarsúpunni. Eftir að hafa borðað 3ja rétta máltíð heima hjá mér, drukkið marga marga bjóra og tjattjað og skemmt okkur lá leiðin hjá liðinu aftur í bæinn og það kom ekkert annað til greina hjá þeim en að fara aftur á staðinn með "frjálslyndu" myndinni. Stúlka varð hins vegar eftir og ákvað að heilsa upp á bæjarbúa sína í Festi þar sem hin árlega samkoma þorpsins var haldin. Gaman var það og átti ég nokkar mjög skemmtilegar umræður við nokkra mjög skemmtilega einstaklinga.
Sunnudaguinn hófst svo klukkan 10 á Kaffi Reykjavík í pallborðsumræðum. Til okkar komu Magnús Þór Hafsteinsson og Eiríkur Bergmann og ræddu þeir Norræna samvinni og framtíð hennar auk þess að koma all verulega inn á ESB, enda Eiríkur okkar helsti sérfræðingur í þeim málum ásamt auðvitað mínum ágæta kennara Baldri Þórhallssyni.

Það er frá svo ótrúlega miklu að segja en ég verð að láta þetta gott heita í bili vegna þess að ég er að fara í skólann. Eftir annasama og lærdómslausa helgi er að nógu að taka núna í náminu.
úffpúff

fimmtudagur, september 23

Fékk þennan DREP-FYNDNA frá Elísu Maríu

Eldri maður giftist mun yngri konu og voru þau mjög ástfangin.
Gallinn var þó sá að hversu mikið sem þau reyndu gat maðurinn ekki veittspúsu sinni fullnægingu í rúminu.
Ákváðu þau því að leita til læknis. Sá hafði ráð undir rifi hverju ogeftir að hafa hlustað á söguna ráðlagði hann þeim að ráða til sín ungan og glæsilegan mann. "Á meðan þið njótið ásta skuluð þið fá hann til þess að veifa handklæðiyfir ykkur. Ímyndunarafl konunnar ætti þannig að fara á fullt og hún ætti að fásterka fullnægingu." Hjónin ákváðu að reyna þetta og réðu til sín fjallmyndarlegan og vöðvastæltan mann til að veifa handklæðinu. Þrátt fyrir það gekk henni ekkert betur að fá fullnægingu. Þau ákváðu því að tala aftur við lækninn. Hann ráðlagði þeim að skipta umhlutverk. "Nú skuluð þið fá unga manninn til að nóta ástar með konunni á meðan þúveifar handklæðinu," sagði hann við gamla manninn. Aftur ákváðu þau að fara að ráðum læknisins og fór ungi maðurinn í rúmiðmeð konunni á meðan sá gamli sá um handklæðið. Ekki leið á löngu þar til konan fékk gríðarlegar fullnægingar, aftur ogaftur svo herbergið lék á reiðiskjálfi.
Þegar þau höfðu lokið sér af leit sá gamli brosandi á unga manninn."Þarna sérðu," sagði hann sigri hrósandi. "Það er SVONA sem maður á aðveifa handklæði."

Þetta er svoooooo fyndið!! eru þetta menn yfir höfuð eða bara eldri menn???

miðvikudagur, september 22

Prófessorar, þingmenn & ráðherrar................
Elska þetta fólk. Svo viljugt.
Elska líka þegar maður er búin að vera að reyna við eitthvað eins og rjúpan við steininn...............og svo allt í einu gengur það!! Bling bling, smellur eins og flís við rass!
Já ég skal svo segja ykkur það! Hlutirnir eru að ganga upp hér á bæ, þetta er allt saman að reddast.

mánudagur, september 20

Mánudagur aftur.
Helgin leið á ljóshraða. Kristín tók harkalega á næturlífi borgarinnar og var í ölþambi a la Ung frjálslynd á föstudeginum og tók svo sangríu-drykkju hjá Bryndísi sem Védís sá um að blanda af stakri snilld. Eftir "mixið" á Sangría og Bompay gini lá leiðin á öldurhús bæjarins og var ferðinni heitið á nokkra "misheita" staði. Klukkan rúmlega 6 gafst Kristín upp og hélt heim á leið í kotið sitt. Mikið var sunnudagurinn erfiður enda stúlka ekki vön að taka svona svakalega á því tvo daga í röð. Mánudagurinn er hafinn og ný BUSY vika framundan þar sem við erum í óðaönn að undirbúa seminarið góða. Við frjálslyndapakkið á Norðurlöndunum munum koma við í Bláa lóninu á laugardaginn þar sem verður endað í hlaðborði hjá gestrisnum foreldrum Kristínar. (þessar elskur). Nú er ekki um annað ræða en að fara að halda áfram að skipuleggja sig á milli þess sem stúlka reynir að koma lestrinum í námsbókunum á skrið. Gengur misvel.
Hasta la vista!!...............það er ekki annað að sjá en sangrían hafi skilið eftir spánskt ívaf í minni..................

fimmtudagur, september 16

ÉG Í DAG..................
Spakmæli a la Kristín:

* Andartakst skortur á umburðarlyndi getur kostað ævilanga iðrun.

* Þú skalt ekki ala orma sem nagað geta þín eigin innyfli.

Gott að hafa svona málshætti og spakmæli annars lagið á bak við eyrun..........bæði.

þriðjudagur, september 14

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ SIGGI BRÓÐIR!!
Já hann Siggi Þór bróðir er 27 ára í dag. Ég hringdi í kall í morgun og minnti hann á að hann ætti afmæli. Hann vissi það alveg. En hvað vill drengur í afmælisgjöf??
Hávaxin, ljóshærð, stór brjóst, stinnur rass, blá augu, falleg á hörund, smá "tan", háskóla-stúdína, skemmir ekki ef að hún er búin að læra eitthvað sniðugt, barnlaus og dugleg. Má eiga flottan bíl og fallega íbúð. Einhver sem passar við þessa líkingu má hafa samband við mig :)
Hún má svo koma með sellófón og bleikan borða.
Gott væri ef ég gæti fært honum hana áður en 14.september tekur enda. Stúlkur, þið hafið fram á miðnætti!!

P.S. um er að ræða mikinn feng.

mánudagur, september 13

ÖRSTUTT SLÖKUN & TJÚTT
Stúlka er búin að vera busy as hell undanfarna daga og hefur rétt náð að kasta mæðunni. Stúdentadagurinn tókst mjög vel og Vökuliðar duglegir við að svara kalli Kristínar um aðstoð við hitt og þetta. (takk elskurnar). Eftir að dagskrá lauk á föstudaginn þar sem stúdentar HÍ hámuðu í sig pylsur og skoluðu ýmist niður með kóki eða bjór í boði Vífilfells, brunaði Kristín á Avis bílnum upp í Efstaleiti á RÚV þar sem hún tjáði sig um efni fyrirlestrar síns daginn eftir. Mikið stress var í gangi enda stúlka ekkert búin að ná að einbeita sér að fyrirlestrinum vegna anna við störf Stúdentaráðs. Hún hafði sig þó í það að vakna tvo morgna klukkan 6 til þess að lesa heimildir. Síðan sá hún fram á að þurfa að eyða föstudagskvöldinu í að klára framsöguna um mannréttindin þannig að hún sá sig knúna til þess að skrá sig úr vísindaferðinni (fyrstu þessa vetrar) sem hún var búin að láta sig hlakka til að fara í. Kvöldinu eyddi hún í staðinn fyrir framan tölvuna þar sem hún setti herlegheitin upp í powerpoint. Laugardagurinn hófst svo klukkan 6 aftur, þriðja daginn í röð og setti Kristín lokahönd á verkið. Um klukkan 15.30 upplýsti ég áhugasama um skerðingu mannréttinda víða í heiminum eftir 11.september 2001. Framsagan gekk vel, það vel að vinstri-forsprakkinn, Ögmundur Jónasson hrósaði sérstaklega, en hann var einn af framsögumönnum líka. Nokkra tonna fargi var létt af Kristínu og fagnaði hún ákaft um kvöldið. Fór í afmæli til Sigrúnar, ársveislu á Pravda og endaði í partý í Grindavík, rölti heim til múttu og karls klukkan 10 á sunnudagsmorgun, svo mikið var fjörið enda Grindvíkingar ekki þekktir fyrir rólegheit. Nú er þessi örstutta slökun á enda og við tekur lestur og aftur lestur um samvinnu Evrópubúa, vandamál 3ja heimsins og forsetakosningarnar í USA. Seminarið góða er framundan þar sem ungt frjálslynt fólk mun taka á móti svipuðu gengi frá Skandinavíu. Mikil skipulagning því framundan...........aftur.........

mánudagur, september 6

www.toothsmith.blogspot.com

Þetta er konan sem átti söguna "Er ég blind?". Ég vil ekki vera að stela sögum en ég vissi ekkert hvaðan þetta kom upphaflega, enda margir búnir að copy-a þetta inn á bloggið sitt. Bara fyndið as hell og must að lesa!
Hér hafið þér slóðina.

sunnudagur, september 5

Motto to live by

Hún Erla mín Ósk í USA sendi mér þetta skemmtilega mottó.........

"Life should NOT be a journey to the grave with the intention of arriving safely in an attractive and well-preserved body, but rather to skid in sideways, champagne in one hand - strawberries in the other, body thoroughly used up, totally worn out and screaming WOO HOO - What a Ride!"

...........nokkuð til í þessu.

miðvikudagur, september 1

ég grét og grét......................þetta er svoooooooo fyndið!!

laugardagur, ágúst 07, 2004
Er ég blind???????

....Nei, ég er ekki blind, en stundum tek ég upp á skrítnum hlutum eins og til dæmis á föstudaginn þegar ég var búin að vinna.....mamma hafði komið til mín í vinnuna til að skila plast-geisla sverðinu sem Þorsteinn sonur minn (5ára) hafði gleymt heima hjá henni kvöldinu áður. Þetta er svona hvítt plast sverð, en samt eins og stafur í laginu... Ég var sem sagt að fara úr vinnunni í ansi góðu skapi, þarf að ganga niður 3 hæðir, (nema þegar ég er sérstaklega löt þá tek ég lyftuna) Ég lokaði hurðinni að vinnunni minni sveiflandi sverðinu og byrjaði að ganga niður stigann og í einhverjum andsk... fíflagangi fór eg að leika blinda manneskju, rétti aðra höndina fram með geislasverðinu góða og þóttist vera að fikra mig niður stigann, ég átti ekki von á því að nokkur myndi sjá mig svona enda heyrir maður alveg ef einhver annar er að labba stigaganginn....eða hvað ??? Ég hef heyrn eins og fálki....en eitthvað klikkaði illilega hjá mér og heyrn minni þarna. Ég var svo niðursokkin í blindraleik mínum að ég tók ekki eftir konu og unglingsstúlku sem mættu mér í stiganum, og þar sem ég er að fikra mig niður með sverðinu sé ég að konan gefur unglingsstúlkunni fast olnboga skot og gefur henni eitthvað merki. Hvað átti ég að gera ? átti eg að láta sem ekkert væri og spretta niður stigann..... eða átti ég að halda upptekknum hætti og leika blindu manneskjuna fram hjá þeim ??? Auðvitað hefði ég átt að brosa framan í þær og segja eitthvað á þessa leið: "æ. fyrirgefið þið, ég er að ath. hvort það sé óhætt að hleypa blindri vinnkonu minni hér niður"...bla...bla...bla.... en nei, hvað gerir vitlaus 42 ára gömul kona eins og ég ???.... nú ég held áfram að fikra mig niður með sverðinu og vona bara í lengstu lög að þær verði fljótar framhjá mér. Þegar ég er rétt að komast framhjá þeim finn ég mér til mikkillar skelfingar að tekið er þéttingsfast undir hendurnar á mér...já ég sagði hendur. Þær tóku sér stöðu sitthvoru megin við mig og sú eldri sagði "Við skulum fylgja þér niður" Oh... my... god....svo hófst leikurinn, "trappa"..."trappa"..."trappa"...þetta þuldu þær alla leiðina niður þessar 3 hæðir. Þegar við komum niður þakkaði ég þeim fyrir og staulaðist af stað veifandi geislasverðinu í allar áttir ( reyndi eftir fremsta megni að leika þetta vel) eitthvað fannst þeim ég vera klaufsk og áður en ég vissi var sú eldri komin að mér aftur og heimtaði að leiða mig alla leiðina út á götu, ég reyndi að afþakka en hún bara var þrjóskari en andskotinn og gaf sig ekki,hún opnaði millihurðina (það eru sko tvær hurðir til að komast út) og þegar við vorum komnar að aðal-útidyrahurðinni mæti ég afgreiðslustráknum í verslun sem er á neðstu hæðinni, hann horfði á mig með undrunnarsvip, heilsaði og spurði hvað væri að mér. Þá snéri sú sem var að fylgja mér sér að honum og hreytti í hann: hvað er að henni?... hvað er að þér ?sérðu ekki að hún er blind ?! ég laumaðist til að kíkja á úrið mitt og sá mér til mikillar skelfingar að ég átti að sækja Þorstein á leikskólann eftir 7 mín. Ég snéri mér að konunni horfði samt framhjá henni , svona eins og blind og hreyfði höfuðið til hliðana eins og hann væri taktmælir á hægri stillingu ( hef séð blinda vísnaflautuleikarann gera svona) og sagði: "yndis-þakkir fyrir hjálpina, ég redda mér núna" Hún svaraði : "ekkert að þakka, gangi þér vel". Svo staulaðist ég út með geislasverðið hans Þorsteins og beið eftir að konan mundi láta sig hverfa upp stigann. Nei......... konan lét sig ekki hverfa, hún stóð þarna úti og seilaðist ofan í veskið sitt, tók upp sígarettupakka og kveikti sér í einni rettu. Hvað átti ég nú að gera ? ég var orðin of sein að sækja Þorstein. Andskotinn sjálfur.... ég mátti ekkert vera að þessu, hver hafði líkað beðið þessa kellu að skipta sér að mér, ég opnaði bílinn henti geislasverðinu aftur í og keyrði í burtu. Ég mun ekki reyna að lýsa svip konunnar þegar hún horfði á eftir mér.
Brjálað að gera.
Er með mjúsík band to redd.
Máiggi ver´aðissu.
Update coming l8ter.

sunnudagur, ágúst 29

FLUTT AFTUR Í 101
Núna er stúlka að leggja af stað í Reykjavíkurborg og ætla ég að koma draslinu mínu þar fyrir. Líður senn að námstíma og herlegheitin byrja. Hlakka til.
Vökuferðin í Árnes var ljúf................mjög ljúf. Eigum við eitthvað að ræða það frekar?

fimmtudagur, ágúst 26

....................þoli ekki fólk sem fattar ekki að halda sig hægra megin þegar það er að keyra á tvöfaldri akbraut..................

......................elska fólk sem hefur vit á því að halda sig hægra megin ef það er á 70 km á klst.................

Þetta var það sem ég spáði í dag þegar ég fór í Reykjavík :)

Punktur..

þriðjudagur, ágúst 24

DAYS OF MY LIFE
Stúlkan er að vinna sinn síðasta dag í FLE í kvöld. Gladdi hún hjarta vinnufélaganna þegar hún kom færandi hendi með tvær kökur, gulrótar-, og hrísköku. Þetta er orðin hefð hjá minni og flestir komnir með matar- og köku ást á mér hérna...........sem er gott. Kristín er farin að telja niður dagana í skólann en má ég svo sem ekkert vera að því að sinna honum í byrjun frekar en fyrri daginn. Undirbúningur nýnemaviku og stúdentadags er í algleymingi og mikið að gerast. Framundan er haustferð Vöku og ef ég þekki mitt fólk rétt þá er eintóm gleði sem bíður mín þar. Mér er farið að þykja bjórinn ótæpilega góður og bíð í ofvæni eftir því að komast í vísóferðirnar sem hún Eyrún Björk mun skipuleggja af sinni alkunnu snilld í vetur. Fundir á fundi ofan líka framundan og Kristín er farin að hugsa til jólanna............. jámm, jólanna. Þau eru minn tími.
Svo fagna ég Clinton ex US pres og vona að honum hafi þótt SS pylsan á Bæjarins bestu góð...........U go guy!

sunnudagur, ágúst 22

BESTA HELGI SUMARSINS
Var án nokkurs vafa helgin sem leið (ásamt Þórsmörk). Ljúft var veðrið og skemmtilegt fólkið. Kristó og Heiða elduðu þennan dýryndis mat á föstudag og bjórinn alltaf góður. Fékk auk þess gistingu tvær nætur. Skelli mér ásamt fríðu föruneyti stjórnmálafræðinema að borða á Rossopomodoro á lau . Kristín var í öllu öðru en glamúrfíling og eftir að hafa tekið jómfrúarferð í nýju skónum á föstudagskvöldið ákvað stúlka að skella sér í puma skóna. Ekki sá ég eftir því enda horfði fólk á mig öfundaraugum þegar líða tók á nóttina. Ég var mjög sportí þetta menningarkvöld og hefði frekar átt að halda mig bara utandyra í útilegustuði þegar ég gekk um gólfið á REX í strigaskóm, gallabuxum og 66 north peysu! Jú hún Anna Steinunn dró mig þangað og hittum við þessa ágætu drengi þar sem þeir vippuðu okkur með sér bakdyramegin, enda ógerlegt að bíða í þessum endalausu troðningsröðum! Fólkið var vægast sagt uppdressað og tilhaft, eins og klippt út úr tískublaði. Ég mun gera aðra tilraun þarna seinna, og mun bæta þeim áhorfið á "the icelandic naturepiece" í það skiptið, enda ekki óálitlegir piltar þar á ferð.........já þetta skrifa ég eftir að hafa fengið mest út úr leikum EGO þetta menningarkvöld, ég er komin með þá í enn meira uppáhald.............var komin í kotið hennar Heiðu minnar um sex leitið og vöknuð um tvö með skötuhjúunum, við tók morgunmatur og áhorf á Notting hill! Takk allir fyrir góða helgi og skemmtilegt menningarkvöld. Thanx EGO fyrir endurkomuna.
Made the night.

laugardagur, ágúst 21

Söngfuglinn Védís.................

.............Já hún Védís a.k.a Veddarinn vann ljósalagskeppnina í gærkveldi. Bryndísa skvísa tjáði mér að einstök gleði hafi ríkt í húsi Stapans þegar úrslit voru kynnt. Lagið er með eindæmum gott og textinn ekki síðri. Óska ég hér með Védísi til lukku með sigurinn og má hún vel við una þessi snót enda heiðurinn mikill.

föstudagur, ágúst 20

GLEÐI
.................framundan hjá stúlku. Laus við dauða og djöful hjá Hannesi Hólmsteini (eða vona það alla vegana) Mikið var ljúft að ganga út úr Árnagarði vitandi að nú mun ég halda áhyggjulaus út á næturlíf borgarinnar bæði föstudag og laugardag. Matarboð hjá minni ástkæru Heiðu og svo er partýboð hjá Deigluliðum. Út að borða á laugardaginn með nördunum í fræðinni og hlakka ég mikið til að hitta þessa vitleysinga enda gaman að ræða allt milli himins og jarðar við þessar elskur.

Bendi á nýjan línk þar sem snillinn Steini Gunn fer mikinn í auglýsingunum! Verðið að tékka hann út!

Svo vil ég hvetja fólk til þess að fara á www.tonlist.is og kjósa ljósalagið. Ég er búin að hlusta á þetta allt saman og finnst hún Védís skara framúr. Hvet líka fólk einmitt til þess að kjósa hennar lag.......... :)

Þangað til næst...................
In case I don´t see you:
Good morning, good evening and good night.

fimmtudagur, ágúst 19

Snillingar númer 1...............
...............Eftir að hafa séð þáttinn áðan með vitleysingunum í 70 mínútum þá áttaði ég mig á því að ég var að svíkja þá verulega að láta þá ekki fá link líka.
Þeir eru BARA fyndnir....................en ekki með heimasíðu nema popptíví og þangað ætla ég ekki að linka svo lengi sem jafn ömurlegir þættir og sá sem Heiðar Austmann og Anna eru með. Sorry, hann er bara ekki að gera sig. Vona að ég hafi engan sært.

laugardagur, ágúst 14

"Sólin kemur upp í austri og sest í vestri.................og svo kemur hún aftur upp í vestri og sest í austri. Þetta eru svona háskólapælingar."

Datt þessi auglýsing í hug þegar ég var að ímynda mér sólina vera að koma upp núna. Náunginn er snillingur! Klukkan er að verða fimm og næturvakt að ljúka. Kristín er óðum að jafna sig á sólarexeminu eða hvað þetta nú kann að vera. Helgartörn senn á enda og stúlkan verður að fara að keppa við tímann í próflestri. Djöfulsins sumarpróf! Arrrgg.......................

Hvað finnst fólki annars um lögleiðingu kannabisefna? Hefur einhver pælt í því?

Bara svona háskólapæling hjá mér,*hóst* ;)
læt þetta gott heita í bili.

SÓLAREXEM
Dagurinn var ágætur framan af. Lá í sólbaði bakvið hús og REYNDI að lesa. Gekk frekar illa. Áður en ég fór í vinnuna (á næturvakt) þá tók ég eftir roða á höndunum. Fannst það skrítið en kippti mér ekki upp við það. Vön að harka af mér :) En síðan fór þetta að versna og núna er ég komin með heljarinnar útbort á hendur og bringu. Dettur sólarexem í hug. Mér er farið að svíða.

Annars voru tíðindin þau að Bollinn fékk Heimdallinn. Til lykke með það!

fimmtudagur, ágúst 12

SÓL, SANGRÍA OG GRILL........
Síðustu tveir dagar eru búnir að vera hinir dásamlegustu. Hvað er betra en að vera í fríi í svona veðri? Nýtti reyndar ekkert sérlega vel miðvikudaginn og fór í borgina með Sigga bró. Hann til doksa og mín á fund ( en ekki hvað?) Varð auðvitað að koma við í Holtagörðum og keypti mér ljós limegræn handklæði og þvottapoka. Rölti svo yfir í IKEA og keypti þar græna púða og grænan blómapott (sem ég hef hugsað mér að nota fyrir annað en blóm)

Dagurinn í dag var fullkominn. Skellti mér í göngutúr með Gutta niður í fjöru í hitanum og hann tók nokkra spretti þar. Kom svo heim og fór með Leon Inga frænda (4ára) og Ólafíu frænku (2ja ára) í heita pottinn og dunduðum við okkur þar í tæpa tvo tíma. Kristín var með góða sólarvörn og tók nánast engan lit. Eftir það lagðist ég bak við hús og rotaðist þar í smá tíma. Mamma kom svo og veitti mér hinn besta félagsskap eins og alltaf. Svo hringdi Sunshine og plottuðum við grill.

Grilluðum kjúlla í BBQ og Sunna mixaði geggjað salat og að ógleymdri sangría a la Spania. Drukkum, borðuðum og spjölluðum ásamt Sirry, Stebba og Eygló. Kristín tók með sér sitthvað úr átvr en kom með allt til baka. Sangrían var alveg að gera sig......

Takk öll fyrir góða daga :)

þriðjudagur, ágúst 10

SPIDER-GIRL
Ákvað að sýna Sigga bróðir og mömmu í gær að ég væri alls ekki hrædd við köngulær. Hef aldrei verið það. Ef að ég sé þær einhvers staðar þar sem þær eru á vappi þá tek ég þær upp með höndunum og fleygji þeim út. Geri það sama við hrossaflugur. En nóg um "híróstæla". Í gær kallaði Siggi bróðir á mig og mömmu inn í herbergi. Fyrir utan gluggan hékk stærsta könguló sem ég hef á ævi minni séð! Þá á ég að sjálfsögðu við hérna á klakanum og með berum augum. Hún var, án gríns, á stærð við stóra randaflugu. Eftir að Kristín var búin að státa sig af non-hræðslu sinni við köngulær var ég búin að láta mana mig upp í að fara út og taka hana með berum höndum og fleygja henni í burtu. Kristín fer út, u.þ.b. klukkan 12 á miðnætti. Fer á bakvið hús þar sem glugginn var. Fyrir innan biðu Siggi og mamma spennt yfir þessu bjánauppátæki okkar Sigga. Kristín stillti sér fyrir framan gluggann en þá var köngulóin svo hátt uppi að ég náði ekki! Dó ekki ráðalaus enda mjög snjöll stúlka á ferð. Náði mér í stiga og klifraði upp.......................Þá var komið að þessu. Hún var meira að segja MUN ógeðslegri, enda sá ég framan á hana núna. Ég ákvað að pota fyrst í hana með puttanum og á leið minni að henni þá stöðvaðist vísifingur í þessum líka köngulóarvef! Ojbara. Ég fékk hálfgerðan straum og kippti hendinni til baka. Þá kallaði mamma í gegnum gluggan að ég skildi ná í barnaskófluna bakvið hús og taka hana bara með henni. Ég hugsaði mig tvisvar um enda var ég við það að gugna á þessari áskorun. Ég sá það fyrir mér að ég myndi, á leið minni að kvikindinu, festast í vefnum og að köngulóin myndi bíta mig. Ég ákvað að skella mér á barnaskófluna. Þegar ég er komin með hana í hönd og tilbúin til atlögu, þá tók það bara helvítis tíma að komast í gegnum þennan járnvef hennar! Ég náði henni eftir smá stund í skófluna, henti henni frá mér og hljóp inn.
Hetjan hún Kristín.

mánudagur, ágúst 9

Hlakka til að byrja í skólanum og hitta hina stjórnmála-"þínkjandi" gúrúin. Annars erum við að fara að hittast 21.ágúst á Menningarnótt og snæða saman á Rossopomodoro. 12 dagar til stefnu. Þeir eiga eftir að líða hratt.

Frekar svekkt yfir því að hafa misst af seinnihluta framhaldsmyndar mánaðarins. Sunna Sweet tók hana upp fyrir mig en tókst svo að drekkja spólunni. Vikaði ekki...................eftir sólarhring á ofninum! Magnað.

laugardagur, ágúst 7

Mr Thorodsen

Já, núna stendur yfir kosningabarátta um næsta formann Heimdallar. Í fyrra voru einhver klíkuleiðindi og frekar mikil skítalykt af því máli. Nú berjast um sætið þau Helga Árnadóttir og Bolli Thorodsen. Ég þekki Bolla ögn í gegnum Vöku og þar er bara nettur gæji á ferð. Ferlega næs og skemmtilegur drengur. (meira að segja bindindiskall) Veit ekkert um Helgu en finnst einhvern veginn nóg bara að heyra í henni og sjá til þess að fíla hana ekki.

Þó mér finnist ekkert sérlega mikið til Sjálfstæðisflokksins koma þá er Bolli fínn gaur. Finnst að þeir sem að eru að fara að kjósa á annað borð þarna í "dallinum" ættu nú að X-a við kauða.

Já, og annað.................þær stúlkur þarna í Heimdalli eru eitthvað á móti jafnréttislögunum og eru á sama tíma að halda því á lofti að það hefur einungis ein kona verð formaður Heimdallar í 77 ár. Ef þær eru að reyna að hreppa embættið út á það þá eru það hrein öfugmæli.

föstudagur, ágúst 6

MÆLSKUR

"...................they never stop thinking about new ways to harm our countries and people........and neither do we."

Snillingur þessi Bush.
Tvær vikur í sumarprófið og Kristín svo sannarlega ekki búin að vera að liggja yfir bókunum. Ég gerði mér það í hugarlund í vor þegar ég þurfti að fara í upptökupróf í stjórnmálaheimspekinni að það yrði sko ekkert mál að lesa í sumar. Nógur tími. Það er einfaldlega ekki að smella saman hjá mér, vera að vinna og reyna að njóta sumarsins og þurfa á sama tíma að vera lesa eitthvað krapp eftir Hólmsteininn. Ég er bara LAZY þetta sumarið.

............... If I were any lazier, I'd slip into a coma!

fimmtudagur, ágúst 5

"En skýtur það ekki skökku við að ætla að slá aðsóknarmet og geta ekki boðið þá þjónustu sem viðskiptavinurinn vill?"

"Ég skil bara ekki spurninguna."

Þórey Vilhjálms að taka símaviðtal við Eggert Magnússon formann KSÍ. Mikið varð Didda hissa þegar maður í hans stöðu skildi ekki einföldustu spurningu. Ef þú heyrir ekki spurninguna þá er allt í lagi að biðja um endurtekningu. Eða ef að þú getur ekki svarað fyrir þig. En ekki þykjast ekki skilja! Það kemur bara illa út.

Annars langaði mig frekar mikið að fara á þennan vináttulandsleik við mammónana frá Ítalíu. En það er bara laust í stæði. Það finnst mér ekki nógu gott.

Hvað er svo málið með Eggert að vera alltaf að miða við Metalicu tónleikana? "Fyrst það fóru 18.000 á þá tónleika þá hljóta að koma jafn margir á fótboltaleikinn." djí. Kannski örlítið öðruvísi stemmning. Og þá er ég alls ekki að gera lítið úr fótboltastemmningunni. Í Metalicu eiga margir Íslendingar átrúnaðargoðin sín...................okei, kannski líka í íslenska landsliðinu.
Eiður Smári.

mánudagur, ágúst 2

Það er hollt og gott að hlægja. Besta sem ég veit um er að vera innan um fólk sem fær mig til þess. Ef fyndið fólk er ekki til staðar þá er alltaf hægt að redda sér. Horfði á Dumb & Dumber og Ace Ventura í dag. Þær skiluðu tilætluðum tilgangi.

sunnudagur, ágúst 1

Var að fá tilkynningu um að ég hefði verið skráð á póstlista SUS.

Gaman að þessu.
Neðanbeltishúmor er mér að skapi.
Dansfílingurinn er eitthvað að dala miðað við veðrið þessa stundina. Ausandi rigning og SLAGveður. Það er núna ósk mín að það taki stakkaskiptum. Rokið (c.a 25m/sek) æltar kofann um koll að keyra og rigningin er óbærileg. Vona að það sé betra úti í Eyjum.

laugardagur, júlí 31

Skellti mér í undercover downtown-trip í dag. Fékk að skjótast úr vinnunni á milli véla og kom við í fullorðinsdrykkjarbúðinni. Perpearing for sunday girlsnight out.............náði mér í fagurgrænan hlýrabol í undirkjólastíl og míni gallapils hjá Rúnu í Galleri. Lite bjórinn og blush-ið verða við hönd og góð tónlist. Það verður án efa raulað með "dip it low" sem er nýjasti slagarinn sem tekið hefur ástfóstri við musicmind stúlkunnar. Englar Kalla eru að undirbúa food-drink-music night annað kvöld. Didda er óðum að komast í dansfílinginn.

"Dip it low
Pick it up slow
Roll it all around
Poke it out like your back broke
Pop pop pop that thing
Ima show you how to make your man say "Ooo"

fimmtudagur, júlí 29

Til hamingju með afmælið elsku bróðir!

Björn Óskar bróðir er 15 ára í dag og fær innilega afmæliskveðju frá mér. Þegar ég kem heim eftir vakt ætla ég að sýna snilli mína í eldamennsku og hræra saman í eitt stykki camenbert-rétt.

Stelpur athugið!

tékkið á þessu fyrir helgina. Very sniðugt.
http://www.batman.is/ut.php?id=64621

(Þoli ekki blogger fyrir að hafa breytt kerfinu og ekki lengur hægt að setja linka inn í texta. Stór mínus fyrir þetta)

.....óska hér með þeim sem leggja land undir fót um helgina góðrar ferðar. Ég vildi vera í fríi til þess að tjalda í rigningunni og berjast við að hæla niður tjaldið mitt sökum vindar. Gúmmítútturnar þrá að verða notaðar meira en einungis í Þórsmörk. Blautt og kalt. Það er gaman.

P.S. Þeir sem eiga leið um tvöföldu Reykjanesbrautina........passið ykkur við þrengingarnar. Það er víst varað við því. Þá spyr maður sig: Er brautin betri núna þegar vara þarf sérstaklega við ákveðnum hlutum eins og þrengingunum? Hvað um þá sem ekki heyra þær viðvaranir?

Vonandi að þeir lesi bloggið mitt.

miðvikudagur, júlí 28

.........já, enn eina ferðina er Kristín María að breyta um lúkk. Fannst hitt ekki nógu gott en mun sitja sátt við þetta í bili. Tókst að sofa 3 tíma í morgun eftir næturvaktarvörsluna í nótt. Uni ósátt við það enda þurfti ég að fara á fund í hádeginu í Reykjó og áttum við ágætan klukkutíma þar. Svaf svo fram eftir degi enda ekki hægt að argast yfir því í veðri sem þessu.

Bryddarinn minn á afmæli í dag og hefur stúlkan lifað 24 árin eins og didda. Sendi henni kossa og knús í gegnum símann áðan og fær hún hér síðbúna afmæliskveðju að hætti Kristínar:

Til hamingju með afmælið Bryndís mín...................hérna færðu nýtt blogglúkk frá mér til að skoða, njóttu

þriðjudagur, júlí 27

Það er dýrt að vera kona. Viðhaldskostnaður er meiri en á bíldruslu.

Er hallærislegt að ganga á milli húsa, banka upp á og safna á tombólu??

Málefnið : ÉG SJÁLF

sunnudagur, júlí 25

Kristín nirfill??
Já, það þarf sko stundum að segja manni til syndanna. Siggi bróðir gerði mér nokkuð ljóst þegar við fórum út á videoleigu til að taka einhverja mynd að glápa á þetta sunnudagskvöld.  Þannig var málið að þegar við erum komin út í bíl þá segji ég (í djóki) "þú borgar, er það ekki?" Þetta var sko mín hugmynd að taka spólu. Þá horfir hann á mig glottandi og segir, "nei, nei".
"Ókei" segi ég, "þú kaupir þá bara nammið, er það ekki?" Þegar við vorum búin á leigunni, þar sem Kristín borgaði 500 kr fyrir 2 spólur (nýja og gamla) brunuðum við í sjoppuna. "Hvað eigum við að kaupa?" Kristín hugsar sig um.........."hríspoka, djúpur og blandaðan lakkríspoka", ofan á þetta bættist  það sem Sigga langaði í, Leppinn, og stór nóakropp sem hann hugsaði handa mömmu og pabba.  Kristín kom svo við á leigunni aftur og keypti handa honum Maxi popp. Útgjöld ferðarinnar, Kristín = 640, Siggi = 1000>. Eftir þessa ferð þá minnti Siggi mig á bíóferðina okkar, sem ég stakk upp á eitt sinn, ekki fyrir alls löngu. "Förum í bíó, ég skal borga." Þegar við vorum komin í bæinn vorum við bæði svöng og komum við í Smáralindinni þar sem við fengum okkur Pizza Hut. Eftir að Siggi hafði borgað hátt í þrjú þúsund krónur fórum við í bíóið þar sem Kristín framvísaði miða "tveir fyrir einn".

Mér varð ljóst í dag að ég get verið nirfill......................BARA þegar ég er með Sigga bróðir.

laugardagur, júlí 24

It´s a beautiful day!
Hitti grindvísku skvísurnar í gær og við höfðum það náðugt heima hjá Erlu perlu. Gunna fær 10 í einkunn fyrir Camenbert-réttinn sinn og súkkulaðikakan hennar Erlu var örugglega líka góð. Boðaði svo mikið af réttinum hennar Gunnu að það varð ekki pláss fyrir meira. Skemmtum okkur við það að rifja upp sögurnar í gamla daga! Alveg hreint frábært. Þegar við seldum hlaup í poka í kúlutjaldinu á Norðurvörinni og þegar við kysstum "franskan" í fyrsta skiptið, and many more.......... Annars er Kristín búin að vera að njóta góða veðursins í dag og ætlar sér að komast í grillpartý stjórnmálafræðinema í kvöld. Hann Sæssi Rokk ætlar að vera svo almennilegur að bjóða genginu.
a piu tardi

miðvikudagur, júlí 21

Jarðaber, Da Vinci kaffi og pistachioshnetur standa uppúr í dag.  Góða veðrið eftir vinnu .........og svo auðvitað skemman góða sem Kristín fékk að njóta í allan dag.
Hvað er samt málið með að særa familíuna svona í þættinum áðan?? My big fat, jarí jarí jarí. Kristín táraðist samt með snúllunni.

laugardagur, júlí 17

DUUS OG BEER
Ég tók út væmnina fyrir árið í síðustu færslu. Ég get nebbla alveg verið væmin ef ég er hvött til þess. En sólin skín skært í Reykjanesbæ og víðar í dag. Við Sunshine ákváðum í gær að skella okkur á DUUS eftir vakt í kvöld og fá okkur einn eða tvo kalda. Vaktinni lýkur reyndar ekki fyrr en um 2.00 en það er í góðu. Ég krossa hér með fingurna og ætlast til þess að hver sá sem stjórnar veðrinu verði jafn örlátur við A vakt og hann er búinn að vera við B vakt. Svo er staffapartý á mánudag. Ekki leiðinlegt það.
Gullmolinn hennar Kristínar Maríu
Dagurinn byrjaði frekar rólega. Knús og klór við Gutta, sem er hundurinn á heimilinu. Hann er 1 og 1/2 árs og er algjör gullmoli. Þegar ég bjó í Reykjavík í vetur þá var það hann sem ég saknaði mest, og þegar ég kom í heimsókn í Grindavík þá var það fyrsta sem ég gerði var að klóra honum á maganum og knúsa hann í bak og fyrir. Kom alltaf fagnandi að manni og lagðist á bakið til að fá klór frá Diddu sinni, það er svo gott þegar maður er með svona langar neglur! Ég elska þennan hund út af lífinu og ég var einmitt að hugsa það um daginn þegar ég fór með hann niður í Bót til að leyfa honum að hlaupa, hvað lifið væri sko ekki eins án hans. Svo í dag gerðist merkilegur atburður.  Ég var að spjalla við Kobba (14 ára dísapáfagauk) á milli þess sem ég var að sýna Gutta mínum athygli. Allt í einu heyri ég einhvert skrítið hljóð frá honum inni í eldhúsi. Þar stóð hann í bælinu sínu og kúgaðist. Ég hugsaði að þarna væri bara um hreinsun að ræða,enda er þetta eitt af því sem kettir og hundar gera, borða gras til að kasta því upp. Ég hugsaði að þetta væri bara eitt af þeim tilfellum enda hafði Gutti gert þetta einhvern tímann áður. Ég fór því út úr eldhúsinu og kláraði að hafa mig til í vinnuna. Aftur heyri ég hljóð sem var mun undarlegra en hitt, innan úr eldhúsinu. Þegar ég kem inn í eldhús þá liggur gullmolinn minn á gólfinu og hristist allur, eitthvað furðulegt krampakast. Kristín fékk áfall og kallaði á múttu sína sem kom í hvelli. Ég var viss um að eitthvað stæði í honum og að nú væri hann að kafna greyið. Mamma náði í sleif til að reyna að opna öndunarveginn, en hann var með svo mikinn krampa að hann beit í puttann á henni og blóð fossaði út um allt. Stuttu síðar hættir hann að skjálfa og hrökklast eitthvað í burtu frá okkur og fer að urra og gelta. Eitthvað sem hann hefur aldrei áður gert. Þarna hélt ég að litla greyið væri kominn með hundaæði. Við urðum öll skíthrædd við hann og á endanum fór hann inn í herbergið mitt og við lokuðum því á meðan við hringdum í dýralækni. Ég ætla ekki að útskýra meira í smáatriðum. Mamma fékk stífkrampasprautu vegna hundbitsins (N.B. þá beit hann hana ómeðvitað) Gutti fékk mjög sennilega flogakast og eiga þeir það því sameiginlegt með mannfólkinu. Ástæðan fyrir því að hann urraði á okkur var sennilega vegna þess að hann var að vakna úr "tranzi" sem hann man ekkert eftir. Núna er ég að vinna og get ekki beðið eftir að komast heim til að heimsækja greyið sjúklinginn á heimilinu. Ég er búin að hringja heim tvisvar í dag til að tékka á Gutta og mömmu og heilsast þeim eftir atvikum vel. Nú er bara að bíða og vona að þetta tilfelli í dag verði það eina í lífi Gutta míns enda ekki löng ævi þessara yndislegu dýra sem gjarnan eru nefnd BESTI VINUR MANNSINS
Tryggðin, vitið, traustið, blíðan
táknar feril þinn. Birtu færir,
bætir líðan besti vinur minn.
 

föstudagur, júlí 16

FRK KARÍUS
Stúlka er farin að borða óhemju mikið af nammi...........því harðari sem hún er á átaki því meira nammi er innbirgt.  Tollarar landsins hrúgast heim af sólarströnd og á sama tíma risaumbúðir af m&m ofl. Þessar elskur. 1 og 1/2 tími þangað til skvísa á að vera mætt í FLE og sit núna í náttfötum með úfið hár.........3ja daga kvöldvakt framundan. Í góðu þar sem  sólargeislinn minn er mætt aftur á vaktina eftir (ásamt öðru starfsfólki tollsins) 2ja vikna sumarfrí á Spáni. Welcome home Sunshine. Have missed you TROPPO!

fimmtudagur, júlí 15

"It´s raining again....oh no"
Jæja, lengsta vinnuvikan í sumar er núna rétt hálfnuð og gott mál það. Rigning úti og bara besta mál þar sem stúlka situr inni og bloggar milli þess sem hún hleypir handhöfum "requested passes" inn á þjónustusvæði FLE. Við Guðmundur Ingvar sitjum hér í góðu yfirlæti og rífumst um pólitík og horfum á þáttinn JAG. Gummi er grænn í pólitík eins og síðan mín og þakka ég mínu sæla að vera ekki hluti af þannig "grúbbu" on times like these.......but you learn to live again, eins og segir í laginu :)
pilsen

Hérna eru nýjar myndir síðan í Þórsmörk, ég fékk þær "lánaðar" hjá Guðmari og Bríet, vona að það sé í lagi :) Þórsmörk

fimmtudagur, júlí 8

Seeing death as the end of life is like seeing the horizon as the end of the ocean.
.....Hvað bíður okkar handan móðunnar miklu er ráðgáta ein. En ég trúi því að eftir okkar líf herna á jörðinni þá bíður okkar eitthvað annað og meira.

Elskuleg Jórunn er farin úr þessum heimi og ég er sannfærð um að það bíður hennar annað hlutverk núna. Ég bið góðan guð að halda verndarhendi yfir fjölskyldu hennar og fjölskyldu Jonna á þessum erfiðu tímum sem framundan eru. Guð blessi ykkur.

Kveðja
Þar sem englarnir syngja sefur þú.
Sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum,lifum í trú.
Að ljósið bjarta skæra.
Veki þig með sól að morgni.
Veki þig með sól að morgni.

Farðu í friði vinur minn kær.
Faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær.
Aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
Svo vöknum við með sól að morgni.


- Bubbi Morthens

miðvikudagur, júlí 7

ALOHA

Eftir þunga helgi, þar sem skýin drógu sig neðar en venjulega ætlar Didda að skella sér í útilegu ásamt sínum ástkæru samnemendum. Við erum mikið búin að þræta um það hvert skal fara og var upphaflega hugmyndin að skella sér í Þórsmörkina. Stuttu síðar frétti Kristín af Landsmóti á Sauðárkróki og varð viðhorfslaus......reyndi eins og rjúpan við steininn að kristna heilaþveigna stjórnmálafræðinema en allt kom fyrir ekki. Ég reyndi að segja þeim að Krossá myndi gleypa okkur og að það yrði rigning alla helgina þar, en þau sögðu bara að við þyrftum ekki að fara yfir ána til að fara á flottasta staðinn í mörkinni!! Hvað er fólk þá að pæla að vera að hætta lífi sínu ef að það er svo ekkert skárra handan árinnar?? Ég er ekki alveg að skilja. En Kristín hefur aldrei komið í Mörkina (heldur ekki á Sauðárkrók)þannig að ég sá fyrir mér tómt svæði á meðan allir skemmtu sér konunglega fyrir norðan í sól og blíðu. En Þórsmörk er vinsæll staður víst og alltaf eitthvað af fólki þar. Þetta verður vonandi ógleymanleg helgi og ég er fúl að hafa ekki lært fyrr á gítar!(eða á gítar yfir höfuð) Ég vil að Bubbalögin verði spiluð og mikið sungið! Ef einhver kann Bubba og fleira á gítar þá er hann velkominn með :)
until l8er

laugardagur, júlí 3

That´s me!


How to make a kristin maria
Ingredients:

5 parts competetiveness

1 part arrogance

3 parts ego
Method:
Stir together in a glass tumbler with a salted rim. Add a little curiosity if desired!

þriðjudagur, júní 29

Smá update!
Ekki mikið að gerast í lífinu hjá Kristínu Maríu núna. Bara vinna framundan og flutningur suður í Grindjánaborgina þar sem mín ætlar að hafa það náðugt í sumar. En Það mun allt gerast í haust að venju. Boston, Brussel og norðurlöndin svo fátt eitt sé nefnt. Ef eitthvað merkilegt fer að gerast þá mun ég með de samme koma með það á síðuna svo að þið sem nennið að lesa ruglið í mér skrælnið ekki af upplýsingaskorti :)

föstudagur, júní 25

LITLU KRÚTTIN!

það er eitthvað sem segir mér að þessi ljósmyndari hafi gripið inn í gang mála og bjargað ungunum og svo smellt mynd eftir á.........með alla unga nema einn í felum hjá sér. Ég er alltaf að sjá þessari dúllur trítla yfit götuna hérna í Vatnsmýrinni.

Annars er það að frétta hjá mér að ég er í helgarfríi og ætla að mála bæinn rauðan á morgun ásamt mínum ástkæru vökuliðum. Í kvöld ætla ég hins vegar að taka húsið hennar Kollu bollu og mála það rautt, þar sem við stjórnmálafræði - elítu - kjarninn ætlum að hittast og taka spil.........en ekki hvað? Hlakka alltaf jafnmikið til að hitta þessa vitleysinga og heyra hvaða spurning það verður í kvöld sem Addi mun svara rétt! Það skyldi þó ekki verða KONSÚLL??

Get´því miður ekki sett þessa mynd inn og verð því í staðinn að útskýra hana í máli. Þetta er andamamma með ungana sína á labbinu. (mynd 1) síðan er hún að fara að labba með ungana yfir holræsi þar sem götin eru stærri en ungarnir. (mynd 2) Á mynd 3 er andamamma komin yfir ræsið með aðeins einn unga og sést þar rýna ofan í holræsið!! Þetta er frekar fyndið. Ég er mikill dýravinur en eins og segir að ofan þá trúi ég ekki öðru en að myndin sé sviðsett..............ég vil allavegana bara trúa því!!

þriðjudagur, júní 22

Niðurstöður könnunarinnar

Ertu búin/nn að kynna þér málið með fangana á Guantanamo?

Votes
Já...................................... 42% 13
Nei.............. 16% 5
Hef ekki áhuga.................. 32% 10
Geri það á eftir..... 10% 3

31 votes total

Nokkuð sátt með það að fólk sé að kynna sér þetta mál. Þessi 32% sem ekki hafa áhuga ættu að hætta að safna límmiðum og fara að hafa áhuga á mikilvægari málum!!

Pís át

sunnudagur, júní 20

Lovlí frí framundan

Jæja þá fer þessi vakt að taka enda og Kristín María að komast í frí. Ég vona svo sannarlega miðað við veðrið núna að þetta lofi góðu og að það verði sól og blíða á morgun þegar ég vakna. Ég ætla að skella mér í göngu eða hlaup.......jafnvel hjólatúr um Ægissíðuna. Svo er skvísan að fara að flytja aftur til Grindavíkur í sumar ef að ég næ að framleigja íbúðina í júlí og ágúst. Þannig að ef þið vitið um einhvern sem vantar íbúð á 101 í tvo mánuði þá endilega látið mig vita. Ég ætla nebbla að reyna að spara í sumar og hver veit nema ég geti þá tekið skrans á ítalíu í september með honum Hrannari, mínum mjög svo góða vini í Köben. Við erum einmitt bæði með ítölsk gen og í raun hálfir Ítalir........ehhh, svona allt að því! Svo er námsferð til Brussel í október og allt kostar þetta sitt. Þannig að ég mun reyna allt sem ég get til þess að reyna að leigja íbúðina í sumar, eða þessa tvo mánuði. Langar líka til þess að eyða meiri tíma með fjölskyldu minni. Þessar elskur eru svo góðar við mig. Siggi bróðir hefur gert allt of mikið fyrir systur sína og er ég ennþá að reyna að finna upp á einhverju til þess að launa honum greiðann. Býð honum bara til útlandanna þegar ég vinn í lottó, sama dag og mín fer að taka þátt...........jæja, ætla að halda áfram að horfa á þessa "frábæru" mynd á stöð 2, Urban Legends
úúúhhúúú

laugardagur, júní 19


MUST READ!!
FRAMHALD.........
.........fannst þessi mynd kúl, sá hana á síðunni hjá Gunna Einars og stal henni þaðan :) Eitthvað bogið við hana..........

En áfram með ferðasöguna! Eftir að verslunarstjórinn var búinn að svara í símann og ég búin að útskýra mál mitt sættist hann á með herkjum að hringja í starfsmann á staðnum vegna þess að hann var staddur uppi í Mosó með lítið barn. Hann sagðist svo ætla að hringja í mig þegar hann væri búinn að ná í stelpuna. Kristín beið og beið og alltaf var taxinn að telja, þegar ég var búin að bíða í rúmar 10 mín þá ákvað ég að hringja aftur í verslunarstjórann (hrædd um að hann hefði bara sofnað) Þá svaraði hann ennþá meira grömpy en fyrr "var ég ekki búinn að segjast ætla að hafa samband við þig?!" "ehmm, jú jú, en það er taxi að bíða eftir mér og hann er ekki með teljarann á HOLD!" Hann sagðist ætla að hringja eftir smá vegna þess að það gengi ekki vel að ná í starfsmanninn. Allt í læ. Þegar ég var búin að bíða í aðrar tíu mínútur þá kom YNDISLEGI taxabílstjórinn með tilboð. Hann bauðst til að keyra mig út á flugvöll fyrir 5000 krónur og ég mátti borga honum til baka þegar ég gæti í gegnum heimabankann. Hversu almennilegt getur fólk verið?? Það var mjög gott, vegna þess á þessum tímapunkti var gjaldið komið í 3950 og svo ef að ég hefði tekið fly-bussinn þá hefði það orðið dýrara en 5000 krónur. Ég ákvað að vera ekkert að bíða eftir þessum verslunarstjóra og við ákváðum að drífa okkur bara til Keflavíkur. Ég var búin að ákveða að fara bara í Landsbankann í flugstöðinni og taka út allan peninginn. Þegar við erum komin í Kópavoginn þá hringir verslunarstjórinn og segir mér að stelpan hafi fundið kortið mitt og hafi komið því fyrir niðri í kjallara á húsinu!! Við snérum því við með de samme og komumst í Keflavík um 1 og 1/2 tíma fyrir brottför. Þetta reddaðist sem betur fer og vil ég þakka frábærum leigubílstjóra fyrir að hafa verið svona almennilegur og frábær!
Heillaráð til þeirra sem eru að fara að ferðast erlendis.........verið með allt á HREINU og hafið nógan tíma fyrir ykkur áður en flugið fer!! Hið seinna bjargaði mér alveg ;)

Þeink jú verí möts


miðvikudagur, júní 16

FERÐASAGAN FRÆGA

Fyrir nokkru þá fór ég til Þórhalls miðils. Það fyrsta sem hann sagði þegar ég og mamma gengum að borðinu í afgreiðislunni var: "hvor ykkar er að fara til útlanda?" "Ég" svaraði ég. Þá sagði hann við mig: "vertu með allt á hreinu áður en að þú ferð". Ég get ekki sagt að ég hafi gleymt þessum orðun hans nokkrum vikum áður en að ég fór út. Passaði mig á að vera með flugið panntað og borgað, passinn í lagi og allt á hreinu með gistingu og fleira í Köben. Jæja, það styttist í brottför sem var 8.júni og kvöldið fyrir brottför þá ákváðum við Sunna Dís að elda okkar saman og borða heima hjá henni. Við hittumst í búðinni á horninu og skiptum með okkur kostnaðinum. Hún borgaði með sínu korti og ég mínu. Svo fórum við bara og elduðum og borðuðum og höfðum það kósý. Ég fór svo heim, kláraði að pakka og´svo í háttinn. Flugið var klukkan 7.30 og ég vildi vera tímanleg og vaknaði klukkan 3.30, fór í sturtu, kláraði að pakka og hringdi svo í leigubílinn vegna þess að ég ætlaði að taka fly-businn klukkan 5.00. Leigubíllinn var mættur 4.45 og við héldum í átt að BSÍ. Þegar komið var að því að greiða manninum þá fann Kristín María ekki kortið sitt. panic panic.......Ég bað leigubílstjórann að keyra mig aftur heim til að tékka á kortinu (bölvandi í hljóði að þetta yrði dýrt) Hann gerði það og ég fór og leitaði að kortinu (datt stax í hug að ég hefði gleymt því í 10 11 á horninu). Ekki var kortið heima hjá mér og ég hringdi því í Sunnu og vakti hana og bað hana að tékka á því hjá sér. Hún gerði það en ekkert kort þar á bæ!! Alltaf var taxinn að bíða fyrir utan hjá mér! Jæja, þá var það staðfest að kotinu gleymdi ég í búðinni þegar við vorum að versla þar kvöldinu áður. Djöfullinn! Ég ákvað að hringja í 10 11 í Lágmúla og ahuga hvort þeir hefðu auka starfsfólk til að koma og opna fyrir mér búðina þannig að Kristín gæti tekið leigubílinn og rútuna og náð fluginu. "Nei þvi miður, en ég get látið þig fá númerið hjá verslunarstjóranum" JESS, frábært, ég vissi nebbla hver hann var og hann var alltaf svo næst þegar ég kom og verslaði hjá honum, hann bjó á görðunum og var örugglega til í að koma og opna fyrir mér þannig að ég gæti fengið kortið og komist til Kaupmannahafnar. En viti menn.......djöfull var maðurinn grömpy. Ekkert nema leiðindin. Ég byrjaði á að afsaka mig og allt það.............

Framhald síðar.............