Merkilegt hvað mér tekst alltaf að fara að gera eitthvað allt annað en að lesa! Nú sá ég eitthvað próf á netinu og ákvað að slá til þó svo að ég líti nú bara á svona próf sem dægrastyttingu! En ég vaknaði rúmlega 10 í morgun, sofnaði í sófanum eftir að myndin goodfellas var búin, reyndi að horfa á Samsæriskenninguna eftir það en sofnaði, og vaknaði ekki fyrr en í morgun, og svei mér þá þá svaf ég bara nokkuð vel í sófanum! Ég er núna búin að vera að dunda mér við þessa nýju síðu mína, búin að fá nokkrum sinnum smá kast en jafna mig alltaf á endanum. Núna er ég að vinna að myndaalbúmi, komst að því eftir að ég var búin að vera að setja myndir inn að það svæði var læst, þannig að ég sótti um opið svæði og er að vinna í því að koma þeim myndum sem ég var búin að koma inn á læsta svæðið inn á opna svæðið. Svo er bara næst á dagskrá að verða sér úti um svona eitt stykki digital myndavél þannig að ég þurfi ekki alltaf að vera að ræna myndum af öðrum, vona að mér sé fyrirgefið!
sunnudagur, febrúar 29
laugardagur, febrúar 28
föstudagur, febrúar 27
Nýja bloggsíðan
Núna ætla ég einungis að blogga á þessa síðu! En ég er búin að vera hérna í 3 klst að vinna við að koma henni í sæmilegt horf. Ég ætla ekki að gera mikið í kvöld, er búin að ákveða að vera heima að læra þessa helgi eftir tjútt nánast hverja helgi síðan ég byjaði í skólanum eftir jólin. Núna er mikið framundan hjá mér, nefndarstörf í lánasjóðsnefnd stúdentaráðs og í fjölmiðla- og markaðsmálanefnd AUS og svo vinnan í stjórn UF. En ég mun reyna að skipuleggja mig þannig að ég geti líka ritað eitthvað hingað inn fyrir ykkur sem nennið að skoða!!!
fimmtudagur, febrúar 26
Senn koma prófin..........hingað í húsið mitt
Ég varð að setja inn færslu til að geta dúllað mér við þetta NÝJA blogg!! Var annars bara að vakna og það klukkan 11! ég sem ætlaði að vakna klukkan sjö!! En ef einhver þekkir lækningu við því að eiga erfitt með að vakna á morgnanna þá má hann gjöra svo vel að láta mig vita hver hún er! Þetta er bara ekki að ganga. Núna ætla ég að vera dugleg að hitta krakkana í skólanum og læra, við vorum orðin ansi dugleg í jólaprófunum og það fer að styttast í vorprófin, bráðum kemur mars og þá er bara mánuður í það að þetta skelli á!!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)