mánudagur, febrúar 28

þoli ekki mánudaga og því síður þennan makka smakka, var búin að skrifa færslu og svo strokaðist allt út!!! araaaarg! hætt að blogga, helvítis djöfulsins!!

Þessa skemmtilegu setningu er annars að finna í lesefninu fyrir morgundaginn: If the group ranks alternative 1 above alternative 2 in the absence of alternative 3, then it should not rank alternative 2 above alternative 1 when alternative 3 is also available.

takkfyrirbless

laugardagur, febrúar 26

Hef lítið sem ekkert að segja í dag. Er að fara að taka á móti góðu fólki í kotið mitt hérna innan skamms og svo er stefnan tekin á Grindjánaborg i morgen. Djamm í kvöld.......þetta venjulega sem note bene er ferlega skemmtilegt. Ætla að vera bjórlaus og hress á kantinum. Prufa einn solleis. Oh svo er lagið mitt að byrja í útvarpinu...........U2, sometimes you can´t make it on your own. Ef einhver vill bjóða stúlku með sér á tónleika með þeim í sumar þá fær hinn sami pottþétt já :)

fimmtudagur, febrúar 24

Myndirnar úr Vökupartýinu síðustu helgi sem heppnaðist svo helvíti vel eru komnar inn, þær eru undir "myndir"

Þakka ykkur öllum sem ég eyddi kvöldinu með fyrir frábærar stundir!

þriðjudagur, febrúar 22

Skelltum okkur í Árbæjarlaugina í blíðunni í kvöld og kósýheit par exelans í algleymingi. Gufa, heitur pottur og fallegt fólk eins og það gerist best.

NÆST er það ROKK-KVÖLD á Pravda á fimmtudagskvöldið og svo custompartý á föstudaginn. Fram að því eru al-kaída menn í pælingunni ásamt ETA, IRA og Osama.

Vil þakka mömmu lausnina á Victoria´s secret bæklingnum. Hún var einföld. Hringja í pósthúsið í Keflavík og breyta adressunni minni í 101 í stað 230. Sniðugt.

mánudagur, febrúar 21

Back to reality......
Helgin var hin ágætasta. Vökustúlkur hittust a casa mia á föstudagskvöldið og stemmningin sjóðandi. Eftir að hafa hámað í síg sushi a la Nings, þar sem minns vogaði sér ekki einu sinni að smakka, var farið í það að blanda Cosmopolitan sem Stefanía tískulögga var með yfirumsjón með. Drykkurinn var hinn fínast en þó í sterkari kantinum, enda gerði stúlka það vísvitandi að blanda aðeins of miklum tindavodka útí. Eftir fjörugar umræður og öflugar lýsingar á óprenthæfum sögum var ákveðið að skellta sér í strákapartýið sem Andri var svo almennilegur að halda fyrir strákagreyin sem á tíma áttu í engin hús að vernda. Þar hélt gleðin áfram undir gítarspili og söng. Við stúlkur hreinlega rúlluðum upp tröppurnar og hringdum dyrabjöllunni rauðar út á kynnar af Cosmó Stefaníu. Okkur var öllum vel tekið enda sjaldnast gaman í partýum ef píurnar vantar ;) Eftir partý var ferðinni heitið á VEGAMOT, þar sem tjúttað var af sér rassgatið. Minns var komin heim um fjögur, svo sársvöng og ekkert til nema sushi frá því fyrr um kvöldið. Það var farið að taka gulan lit en ég var samt sem áður OF svöng, hugasði með mér, skítt með það, og byrjaði að háma það í mig. Djöfulsins viðbjóður! En svo fór laugardagurinn í það að þrífa íbúðina sem var BLEIK af koktail!!

Spiluðum svo Risk á laugardagskvöldið, sem er orðin hefð hjá okkur stjórnmálafræðinemum og ég og Þórir unnum að sjálfsögðu as the black army :) Kristín tók svo að sér að sýna töfrabrað ársins sem féll í góðan jarðveg, sérstaklega hjá JP. Ætlunin var svo að skella sér á Stúdentakjallarann á Hjálma sem voru að spila en það var röð út á bílastæði. Ari í ögri varð þá fyrir valinu og sátum við þar í tjillinu og hlustuðum á brilliant trúbadora sem spiluðu méraðskapitónlist. Sunnudagurinn fór í lestur og hjólatúr um borgina.

fimmtudagur, febrúar 17

Fékk fyndið símtal áðan. My X bað mig um að reyna að stoppa sendingar Victoria´s secret bæklingsins á heimilið hans. Bæklingurinn er búinn að koma þangað reglulega í þrjú ár. Málið er bara að ég kann ekki að stoppa þetta. Hvaða karlmaður vil annars ekki skoða þennan bækling reglulega? Mar hreinlega spyr sig. Heidi Klum og félagar í Lions Quest. Gerist ekki skemmtilegra.

Spá í að skella mér á Hróaskeldu í sumar. Mugison spilar.

mánudagur, febrúar 14

Það var of erfitt að vakna í morgun eftir helgina. Langaði allt í einu í kókósbollur í gær svo ég hentist út í tíuellefu og keypti mér 4 stk. Undir venjulegum kringumstæðum hefði það bara verið ein....en þar sem ég var í búð en ekki sjoppu þá varð ég að kaupa fjórar saman og át svo 3 eftir miðnætti í gær. Sykurmagnið hafði það í för með sér að ég var nývöknuð í allan dag. Skemmtilegt.

Mánudagarnir eru einu dagarnir sem ég þarf að vakna snemma til þess að fara í skólann. Í rauninni ætti ég að vakna sjö alla morgna og hendast á the book barn og reyna að lesa svolítið. Skólinn er jú mín vinna þessar stundirnar. Keypti mér bókina "Terrorism in the twenty first century" í dag, það er nebbla próf í þessu 7.mars þannig að það er best að fara að lesa. Skemmtilegt efni sem vekur undrun og reiði gagnvart snarklikkuðu fólki í þessum blessaða heimi.

Annars voru nokkrir hlutir sem vöktu sérstaka athygli hjá mér síðasta sólarhringinn. Í fyrsta lagi er það varðandi afnotagjöld RÚV sem ég er búin að standa svo fast á að eigi að fara inn í nýtt innheimtuform og gera að nefskatti, sem jafnvel stendur til að gera og svo er ég að reyna að átta mig á þessu húsaniðurrifi á Laugarvegstreet, en Kaupmaður Bolli gerði þokkalega grein fyrir sínu máli í Íslandi í dag áðan. Ég er ekki jafn mikið á móti þessu þegar ég hlustaði á rökin sem hann hafði að færa. Finnst samt að það eigi bara að færa húsin en ekki rífa þau, en það er víst kostnaður.

Svo er ég fekar miður mín yfir frétt kvöldsins, en ný stökkbreytt alnæmisveira hefur tekið sig upp í Bandaríkjunum. Þetta er hið alvarlegasta mál og nú duga ekki lyfin sem hafa náð að halda veirunni niðri í áratug, heldur veikir hún fólk af alnæmi á 2 mánuðum. Um er að ræða karlmann sem er búinn að sænga hjá einhverjum hundruðum öðrum karlmanna án þess að nota verjur. Upp með smokkinn people!!

Annars er Valentínusardagurinn á enda og gaman að segja frá því að þetta er ekki amerískt fyrirbæri heldur ítalskt og dregur nafn sitt af ástardýrlingnum San Valentino. Ég vona að allir þeir sem tóku þátt í ítölsku/amerísku hefðinni hafi fengið falleg Valentínusarkort en ekkert í líkingu við þetta samt sem áður.

Lifið heil

laugardagur, febrúar 12

árshátiðin í gær var aðeins of nett. Hef sjaldan skemmt mér jafnvel. Húsið var ekkert smá flott og ég gat ekki ímyndað mér að hægt væri að gera Stapann svona flottan. Búið að taka hann í gegn frá toppi til táar og kósýstemmningin í algleymingi. Kerti alls staðar og skreytingarnar aðeins of flottar. Anna Steinunn, þessi elska, var fram á síðustu stundu að reddda hlutunum í Stapanum áður en hún mætti sjálf í kokteilinn sem hún plöggaði svo skemmtilega. Árni bæjarstjóri var auðvitað nettasti heiðursgestur sögunnar og sýndi að maðurinn býr yfir miklu keppnisskapi þegar hann reif brjósahaldarann af Önnu minni og endaði uppi sem sigurvegari í leiknum skemmtilega "sækja í sal".

Tvær ungar snótir, sáu svo um að spila THE MUSIC, og það verður að segjast að þessar píur eru góóóóóðar. Þvílík og önnur eins tónlist. Ekki nóg með það heldur skelltu þær sér á gólfið með okkur hinum og tjúttuðu af sé rassgatið..........eins og við hin :)

Eftir geðveikt hlaðborð, frábær skemmtiatriði, happadrættisvinninga, klámspólur, titrara, undirföt, bjór, bjór, dans og gleði var haldið í borgina að nýju. klukkan var að verða fjögur og fólk fór ýmist heim að sofa eða í áframhaldandi gleði niðri í bæ. Ég dottaði í rútunni og var ekki alveg að nenna í bæinn en skellt mér engu að síður örstutt á Hressó og eftir það í kotið mitt góða.

Takk fyrir frábærasta kvöld allir!!

mánudagur, febrúar 7



Jáááááá, fór út í dag. Skellti upp þráðlausa netinu í makkann og í leiðinni á frambjóðendafund í hádeginu í Odda. Andri stóð sig með stakri prýði drengurinn. Ég bíð of óþolinmóð eftir fimmtudags(k)veldinu og vooooona svo innilega að upp muni taka sig sama sigurvíman og fyrir ári síðan.

Það var svo gott að komast út og hitta fólk. Fyndið hvað það er ÆÐISLEGT að komast út eftir veikindi. Fannst ég þurfa að knúsa og kyssa alla (vona að ég sé hætt að smita) þetta er merkilegt, því ég hef alveg upplifað helgi áður og ekki hitt neinn, en það er allt annað þegar maður er veikur.

Þegar minns svo labbaði í Háskólabíó til þess að fara í tíma, með nýju tölvuna, situr þá ekki bara Toggi þarna með alveg eins tölvu, bara 14" í stað 12". Ég fór ekki lengra en svo en ég tyllti mér við hliðina á honum og bað hann um að sýna mér allt sem hann kunni á tölvuna. Það er nebbla mun skemmtilegra að fá aðstoð svona beint en að lesa einhvern leiðindafylgibækling. YEP, Im the free rider :)

Svo skelltum við okkur í kosningamiðstöðina góðu og Kristín akiteraði eins og vindurinn og tók þátt í baráttunni að nýju!! svoooo gaaaman! Pizzan var ljúf og félagsskapurinn ekki verri. Farin að telja niður í fimmtudagskvöldið, ef það hefur ekki komið fram nú þegar og svo er auðvitað árshátíðin góða kvöldið eftir. Eins gott að slaaaaka í Vöku-bjórnum.

sunnudagur, febrúar 6

Heilsan ekki skriðin saman ennþá og það stefnir í annan einmannadag heima í helv**** kotinu sem ég elskaði svo mikið í síðustu viku!! Laaaaangar að hitta fólkið mitt! Taka þátt í kosningabaráttunni og mæta í skólann. Mikilvægustu dagar vikunnar eru mánudagar og mín var ákveðin í morgun að mæta í skólann í fyrramálið. Það verður þó lítið út því, hitinn er ennþá til staðar og ógeðshósti og enn sárari háls. Damn it!! Búin að liggja í rúminu í allan dag og horfa á Sex and the city þess á milli. Carrie og félagar hafa náð að létta mér lundina á þessum leiðindatímum. Sigga Dögg líka, þessi elska. Kemur allaf með hlaup og kók.

Ef dýrahald væri ekki bannað á görðunum þá væri ég búin að plata mömmu til að koma með Gutta minn. Svo væri ég líka til í að fá Kobba minn, páfagaukur sem við erum búin að eiga í næstum 15 ár. Hann kann að dansa. Ekki tala, en dansa. Sem er skemmtilegt.

Annars rakst ég á þennan snilldar páfagauk áðan...........þetta væri gott að hafa í veikindunum :)

laugardagur, febrúar 5

- da Sickenzky -

Veiiiiiikur í dag............

Núna er stúlka veik heima í kotinu sínu, með hita og sáran háls. Týpískt hvað maður gleymir því alltaf þegar maður er hress, hversu ógeðslegt það er að vera veikur. Líkaminn fer alveg í rusl og ég tel niður mínúturnar þangað til að dagurinn tekur enda í von um að vakna hress þann næsta. Í morgun var ég þokkaleg, þangað til ég prufaði að kyngja, vooooont.

Missti af kvöldinu sem ég var búin að hlakka til í margar vikur. Afmælispartý Vöku. Svo ætlaði ég líka að fara á Sálarball í kvöld en missi sjálfsagt af því líka. Allir að vorkenna Kristínu núna.

Fór í gær og náði í ibook tölvuna, loksins kom hún til landsins þessi elska og mín fór að basla við að koma henni saman og troða í hana öllum þeim 7 diskum sem fylgdu henni. Kann ekki ennþá að hægrismella og ekki að tengja internetið. Fyrir þá sem ekki vissu þá er mac og microsoft ekki það sama......

Svo var komið að því að horfa á Idolið. Ég á svo fínt sjónvarp að hljóðið hef ég, þó svo ég hafi ekki myndina. Sá þó þokkalega enda veit ég vel hvernig allir þessir keppendur líta út. Klárlega var Hildur Vala best í þessum þætti og Heiða á eftir henni. Ég kaus í fyrsta skiptið og fannst auðvitað ekkert eðlilegt í stöðunni en að kjósa Hildi Völu. Þó fannst mér hann Helgi gera ansi góða hluti og drengurinn hreinlega sleppti sé á sviðinu. Gaaaaaman.

föstudagur, febrúar 4

Mér er illt í hálsinum, verð því að beila á Singstar-keppninni í kvöld. Sorry krakkar.
En nú er það kaka og mjólk í Odda og VR II.


miðvikudagur, febrúar 2

La musica &Gavin DeGraw

Já fyrir þá sem ekki vissu það þá er ég tónlistarsjúk með meiru. Hef ekkert dottið inn í einhvern absúrd fíling og er mjög svona almenn eðilis þegar kemur að tónlist. Fyrir utan það að fíla Bubba, Queen, U2, Keane ofl eru önnur lög og flytjendur sem eru að gera það gott fyrir Kristínu þessar stundirnar, m.a. finnst mér lagið "this is the last time" með KEANE of gott og það allra nýjasta, sem ég datt inn á í morgun, þökk sé ÖK, er gaur sem ber heitið Gavin DeGraw, en þekktasta lag hans, að ég held, er "I don´t want to be" sem er hið þokkalegasta, en lagið sem er ALVEG að gera sig er þó "Follow through" sem er líka með Gavin og mæli ég með því að fólk hlutsti á það lag til að skilja hvað ég er að fara.

Þið farið einfaldlega hingað inn, farið hægra megin á síðuna, klikkið neðst þar sem stendur MUSIC, og þar hafið þið það. SNILLINGUR pilturinn.