mánudagur, febrúar 14

Það var of erfitt að vakna í morgun eftir helgina. Langaði allt í einu í kókósbollur í gær svo ég hentist út í tíuellefu og keypti mér 4 stk. Undir venjulegum kringumstæðum hefði það bara verið ein....en þar sem ég var í búð en ekki sjoppu þá varð ég að kaupa fjórar saman og át svo 3 eftir miðnætti í gær. Sykurmagnið hafði það í för með sér að ég var nývöknuð í allan dag. Skemmtilegt.

Mánudagarnir eru einu dagarnir sem ég þarf að vakna snemma til þess að fara í skólann. Í rauninni ætti ég að vakna sjö alla morgna og hendast á the book barn og reyna að lesa svolítið. Skólinn er jú mín vinna þessar stundirnar. Keypti mér bókina "Terrorism in the twenty first century" í dag, það er nebbla próf í þessu 7.mars þannig að það er best að fara að lesa. Skemmtilegt efni sem vekur undrun og reiði gagnvart snarklikkuðu fólki í þessum blessaða heimi.

Annars voru nokkrir hlutir sem vöktu sérstaka athygli hjá mér síðasta sólarhringinn. Í fyrsta lagi er það varðandi afnotagjöld RÚV sem ég er búin að standa svo fast á að eigi að fara inn í nýtt innheimtuform og gera að nefskatti, sem jafnvel stendur til að gera og svo er ég að reyna að átta mig á þessu húsaniðurrifi á Laugarvegstreet, en Kaupmaður Bolli gerði þokkalega grein fyrir sínu máli í Íslandi í dag áðan. Ég er ekki jafn mikið á móti þessu þegar ég hlustaði á rökin sem hann hafði að færa. Finnst samt að það eigi bara að færa húsin en ekki rífa þau, en það er víst kostnaður.

Svo er ég fekar miður mín yfir frétt kvöldsins, en ný stökkbreytt alnæmisveira hefur tekið sig upp í Bandaríkjunum. Þetta er hið alvarlegasta mál og nú duga ekki lyfin sem hafa náð að halda veirunni niðri í áratug, heldur veikir hún fólk af alnæmi á 2 mánuðum. Um er að ræða karlmann sem er búinn að sænga hjá einhverjum hundruðum öðrum karlmanna án þess að nota verjur. Upp með smokkinn people!!

Annars er Valentínusardagurinn á enda og gaman að segja frá því að þetta er ekki amerískt fyrirbæri heldur ítalskt og dregur nafn sitt af ástardýrlingnum San Valentino. Ég vona að allir þeir sem tóku þátt í ítölsku/amerísku hefðinni hafi fengið falleg Valentínusarkort en ekkert í líkingu við þetta samt sem áður.

Lifið heil

Engin ummæli: