La musica &Gavin DeGraw
Já fyrir þá sem ekki vissu það þá er ég tónlistarsjúk með meiru. Hef ekkert dottið inn í einhvern absúrd fíling og er mjög svona almenn eðilis þegar kemur að tónlist. Fyrir utan það að fíla Bubba, Queen, U2, Keane ofl eru önnur lög og flytjendur sem eru að gera það gott fyrir Kristínu þessar stundirnar, m.a. finnst mér lagið "this is the last time" með KEANE of gott og það allra nýjasta, sem ég datt inn á í morgun, þökk sé ÖK, er gaur sem ber heitið Gavin DeGraw, en þekktasta lag hans, að ég held, er "I don´t want to be" sem er hið þokkalegasta, en lagið sem er ALVEG að gera sig er þó "Follow through" sem er líka með Gavin og mæli ég með því að fólk hlutsti á það lag til að skilja hvað ég er að fara.
Þið farið einfaldlega
hingað inn, farið hægra megin á síðuna, klikkið neðst þar sem stendur MUSIC, og þar hafið þið það. SNILLINGUR pilturinn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli