laugardagur, júlí 31

Skellti mér í undercover downtown-trip í dag. Fékk að skjótast úr vinnunni á milli véla og kom við í fullorðinsdrykkjarbúðinni. Perpearing for sunday girlsnight out.............náði mér í fagurgrænan hlýrabol í undirkjólastíl og míni gallapils hjá Rúnu í Galleri. Lite bjórinn og blush-ið verða við hönd og góð tónlist. Það verður án efa raulað með "dip it low" sem er nýjasti slagarinn sem tekið hefur ástfóstri við musicmind stúlkunnar. Englar Kalla eru að undirbúa food-drink-music night annað kvöld. Didda er óðum að komast í dansfílinginn.

"Dip it low
Pick it up slow
Roll it all around
Poke it out like your back broke
Pop pop pop that thing
Ima show you how to make your man say "Ooo"

fimmtudagur, júlí 29

Til hamingju með afmælið elsku bróðir!

Björn Óskar bróðir er 15 ára í dag og fær innilega afmæliskveðju frá mér. Þegar ég kem heim eftir vakt ætla ég að sýna snilli mína í eldamennsku og hræra saman í eitt stykki camenbert-rétt.

Stelpur athugið!

tékkið á þessu fyrir helgina. Very sniðugt.
http://www.batman.is/ut.php?id=64621

(Þoli ekki blogger fyrir að hafa breytt kerfinu og ekki lengur hægt að setja linka inn í texta. Stór mínus fyrir þetta)

.....óska hér með þeim sem leggja land undir fót um helgina góðrar ferðar. Ég vildi vera í fríi til þess að tjalda í rigningunni og berjast við að hæla niður tjaldið mitt sökum vindar. Gúmmítútturnar þrá að verða notaðar meira en einungis í Þórsmörk. Blautt og kalt. Það er gaman.

P.S. Þeir sem eiga leið um tvöföldu Reykjanesbrautina........passið ykkur við þrengingarnar. Það er víst varað við því. Þá spyr maður sig: Er brautin betri núna þegar vara þarf sérstaklega við ákveðnum hlutum eins og þrengingunum? Hvað um þá sem ekki heyra þær viðvaranir?

Vonandi að þeir lesi bloggið mitt.

miðvikudagur, júlí 28

.........já, enn eina ferðina er Kristín María að breyta um lúkk. Fannst hitt ekki nógu gott en mun sitja sátt við þetta í bili. Tókst að sofa 3 tíma í morgun eftir næturvaktarvörsluna í nótt. Uni ósátt við það enda þurfti ég að fara á fund í hádeginu í Reykjó og áttum við ágætan klukkutíma þar. Svaf svo fram eftir degi enda ekki hægt að argast yfir því í veðri sem þessu.

Bryddarinn minn á afmæli í dag og hefur stúlkan lifað 24 árin eins og didda. Sendi henni kossa og knús í gegnum símann áðan og fær hún hér síðbúna afmæliskveðju að hætti Kristínar:

Til hamingju með afmælið Bryndís mín...................hérna færðu nýtt blogglúkk frá mér til að skoða, njóttu

þriðjudagur, júlí 27

Það er dýrt að vera kona. Viðhaldskostnaður er meiri en á bíldruslu.

Er hallærislegt að ganga á milli húsa, banka upp á og safna á tombólu??

Málefnið : ÉG SJÁLF

sunnudagur, júlí 25

Kristín nirfill??
Já, það þarf sko stundum að segja manni til syndanna. Siggi bróðir gerði mér nokkuð ljóst þegar við fórum út á videoleigu til að taka einhverja mynd að glápa á þetta sunnudagskvöld.  Þannig var málið að þegar við erum komin út í bíl þá segji ég (í djóki) "þú borgar, er það ekki?" Þetta var sko mín hugmynd að taka spólu. Þá horfir hann á mig glottandi og segir, "nei, nei".
"Ókei" segi ég, "þú kaupir þá bara nammið, er það ekki?" Þegar við vorum búin á leigunni, þar sem Kristín borgaði 500 kr fyrir 2 spólur (nýja og gamla) brunuðum við í sjoppuna. "Hvað eigum við að kaupa?" Kristín hugsar sig um.........."hríspoka, djúpur og blandaðan lakkríspoka", ofan á þetta bættist  það sem Sigga langaði í, Leppinn, og stór nóakropp sem hann hugsaði handa mömmu og pabba.  Kristín kom svo við á leigunni aftur og keypti handa honum Maxi popp. Útgjöld ferðarinnar, Kristín = 640, Siggi = 1000>. Eftir þessa ferð þá minnti Siggi mig á bíóferðina okkar, sem ég stakk upp á eitt sinn, ekki fyrir alls löngu. "Förum í bíó, ég skal borga." Þegar við vorum komin í bæinn vorum við bæði svöng og komum við í Smáralindinni þar sem við fengum okkur Pizza Hut. Eftir að Siggi hafði borgað hátt í þrjú þúsund krónur fórum við í bíóið þar sem Kristín framvísaði miða "tveir fyrir einn".

Mér varð ljóst í dag að ég get verið nirfill......................BARA þegar ég er með Sigga bróðir.

laugardagur, júlí 24

It´s a beautiful day!
Hitti grindvísku skvísurnar í gær og við höfðum það náðugt heima hjá Erlu perlu. Gunna fær 10 í einkunn fyrir Camenbert-réttinn sinn og súkkulaðikakan hennar Erlu var örugglega líka góð. Boðaði svo mikið af réttinum hennar Gunnu að það varð ekki pláss fyrir meira. Skemmtum okkur við það að rifja upp sögurnar í gamla daga! Alveg hreint frábært. Þegar við seldum hlaup í poka í kúlutjaldinu á Norðurvörinni og þegar við kysstum "franskan" í fyrsta skiptið, and many more.......... Annars er Kristín búin að vera að njóta góða veðursins í dag og ætlar sér að komast í grillpartý stjórnmálafræðinema í kvöld. Hann Sæssi Rokk ætlar að vera svo almennilegur að bjóða genginu.
a piu tardi

miðvikudagur, júlí 21

Jarðaber, Da Vinci kaffi og pistachioshnetur standa uppúr í dag.  Góða veðrið eftir vinnu .........og svo auðvitað skemman góða sem Kristín fékk að njóta í allan dag.
Hvað er samt málið með að særa familíuna svona í þættinum áðan?? My big fat, jarí jarí jarí. Kristín táraðist samt með snúllunni.

laugardagur, júlí 17

DUUS OG BEER
Ég tók út væmnina fyrir árið í síðustu færslu. Ég get nebbla alveg verið væmin ef ég er hvött til þess. En sólin skín skært í Reykjanesbæ og víðar í dag. Við Sunshine ákváðum í gær að skella okkur á DUUS eftir vakt í kvöld og fá okkur einn eða tvo kalda. Vaktinni lýkur reyndar ekki fyrr en um 2.00 en það er í góðu. Ég krossa hér með fingurna og ætlast til þess að hver sá sem stjórnar veðrinu verði jafn örlátur við A vakt og hann er búinn að vera við B vakt. Svo er staffapartý á mánudag. Ekki leiðinlegt það.
Gullmolinn hennar Kristínar Maríu
Dagurinn byrjaði frekar rólega. Knús og klór við Gutta, sem er hundurinn á heimilinu. Hann er 1 og 1/2 árs og er algjör gullmoli. Þegar ég bjó í Reykjavík í vetur þá var það hann sem ég saknaði mest, og þegar ég kom í heimsókn í Grindavík þá var það fyrsta sem ég gerði var að klóra honum á maganum og knúsa hann í bak og fyrir. Kom alltaf fagnandi að manni og lagðist á bakið til að fá klór frá Diddu sinni, það er svo gott þegar maður er með svona langar neglur! Ég elska þennan hund út af lífinu og ég var einmitt að hugsa það um daginn þegar ég fór með hann niður í Bót til að leyfa honum að hlaupa, hvað lifið væri sko ekki eins án hans. Svo í dag gerðist merkilegur atburður.  Ég var að spjalla við Kobba (14 ára dísapáfagauk) á milli þess sem ég var að sýna Gutta mínum athygli. Allt í einu heyri ég einhvert skrítið hljóð frá honum inni í eldhúsi. Þar stóð hann í bælinu sínu og kúgaðist. Ég hugsaði að þarna væri bara um hreinsun að ræða,enda er þetta eitt af því sem kettir og hundar gera, borða gras til að kasta því upp. Ég hugsaði að þetta væri bara eitt af þeim tilfellum enda hafði Gutti gert þetta einhvern tímann áður. Ég fór því út úr eldhúsinu og kláraði að hafa mig til í vinnuna. Aftur heyri ég hljóð sem var mun undarlegra en hitt, innan úr eldhúsinu. Þegar ég kem inn í eldhús þá liggur gullmolinn minn á gólfinu og hristist allur, eitthvað furðulegt krampakast. Kristín fékk áfall og kallaði á múttu sína sem kom í hvelli. Ég var viss um að eitthvað stæði í honum og að nú væri hann að kafna greyið. Mamma náði í sleif til að reyna að opna öndunarveginn, en hann var með svo mikinn krampa að hann beit í puttann á henni og blóð fossaði út um allt. Stuttu síðar hættir hann að skjálfa og hrökklast eitthvað í burtu frá okkur og fer að urra og gelta. Eitthvað sem hann hefur aldrei áður gert. Þarna hélt ég að litla greyið væri kominn með hundaæði. Við urðum öll skíthrædd við hann og á endanum fór hann inn í herbergið mitt og við lokuðum því á meðan við hringdum í dýralækni. Ég ætla ekki að útskýra meira í smáatriðum. Mamma fékk stífkrampasprautu vegna hundbitsins (N.B. þá beit hann hana ómeðvitað) Gutti fékk mjög sennilega flogakast og eiga þeir það því sameiginlegt með mannfólkinu. Ástæðan fyrir því að hann urraði á okkur var sennilega vegna þess að hann var að vakna úr "tranzi" sem hann man ekkert eftir. Núna er ég að vinna og get ekki beðið eftir að komast heim til að heimsækja greyið sjúklinginn á heimilinu. Ég er búin að hringja heim tvisvar í dag til að tékka á Gutta og mömmu og heilsast þeim eftir atvikum vel. Nú er bara að bíða og vona að þetta tilfelli í dag verði það eina í lífi Gutta míns enda ekki löng ævi þessara yndislegu dýra sem gjarnan eru nefnd BESTI VINUR MANNSINS
Tryggðin, vitið, traustið, blíðan
táknar feril þinn. Birtu færir,
bætir líðan besti vinur minn.
 

föstudagur, júlí 16

FRK KARÍUS
Stúlka er farin að borða óhemju mikið af nammi...........því harðari sem hún er á átaki því meira nammi er innbirgt.  Tollarar landsins hrúgast heim af sólarströnd og á sama tíma risaumbúðir af m&m ofl. Þessar elskur. 1 og 1/2 tími þangað til skvísa á að vera mætt í FLE og sit núna í náttfötum með úfið hár.........3ja daga kvöldvakt framundan. Í góðu þar sem  sólargeislinn minn er mætt aftur á vaktina eftir (ásamt öðru starfsfólki tollsins) 2ja vikna sumarfrí á Spáni. Welcome home Sunshine. Have missed you TROPPO!

fimmtudagur, júlí 15

"It´s raining again....oh no"
Jæja, lengsta vinnuvikan í sumar er núna rétt hálfnuð og gott mál það. Rigning úti og bara besta mál þar sem stúlka situr inni og bloggar milli þess sem hún hleypir handhöfum "requested passes" inn á þjónustusvæði FLE. Við Guðmundur Ingvar sitjum hér í góðu yfirlæti og rífumst um pólitík og horfum á þáttinn JAG. Gummi er grænn í pólitík eins og síðan mín og þakka ég mínu sæla að vera ekki hluti af þannig "grúbbu" on times like these.......but you learn to live again, eins og segir í laginu :)
pilsen

Hérna eru nýjar myndir síðan í Þórsmörk, ég fékk þær "lánaðar" hjá Guðmari og Bríet, vona að það sé í lagi :) Þórsmörk

fimmtudagur, júlí 8

Seeing death as the end of life is like seeing the horizon as the end of the ocean.
.....Hvað bíður okkar handan móðunnar miklu er ráðgáta ein. En ég trúi því að eftir okkar líf herna á jörðinni þá bíður okkar eitthvað annað og meira.

Elskuleg Jórunn er farin úr þessum heimi og ég er sannfærð um að það bíður hennar annað hlutverk núna. Ég bið góðan guð að halda verndarhendi yfir fjölskyldu hennar og fjölskyldu Jonna á þessum erfiðu tímum sem framundan eru. Guð blessi ykkur.

Kveðja
Þar sem englarnir syngja sefur þú.
Sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum,lifum í trú.
Að ljósið bjarta skæra.
Veki þig með sól að morgni.
Veki þig með sól að morgni.

Farðu í friði vinur minn kær.
Faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær.
Aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
Svo vöknum við með sól að morgni.


- Bubbi Morthens

miðvikudagur, júlí 7

ALOHA

Eftir þunga helgi, þar sem skýin drógu sig neðar en venjulega ætlar Didda að skella sér í útilegu ásamt sínum ástkæru samnemendum. Við erum mikið búin að þræta um það hvert skal fara og var upphaflega hugmyndin að skella sér í Þórsmörkina. Stuttu síðar frétti Kristín af Landsmóti á Sauðárkróki og varð viðhorfslaus......reyndi eins og rjúpan við steininn að kristna heilaþveigna stjórnmálafræðinema en allt kom fyrir ekki. Ég reyndi að segja þeim að Krossá myndi gleypa okkur og að það yrði rigning alla helgina þar, en þau sögðu bara að við þyrftum ekki að fara yfir ána til að fara á flottasta staðinn í mörkinni!! Hvað er fólk þá að pæla að vera að hætta lífi sínu ef að það er svo ekkert skárra handan árinnar?? Ég er ekki alveg að skilja. En Kristín hefur aldrei komið í Mörkina (heldur ekki á Sauðárkrók)þannig að ég sá fyrir mér tómt svæði á meðan allir skemmtu sér konunglega fyrir norðan í sól og blíðu. En Þórsmörk er vinsæll staður víst og alltaf eitthvað af fólki þar. Þetta verður vonandi ógleymanleg helgi og ég er fúl að hafa ekki lært fyrr á gítar!(eða á gítar yfir höfuð) Ég vil að Bubbalögin verði spiluð og mikið sungið! Ef einhver kann Bubba og fleira á gítar þá er hann velkominn með :)
until l8er

laugardagur, júlí 3

That´s me!


How to make a kristin maria
Ingredients:

5 parts competetiveness

1 part arrogance

3 parts ego
Method:
Stir together in a glass tumbler with a salted rim. Add a little curiosity if desired!