sunnudagur, ágúst 21

Ávanabindandi piparlæknir


Aldrei orðið háð Coke Cola, Pepsi eða kaffi. En þessi helv**** Dr. Pepper drykkur fer nánast með mér út að hlaupa. Hvað er það?

föstudagur, ágúst 12

Leave In Conditioning Mist


Þeir sem hafa einhverja reynslu af böðun í Bláa lóninu (sérstaklega stelpur) vita að ef blessaður jarðsjórinn kemst í snertinu við hárið verður það eins og steinull í a.m.k. viku á eftir. Frá því KM var c.a. 9 ára og hóf að fara í sínar fyrstu Bláa lóns ferðir ásamt vinum hefur hún búið yfir þessari nauðsynlegu þekkingu. Í hvert sinn sem farið er ofan í lónið þarf að maka hárið í næringu, því jafnvel þótt hárið snerti ekki sjóinn þá getur það orðið virkilega slæmt af gufunni einni saman. Í ferð sinnni í lónið í gær var KM þegar með myndarlegan snúð í hárinu sem óþarfi var að henda úr sér til þess eins að maka næringu í hárið. Mundi stúlka þá eftir því að hún átti Leave in conditioning mist frá Loreal. Þessu var sprey-að af mikilli vandvirkni yfir allt hárið og eftir 3ja tíma lónsferð var hárið enn silkimjúkt. Try it!

fimmtudagur, ágúst 11

Bláa lónið er staðurinn


KM er í þeirri prime stöðu að búa einungis 6 km frá Bláa lóninu. Ferðirnar í spa-lindina góðu eru þó öllu færri en fólk myndi ætla og kenni ég engu öðru en leti þar um. Pollurinn var heimsóttur í góðum félagsskap í dag. Bjórþamb og spjall í sól og blíðu er KM að skapi. Takk fyrir mig!

Forréttindi snúrustauranna


Gotta love it
------

Já og KM ætlar að slá í dag

miðvikudagur, ágúst 10

Þjóðhátíðarmyndir 2011

KM athugar hvort sending frá Picasa virkar yfir á Blogger-inn



Upprisa bloggsins

5 ára bloggpásu er officially lokið. Eftir viðkomu á My space og Facebook undanfarin ár hefur KM ákveðið að snúa sér aftur að blogginu. Facebook mun líklega lifa þó nokkur ár í viðbót nema blessaðir vírusarnir geri fólk gráhært og BLOGGER komi með einhverja úber snigðuga fídusa sbr. Facebook. Who knows?

Twitter hefur KM þó ekki prófað - a.m.k ekki ennþá.


Elskulega RÚV


Ósjaldan láta hundfúlir skattgreiðendur óánægju sína á RÚV bákninu í ljós. Oftar en ekki er landinn ósáttur við hina ýmsu dagskrárliði sem höfða jú misvel til okkar. Ef við erum ekki að kvarta yfir því að RÚV skuli voga sér að vera á auglýsingamarkaði þá erum við brjáluð yfir því að sjónvarpað skuli vera frá íþróttaviðbuðrum sem almenningur hefur eðlilega mismikinn áhuga á.

Frægasta og nýlegasta dæmið er útsending frá fótboltamóti framhaldsskólanema sem fram fór síðastliðinn vetur. Nú síðast golfmót á Íslandi. Sjálf hefur KM ekki kveikt á sjónvarpi í allt sumar. Það er þó ekki í mótmælaskyni við lélega dagskrá heldur er um að ræða svokallað Sódómu-vandamál. Fjarstýringin finnst ekki. En hvað um það. Nokkrir vinir á Fésbókinni hafa í bræði látið óánægjuna sína á dagskrágerð RÚV í ljós sbr;

snildar sjónvarpsefni á rúv akkúrat núna...lovit maður....” eða” Golf á Íslandi...seriously RÚV ??” eða “Hvers eigum við að gjalda sem greiðum skatt til að halda úti þessu hörmulega ríkissjónvarpi? Eina leiðin til að koma einhverju fútti í þetta er að veðja við Eið um hvort Sveppi fari úr öllu eða skítur á sig.”

Meðan þetta var lesið fór í gegnum huga minn hugmynd sem sannarlega er ekki ný af nálinni. Eftir að hafa nýlega rætt hugmyndina stuttlega við kunningja er tímabært að fara að hafa hátt um hana - hliðarrás á RÚV! Þegar viðburðir á borð við Golfmót á Íslandi, fótbotlamót framhaldsskólanema (sem á reyndar ekkert heima í sjónvarpi landsmanna) eða hverju öðru sem einhverjir kunna ekki að hafa áhuga á, væri mögulega hægt að bjóða upp á þessa dagskráliði á annarri rás. Þá þyrfti ekki að rjúfa fréttaútsendingar eða koma með aðra miður óþægilega örskun sem virðist fara afskaplega illa ofan í íhaldssaman Íslendinginn.

Það má þó ekki gleyma lögbundnu hlutverki stofnunarinnar og þeirri staðreynd að dagskrástjóri ber að lúta þeim lögum – í einu og öllu. Eftir að hafa skimað í gegnum lög um Ríkisútvarpið var ekki hægt að sjá neitt sem bannaði slíka ráðstöfun. Í 2.grein laganna um leyfi til útvarps, kemur fram að Ríkisútvarpið ohf. hefur leyfi til útvarps á þeim rásum og tíðnisviðum sem það fær til umráða eða því kann síðar að verða úthlutað. Ekki er með beinum orðum komið inn á að stofnunin megi opna hliðarrás en samkvæmt örstuttri könnun virðist það vera stjórn RÚV ohf sem sér um að veita slíkt leyfi.

Hvað sem líður smekk okkar og skoðun á dagskrá RÚV megum við ekki gleyma þeirri staðreynd að fólk er að greiða fyrir reksturinn með skattfé sem er langt í frá að vera smáaurar. Eðlilega vill fólk fá eitthvað fyrir sinn snúð.

Auðvitað snýst þetta um hagsmuni. Rúv hefur tekjur af skattgreiðslum okkar sem eru 17.200 krónur á ári ásamt því að reka sig með auglýsingatekjum. Sá þáttur hefur verið bitbein í umræðunni í mörg ár og finnst þeim sem berjast í bökkum í einkarekstri eðlilega súrt að horfa upp á stofnun sem fær megnið af tekjum sínum í gegnum skattgreiðslur landans, teygja sig í sömu vasa eftir auglýsingafé og þeir sem einkareknir eru. Það muna allir eftir gjaldfrjálsum Skjá einum. Eftir mikið hark á auglýsingamarkaði sáu þeir ekki annan kostinn en þann að innheimta áskriftargjald.

Og þetta er líklega meginástæða þess að RÚV hefur eingöngu eina stöð ásamt plús stöðinni. Þegar stórir íþróttaviðburðir eru í sjónvarpinu vilja auglýsendur ná til áhorfenda. Er það kannski megin skýringin? Langflestir vilja fylgjast með en þeir örfáu sem vilja súper bíódagskrá hafa alltaf hæst?

Hjá KM er þetta einfalt. Hún hlustar á fréttir í útvarpinu og horfir síðan á þá þætti og þær bíómyndir sem hana langar til hverju sinni í gegnum netið. Þær eru jú fjölmargar netsíðurnar sem bjóða upp á frítt "stream".