laugardagur, maí 29

Ljúft laugardagskvöld
Eftir tvo daga í bjór og gini var skynsamlegt að eyða kvöldinu bara heima í kotinu og slaka á. Gerði mér salsadip og horfði á Perluhöfn milli þess sem ég skipti yfir á skjá 1, þar sem verið var að krýna miss Ice. Kristín er hætt að djamma í bili og mun sennilega ekkert fá sér kaldan öllara fyrr en ég verð komin í kóngsins Köben í þarnæstu viku. Ég þakka Sunnu partýið í gær, Guffa heimboðið og Hildi Maríu fyrir skemmtilegt tjútt og labbið heim í góða veðrinu (á táslunum) eftir rennandi stemmningu á Sólon. Verst að snúllan kemur til með að vera á vaktinni á móti mér í sumar þannig að við endurtökum ekki leikinn fyrr en í haust!! Og þá jafnvel á Laugarvatni........en þar kem ég til með að eiga tvo vini næstu önn þar sem Ómar kútur er líka að fara í íþróttakennaraskólann. Næst tekur vinnan við og hefst hún með næturvakt 1.júní!! jei
Lifið heil krúttin mín.......elska ykkur
Natten spatten

miðvikudagur, maí 26

þá er það búið!! loooooksins! jei
Skilaði núna rétt áðan inn master-písinu minu í opinberri stjórnsýslu. Loksins eru áhyggjurnar sem legið hafa á mér eins og mara, lyft sínu þunga rassgati af mér og ég öll að braggast á vöðvabólgunni í kjölfarið...NOT. Nudd please!! Næsta fjárfesting mín verður almennilegur stóll til þess að sitja í við blessuðu tölvuna. Ég get svo svarið fyrir það að mig verkjar frá rassi upp í haus eftir törnina. Veit að þetta lagast með smá hreyfingu. Ætla að fjárfesta í svona eins og enum nuddtíma og skella mér svo í nuddpottinn. (hvar sem það verður) Svo ef einhver vill æfa sig í að nudda þá má HANN æfa sig á mér ;)
takkfyrirgóðanóttogbless

þriðjudagur, maí 25

LANDSBANKINN FÆR KÆRAR ÞAKKIR

Fyrir að bjóða stjórn Politicu (sem aðalstyrktaraðili okkar)ásamt nemendaráðgjöfum (sem er m.a. ég) og skorarfulltrúum (kolla bolla)í PRE-forsýningu á stórslysamyndina "THE DAY AFTER TOMORROW". Súper-dúper mynd a la USA. Og auðvitað fengum við popp og kók með :) Það er ekki að ástæðulausu að ég er búin að vera með mín viðskipti í Landsbankanum frá upphafi (ævi minnar þ.e.)..................okei, þið megið gubba núna!!
Back to ritgerð
takkfyrirbless

laugardagur, maí 22

Spurning um að fara að ferðast meira!!


Búðu til svona
og svo getur þú skellt því á netið

Þau lönd sem eru merkt rauðu eru þau sem ég hef heimsótt: Ísland (alla ævi) UK (3) Spánn (3) Noregur (1) Ítalía (1 í sex mánuði) Danmörk (2 í júní)
Spurning um heimsreisu eftir útskrift! Óska hér með eftir ferðafélaga. Það má bara vera einn og hann verður líka helst að vera karlkyns..............skemmir ekki ef hann er vel að sér í spænsku :)

föstudagur, maí 21

ALLIR Á ÞJÓÐHÁTÍÐ
Það er loksins komin ný könnun, en ef marka má þá gömlu þá ætla flestir kjósendur að skella sér á þjóðhátíð í Eyjum 2004!! Gaman að því, ég ætla hins vegar að sjá til með það, spara spara spara!! En ég hvet fólk til að taka afstöðu og kjósa um þetta hitamál!!
Btw þá kom debetkortið mitt í ljós.....

fimmtudagur, maí 20

Dauður tími..........
Ég er enn að gera ritgerðina í OS og ég fékk smá frest þar sem það er búið að vera mikið að gera hjá minni síðustu daga. En um leið og ég er búin að skila þessari blessuðu ritgerð þá eru ennþá nokkrir dagar þangað til ég fer að vinna. Vá hvað það verður gaman að byrja og hitta allt liðið aftur. Get hreinlega ekki beðið.

Í gær var slegið á létta stengi eftir langa og stranga fundasetur, fyrst var fundur með rekror þar sem boðið var upp á ljúffengar snittur, þar næst var SHÍ fundur og svo eftir þar UF fundur. Svo tók skvísan rölt frá miðbænum upp í Gamla garð þar sem Vaka var með grillveislu, ég var því miður sein á ferðinni þannig að ég náði bara bjórnum (sem ég var mjög sátt við)Síðan kíktum við yfir á Stúdentakjallarann og því næsr á Ölstofuna og eftir það á Celtic. Ég þreyttist mjög fljótt (ekki skrítið) og var kominn í kúrufílinginn við rúmið mitt rétt eftir tvö.

Kristbjörn varð svo almennilegur að skutla mér heim á grænu þrumunni en fyrst var auðvitað komið við á bæjarins bestu, en viti menn...........þegar stúlkan tekur upp veskið og ætlar að fara að borga þá var hún búin að týna kortinu sínu. Missti það í taxanum ásamt fleiru drasli en tók það greinilega ekki upp :( hringdi med de samme og lét loka því. Svo er dagurinn búin að vera mjög notó, búin að vera uppi í rúmi í allan dag og glápa á tv-ið enda var stöð 2 órugluð þangað til að verða 17.00, en þá þurfti hún að ruglast akkúrat þegar ég var að horfa á ELLING, norsk snilldarmynd og eftir það náði ég ekki að lesa textann (hefði sloppið ef hún hefði verið á ensku) næsta mission: taka ELLING á video.
Takk fyrir bless

miðvikudagur, maí 19

Það er mikil nautn að borða....................



pössum okkur á dippinu.......



Maís er nebbla fitandi!!

mánudagur, maí 17

MÓTMÆLI VIÐ AUSTURVÖLL
STÖNDUM VÖRÐ UM LÝÐRÆÐIÐ!
ALLIR Á VÖLLINN! SÝNUM ÞEIM RAUÐA SPJALDIÐ!

Fjöldafundur á Austurvelli miðvikudaginn 19. maí kl. 12:10.

Hingað og ekki lengra!

Lýðræði byggist á umræðum, gagnsæi, ábyrgð, virðingu og trausti. Íslensk
stjórnvöld sniðganga lýðræðislega umræðu í hverju málinu á fætur öðru og
beita handafli til að koma fram málum. Írak, útlendingalög, umhverfismál,
öryrkjar, réttindi launafólks, Hæstiréttur, Umboðsmaður Alþingis, kærunefnd
jafnréttismála, og nú síðast fjölmiðlar. Nú er mælirinn meira en fullur.
Leikreglur lýðræðisins eru ekki virtar. Við erum þjóðin, við berum ábyrgð á
lífinu í landinu og lífsskilyrðum komandi kynslóða. Látum í okkur heyra.
Þrengjum okkur í gegnum hlustir ráðamanna. Við viljum raunverulegt lýðræði!
Hingað og ekki lengra! Við mótmælum öll!

Áhugahópur um virkara lýðræði boðar til fjöldafundar á Austurvelli
miðvikudaginn 19. maí kl. 12:10.

Mætum með rauða og gula spjaldið, dómaraflautur, lúðra, trommur,
hrossabresti, ýlur og blístrur. Látum í okkur heyra!

Ýlur og blístrur verða til sölu. Rauðum og gulum spjöldum verður dreift.
Ég kemst ekki..........er að gera ritgerð sem ég verð hæplega búin með á þessum tíma!!

mánudagur, maí 10

ÞETTA ER SNIÐUGT!!
Þar sem ég á ótrúlega erfitt með að vakna á morgnanna og snooze-a ótrúlega lengi alltaf þá er þetta tilvalið fyrir mig!! Eitthvað sem mun örugglega koma mér á fætur...........spurning samt hvað maður ætti að setja í sprautuna..*hóst*..........

BREKI A.K.A REBBI Á AMMLI!
Og fær hann hér með bestu óskir frá pólitískri! Til lykke með daginn og árin 15!!
(eða voru þau 22?? :)
BLOGGER AÐ GERA SIG!

Þeir eru búnir að breyta öllu hérna á bloggernum og það er bara til hins betra. Coldplay. Annars er það bara lestur núna fram á föstudag og þá er ég búin í prófum.......en ekki alveg búin með lærdóminn samt sem áður því ég á að skila ritgerð 19.maí, jibbí. Annars er ég á leið í sumarbústaðarferð strax eftir prófin. Felegt fjör, heitur pottur, júróvísjón og kaldur víking, svo örugglega hinn frægi "drykkju-júróvísjón-leikur".....hummmmmmm. Svo 3 strangir dagar í ritgerðarskrif og svo grillveisla a la VAKA 19.maí........og þið sem eruð þegar búin í prófum...........DON´T RUB IT IN!

laugardagur, maí 8

NÆSTA SURVIVOR-SERÍA:


Six married men will be dropped on an island with 1 car and 4 kids each, for 6 weeks.
Each kid plays two sports and either takes music or dance classes. There is no access to
fast food.
Each man must take care of his 4 kids, keep his assigned house clean, correct all homework, complete science projects,
cook, do laundry, etc.
The men only have access to television When
the kids are asleep and all chores are done. There is only one TV
between them and there is NO REMOTE

The men must shave their legs, wear makeup daily, which they must apply themselves, either while driving or while
making four lunches.
They must attend weekly PTA meetings; clean up after their sick children at 3:00 a.m.; make an Indian hut model with
six toothpicks, a tortilla and one marker; and get a 4-year-old to eat a
serving of peas. The kids vote them off the island, based on performance.

The last man wins ... only if ........... he has enough energy to be intimate with his spouse at a moment's notice.

If the last man does win, he can play the game over and over again for the next 18-25 years eventually earning the
right to be called "Mother."

fimmtudagur, maí 6

VÁ HVAÐ VIÐ HLÓGUM AF ÞESSUM!

The Seven Dwarfs go to the Vatican, and because they are "the seven
dwarfs," they get ushered in to see the Pope. Dopey leads the pack.

"Dopey my son," says the Pope, "what can I do for you?" Dopey asks, !

"Excuse me, Your Excellency, but are there any dwarf nuns in Rome?"
The Pope wrinkles his brow at the odd question, thinks for a moment and
answers, "No Dopey, there are no dwarf nuns in Rome." In the background
a few of the dwarfs begin giggling. Dopey turns around and gives them a
glare, silencing them.

Dopey turns back to face the Pope. "Your Worship, are there any dwarf
nuns in all of Europe?" The Pope, puzzled again, thinks for a moment and
then answers, "No Dopey, there are no dwarf nuns in all of Europe."

This time all the other dwarfs burst into laughter. Once again, Dopey
turns around and silences them all with an angry glare. Dopey turns
back to the Pope and says, "Mr. Pope, are there ANY dwarf nuns in the whole world?"

The Pope answers, "I'm sorry, my son, there are no dwarf nuns anywhere
in the world."

The other dwarfs collapse into a heap, rolling, and laughing, pounding
on the floor, tears rolling downtheir cheeks as they begin chanting: !
"Dopey screwed a penguin!" "Dopey screwed a penguin!"

(fyrir þá sem ekki vita þá er þetta mynd ad Dopey, sé þetta krútt eiginlega ekki fyrir mér)

þriðjudagur, maí 4

SAMSÆRI EÐA EKKI?
Ég fékk ábendingu um að þessi síða um Pentagon væri feik og linka ég hér með á hana og dæmi nú hver fyrir sig.

Pentagon - andsvar

Takk Guðmundur fyrir ábendinguna :)

mánudagur, maí 3

SETNINGAR DAGSINS:

"Ég leyfi mér að fullyrða að almenningsálitinu á Íslandi sé ofboðið með því hvernig stjórnmálamenn eru misnotaðir, einkum í sjónvarpi. Stundum er þetta svo voðalegt að það mætti ætla að stjórnmálamennirnir sjálfir væru að hafa almenning að fífli." - Páll Skúlason

"Ríkisstjórnin er ekki skynsemi, ekki dugnaður - hún er vald. Eins og eldurinn, er það hættulegur þjónn og skelfilegur herra." - George Washington

sunnudagur, maí 2

HVAÐ VAR MÁLIÐ MEÐ 11.SEPTEMBER 2001?

Þetta finnst mér sýna hve mikilvægir fjölmiðlarnir eru. Ég stóð á öndinni þegar ég skoðaði þetta og er eiginlega ekki að skilja. Þeir sem sjá ekkert athugavert við þetta geta hringt í David Copperfield.................og jafnvel leyst hann af hólmi!

Þetta er það sem þið eigið að skoða
Veit hins vegar ekkert um hvort þessar myndir séu feik, en ég minnist þess að hafa sé myndirnar af þessu í sjónvarpi og þá sá ég aldrei neina Boeing hvaða númer það var sem hún bar!

P.S. Kolla Sigurþórs á afmæli í dag og er 25 ára! til lykke skvís!

laugardagur, maí 1

VERKALÝÐUR........TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Nú er að henda sér í kröfugöngu og fá sér kaffi og kökur á eftir!
MYND DAGSINS:

Ég er í Odda að reyna að lesa eitthvað hérna með þessum vitleysingum en það gengur hægt. Skrapp í kókteil til Sunshine í gær og það var very gott. Nördarnir í fræðinni ætla að kíkja í kvöld og það verður tekið smá spil.

P.S. Heiða vinkona á afmæli í dag og fær risaknús og rembikoss, til lykke snúlla :) (24 ára)

Hvet alla Íslendinga nær og fjær að fara hér inn og skrifa á listann til að andmæla fíflinu hérna að ofan!!
SMELLIÐ HÉRNA