mánudagur, september 11

mánudagur, maí 1

Til hamingju Heiða

Elskuleg æskuvinkona er 26 ára í dag. það eru akkúrat tvær vikur á milli okkar. Skemmtilegt í den tíð að afmæli okkar bar alltaf upp á sama vikudag. Þeir afmælisdagar sem eru mér ferskastir í minni eru þegar við hittumst snemma dags og gáfum gjafir. Annars óska ég þessari verðandi tveggja barna móður alls hins besta. Kristín ætlar að vera tilbúin barnapía á kanti þegar síðara barn kemur í heiminn en þess má geta að hún mun eignast tvö börn á innan við ári. Emily Ósk kom í september í fyrra og næsta kríli kemur í ágúst.

Annars mæli ég með að fólk lesi stutt, beitt og hnitmiðað bréf til blaðsins á síðu 18 í Fréttablaðinu í dag. Þar sendir Valgeir Sigurðsson, varaformaður Hollvinasamtaka RÚV þeim sem vilja gera stofnunina að hlutafélagi, tóninn.

laugardagur, apríl 29

Comeback

Merkilegt hvað maður þarf að finna sér eitthvað annað að gera á sama tíma og maður á að vera í próflestri. Held að sálin fari á annað stig við stressið sem fylgir prófum, svona stig þar sem maður verður bara að setjast niður og skrifa eitthvað um ekki neitt...... Jafnvel ná sér í samúð blogglesara um hvað maður á ótrúlega bágt, að þurfa að hanga inni á sólríkum degi og lesa, lesa bækur í fyrsta skipti sem hafa ekki verið opnaðar áður, jafnvel ekki einu sinni keyptar. Á meðan maður hefur áhyggjur af prófum, mætir maður til vinnu með öllu alvarlegra stress oft á tíðum. Það er jú undir manni komið að landsmenn fái fréttir af því hvort að setuverkfalli starfsfólks hjúkrunarheimilanna sé lokið. Fór annars til Spánar í nótt og heimsótti elskulegu Bryndísi, hún átti of mikið af eldhúsdrasli. Bryndís elskan, ef þú lest þá er mín alvarlega að spá í að koma og sækja þig heim.

þriðjudagur, apríl 25

Kónguló

Kónguló skreið upp á andlitið á mér í nótt, hún var bleik og loðin, frekar stór. Ég bað fólk í kringum mig að taka hana af mér því hún settist að á auganu á mér. Enginn þorði og ég sá ekki neitt. Ákvað að grípa bara um augað og ná í hana sjálf. Fann allt í einu hvernig hún stakk einhverju á bólakaf í augað og skildi þykkan þráð eftir. Svona svipaðan og notaður er til að sauma saman sár. Það var ótrúlega vont að draga hann út úr auganu. Eftir stóð ég með bólgið auga. Ég náði dýrinu og kramdi það í mauk, bleikt mauk. Í morgun gat ég ekki staðist að kíkja í ráðiningabókina. En hún sagði mér: "ef að fólk dreymir kónguló ættu menn að hafa í huga að þótt eitthvað hafi nýlega mistekist skulu þeir ekki missa móðinn því þolinmæði þrautir vinnur allar. Skríði kóngulær yfir menn í draumi berast þeim miklir peningar innan tíðar. Drepi menn eina kóngulóna verða þeir ánægðir í framtíðinni." Það hafið þið það! Innan tóm færlsa frá mér um kóngulóardraum svona í tilefni þess að ég er að læra fyrir próf og þurfti aðeins að líta upp úr bókinni.

sunnudagur, apríl 23

Vel heppnuð Bandaríkjaferð

jæja - smá færsla vegna gríðarlegra anna. Komum heim frá BNA í gærmorgun, ferðin grand í gegn og eintóm gleði. Úrvalsfólk sem við hittum að sjálfsögðu og gaman að sjá hvað Erla Ósk vinkona býr vel i Minneapolis. Annars skellti ég inn myndum úr ferðinni - ekki komið nema brot samt - hef engan tíma sökum vinnu og lærdóms þessa dagana. Hægt að sja myndirnar eftir skýstrókinn sem gekk yfir Iowa City kvöldið áður en við komum þangað - lukka? já jafnvel. Framundan er vinna, próf, próf, próf, Eurovision partý hjá Kollz og kalli, flutningur í nýja íbúð og svo vinna, vinna og aftur vinna. Stay tuned folks!

myndirnar eru á þessari slóð: BNA
hún er læst vegna geðsjúklinga sem vilja mér illt þannig að endilega sendið mér mail eða línu yfir msn

miðvikudagur, febrúar 1

Silvíu Nótt í Evróvísjón!

Það fær mann til þess að setjast aftur niður í nokkrar mínútur og blogga þegar maður fréttir að til standi að banna Silvíu Nótt að taka þátt í undankeppninni á laugardaginn. Ég er kannski ekki hlutlaus í þessu máli þar sem mér finnst hún snillingur og lóðir við að mér finnist fólk sem ekki er sama sinnis eitthvað á mis. Lagið lak á netið fyrir tilstuðlan annarra en þeirra sem að laginu stóðu. Þau eru búin að leggja blóð, svita og tár í þetta og því ekki séns í stiknandi helvíti að því sé kastað á glæ svona. Of mikið er í húfi. Ég heyrði þetta lag og verð að segja að það er algjör snilld enda ekki við öðru að búast. Þessi keppni er búin að vera eins ár eftir ár, súrir söngvarar með leiðinlega texta hvað eftir annað og engar nýjungar. Nú er VON Íslendingar. Ekki nóg með að Ágústa Eva í gervi Silvíu Nætur geti sungið, hún er með réttu múnderinguna og rétta TEXTANN. Ef hún ekki kemst áfram í þessu þá ætla ég ekki að fylgjast meira með þessari keppni því mér þykja þau lög sem komin eru einfaldlega leiðinleg.

Go Silvía.

fimmtudagur, janúar 19

fimmtudagur, janúar 12

Frétt dagsins:



Fregnir herma að hafist sé handa við að fjöldaframleiða nýjar klósettrúllur merktar DV. Geta þeir, sem vilja nota slíkan, nálgast hann í Nóatúni. Pakkningin inniheldur 20 rúllur og kostar litlar 50 krónur.

miðvikudagur, janúar 11

Skapháratíska


Umræðan um hvernig ber að hafa skaphárin hefur náð í fréttir NFS. Í matarboði síðustu helgi hjá Bríeti ræddum við stjórnmálafræðiskvisur mjög málefnanlega, að sjálfsögðu, um þessa tísku. Margir vilja þó ganga svo langt að líkja þessu við umskurð kvenna. Patrý Hanz fór a kostum með tveimur stúlkum sem stundum roðnuðu hreinlega yfir hreinskilni í kauða á fréttavaktinni á NFS í gær. Persóulega rakaði hann á sér bringuna. Eins persónulegt og það verður. En ég er forvitin um það hvað fólki finnst - er brasilískt vax málið? Allt af? rönd, þríhyrningur eða bara "frumskógur" eins og Hanz orðaði það?

Hver er megin ástæðan fyrir þvi að þetta er gert? Til að líða vel? Þóknast einhverjum öðrum?
Er virkilega gaman að eiga svona nærbuxur með hárin út á læri?

HINGAÐ OG EKKI LENGRA

Hvet alla til þess að fara inn á undirskriftasöfnunina hér til vinstri og mótmæla ógnarstefnu DV. Hvet líka áskrifendur þessa blaðs að segja því hreinlega upp.

mánudagur, janúar 9

Nyjar myndir loksins!

Jæja, loksins druslaðist ég til að taka upp myndavélina. Var dugleg í þrettándagleði Vöku en fékk smá hjálp hjá Árna. Svo eru nokkrar myndir úr vinkonuhittingum. www.fotki.com/kristib.

Annars langar mig að sjá Hostel í bíó - fékk sms frá Eyrúnu í hléi: Aldrei, aldrei, ALDREI fara á The Hostel! Mér er dauðans alvara! Ég skelf, er náföl og það illt í maganum að ég gæti ælt. Þetta er ekki viðvörun heldur skipun!

.....okei, hver er til í að koma með??

Fuglamisþyrming vegna fuglaflensu

Uppgjör ársins 2005 bíður enn, var komin með nokkuð nettan pistil í gær en allt datt út. Í staðinn langar mig að lýsa vonbrigðum mínum á illri meðferð fugla sem drepnir eru vegna fuglaflensunnar sem loksins er komin til Austur-Evrópu í öllu sínu veldi. Það tekur ekki nokkra stund að snúa þessi grey úr háls en í staðinn er þeim troðið í poka lifandi og hent á bálið. Óþolandi svona meðferð. Svo óþolandi að ég ætla ekki að skrifa meira.

sunnudagur, janúar 1

Gleðilegt ár!

Vona að allir hafi skemmt sér vel í gær. Mín er hins vegar búin að vera lasin og heilsulaus og gerði því ekkert í gærkveldi. Slepp þó við þynnku en fæ háslbólgu í staðinn. Mun gera upp árið 2005 í næstu færslu þegar heilsan verður betri og mun þá m.a viðburður ársins verða valinn ásamt full af öðru rugli. Fannst mjög leiðinlegt að komast ekki í borgina í gær því þangað var ferðinni heitið áður en heilsa stúlku yfirgaf hana.