þriðjudagur, apríl 25

Kónguló

Kónguló skreið upp á andlitið á mér í nótt, hún var bleik og loðin, frekar stór. Ég bað fólk í kringum mig að taka hana af mér því hún settist að á auganu á mér. Enginn þorði og ég sá ekki neitt. Ákvað að grípa bara um augað og ná í hana sjálf. Fann allt í einu hvernig hún stakk einhverju á bólakaf í augað og skildi þykkan þráð eftir. Svona svipaðan og notaður er til að sauma saman sár. Það var ótrúlega vont að draga hann út úr auganu. Eftir stóð ég með bólgið auga. Ég náði dýrinu og kramdi það í mauk, bleikt mauk. Í morgun gat ég ekki staðist að kíkja í ráðiningabókina. En hún sagði mér: "ef að fólk dreymir kónguló ættu menn að hafa í huga að þótt eitthvað hafi nýlega mistekist skulu þeir ekki missa móðinn því þolinmæði þrautir vinnur allar. Skríði kóngulær yfir menn í draumi berast þeim miklir peningar innan tíðar. Drepi menn eina kóngulóna verða þeir ánægðir í framtíðinni." Það hafið þið það! Innan tóm færlsa frá mér um kóngulóardraum svona í tilefni þess að ég er að læra fyrir próf og þurfti aðeins að líta upp úr bókinni.
|

4 orð í belg:

Anonymous Sibbi sagði...

Ég reyndi að hringja í þig á afmælisdaginn en þú svaraðir ekki. Eins og þú veist gleymi ég honum aldrei litla dúlla:)

12:44 PM  
Blogger Kristín María sagði...

vá takk - ég var úti í útlöndum bara! en ánægjulegt að þú skulir alltaf muna eftir honum :)

8:41 AM  
Anonymous Elísa sagði...

Velkomin aftur í bloggið skvísa :) Alltaf gaman að lesa pistlana þína...

4:53 PM  
Anonymous Bryndís sagði...

mmmm efnuð og hamingjusöm. er hægt að biðja um e-ð meira? nej det tror jeg faktiskt ikke!

11:12 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Home