
Merkilegt hvað maður þarf að finna sér eitthvað annað að gera á sama tíma og maður á að vera í próflestri. Held að sálin fari á annað stig við stressið sem fylgir prófum, svona stig þar sem maður verður bara að setjast niður og skrifa eitthvað um ekki neitt...... Jafnvel ná sér í samúð blogglesara um hvað maður á ótrúlega bágt, að þurfa að hanga inni á sólríkum degi og lesa, lesa bækur í fyrsta skipti sem hafa ekki verið opnaðar áður, jafnvel ekki einu sinni keyptar. Á meðan maður hefur áhyggjur af prófum, mætir maður til vinnu með öllu alvarlegra stress oft á tíðum. Það er jú undir manni komið að landsmenn fái fréttir af því hvort að setuverkfalli starfsfólks hjúkrunarheimilanna sé lokið. Fór annars til Spánar í nótt og heimsótti elskulegu Bryndísi, hún átti of mikið af eldhúsdrasli. Bryndís elskan, ef þú lest þá er mín alvarlega að spá í að koma og sækja þig heim.
|
1 orð í belg:
hahahahahahah hvað meinarðu! eldhúsdrasLi hvað. ég safna að þér nauðsynlegu dóti þar.. annars er eldhúsið uppáhaldsstaðurinn í íbúðinni minni. það er þessi tenging kristin mín á milli okkar.. annars er ég að koma að bíta í þig núna í næstu viku!
Sendu inn athugasemd
<< Home