"Út í Eyjar - fóru Vökuliðar - skemmtu sér vel" (v.lagið "Úti í Eyjum" með Stuðmönnum)
Nenni ekki að fara nánar út í ferðina í orðum - myndirnar voru ritskoðaðar og eru allar mjög sómasamlegar og fallegar - Ella er með myndir síðan á seinnakvöldinu en þá var mín vél orðin batteríslaus - fæ vonandi myndir hjá henni síðar.
Ef einhver vill ekki að mynd af honum eða henni birtist á síðunni vegna orðsspors síns og trúverðugleika þá bara að hringja í stúlku: 6982243
Eyjaferðin
mánudagur, maí 30
fimmtudagur, maí 26

ó ljúfa líf!
guttinn minn góði er mín næring - þessi elska, fagnar mér ávallt og eltir mig eins og skugginn enda dekra ég hvutta eins og barn. Kobbi hefur fengið að fara út úr búri sínu undanfarið en þorir ekki að taka flugið enda sennilega búin að gleyma flugtökunum. Honum finnst tyggjóið ennþá gott og öxlin á stúlku líka, gaukurinn á 15 ára afmæli í ár og ekkert farin að grána neitt meira enda grár frá upphafi með rauðar kinnar og grænan kamb. - Þessi dýr. Þau gera lífið í Grindavíkinni betra.
Eyjar handan við hornið og Herjólfur orðin spenntur að taka lýðinn um borð. Eyjatröllið góða kennt við bjálkakofa ku taka á móti og sýna lundann og taka sönginn.
Vinnan hefst 1.júní þar sem stúlka mun taka fram einkennisbúninginn og´gúmmíhanskana að nýju. Farin að sakna starfsfélaganna en fyllist efasemdum varðandi fugla- og hermannaveikinnar þar sem ég sé mig knúna til þess að brosa og taka á móti þúsundum erlendinga í Leifstöð þar sem loftræstikerfið hefur fengið falleinkunn.....ár eftir ár....
þriðjudagur, maí 24
pimp my ride
Sá þennan þátt í fyrsta skiptið í fyrradag, mjög skemmtilegur - en hvers eigum við að gjalda hér á Íslandi sem aldrei fáum tækifæri á að fara í eitthvað svona?? Hér eru bara einhverjir þættir eins og Innlit útlit sem eitthvað gerir fyrir lýðinn og Allt í drasli! MTV stendur fyrir þessum þætti.......hvernig væri ef að Popptíví tæki sig nú til og gerði slíkt hið sama? Kannski bara að gefa bíla, fyrir fólk eins og mig sem engan bíl á? Það er hugmynd :)
Annars fór ég í 10-11 í gær og hitti gamlan mann. Ég labbaði í átt að mjólkurvörunum og brosti til hans. Greip eina Húsavíkurjógúrt, með vanillubragði og 1,3 fitu ásamt ab gerlum. "Eru í hollustunni?" segir þá gamli maðurinn við mig. Mér fannst þetta mjög fyndið, brosti og sagði "já, auðvitað, það er hreinlega krafist af manni miðað við umræðuna í dag". Hann leit á mig og sagði "rétt er það, ég er líka alltaf í hollustunni" og brosti svo breytt að tennur hans þrjár heilsuðu mér á sama tíma - kalla það gott að maður á þessum aldri sé með eitthvað af sínum tönnum ennþá - hann var ekki að ljúga með hollustuna greinilega. Ég fór svo að skoða skálar og fleira...... þá kemur hann aftur til mín og segir "reykiru?" ég sný mér stolt við og segi við hann "nei maður, það hef ég sko aldrei gert, guð sé lof" og hann svarar þá " nei, ekki ég heldur, ég hef aldrei á minni löngu ævi prufað að reykja" ég brosti og var nokkuð ánægð með kallinn og mig, svona heilsusamleg............en þá kom hann með það........"ég hef heldur aldrei bragðað áfengi á ævinni" og brosti svo breytt, stoltur af sínum þremur tönnum - ég skammaðist mín reyndar þá og afsakaði mig á því að segja að mér fyndist nú bjórinn góður - þá fussaði hann og sagði að hann væri vondur!! Sumir skilgreina bjór greinilega ekki sem áfengi og ég hætti að skammast mín :)

sunnudagur, maí 22
!!! "come on, come on, come ooon, love is all over me!!!"..........WigWag gerðu stormandi lukku í Eurovosion í ár, klárlega besta performið og lagið spilað trekk í trekk í stórkostlegu partýi hjá Kollu og Árna í gær. Stúlka tók vel á því og skemmti sér vel með vatnsglas í annari og bíllykla í hinni. Vorum að til 7 í morgun - sólin blindaði miðbæjarlýðinn þegar maður arkaði út af dimmum skemmtistöðunum og ekki laust við að haustið væri komið aftur, svo kalt var í morgun. Stefnan var tekin á NASA en vegna gífurlegrar vinsældar á Júrópartý Palla var röð niður á hafnarbakka - Kuldaboli var hress í gær og því ekki í myndinni að bíða þar og deyja. Í staðinn strunsuðum við í átt að Thorvaldsen en sáum ekk röðina þar fyrir Jóni Sig sem skyggði svo skemmtilega á - tókum andköf þegar við sáum sama fjölda þar og á NASA og nánast hlupum í átt að Hressó - þar var sama sagan og annars staðar. Þá var komið að snillingnum henni Önnu Steinunni - reddaði inn á Pravda í einum grænum og okkur borgið frá Kuldakastinu. Hittum mjög hressan hóp pilta sem voru í steggjapartý á Íslandi og voru að skemmta sér aðeins of vel - Klárlega hafa menn drifið sig til Íslands eftir frábæra kynningu Svanhildar í Ophru á íslensku kvenfólki :) En við skemmtum okkur sem aldrei fyrr og nú er bara að klára ritgerðina sem verður mitt sidste verk sem námsmaður í bili - allavegana fram í júlí. Nú er bara að safna pappakössum og vinnuafli í flutninga - Grindjánaborg bíður spennt..........
föstudagur, maí 20
fimmtudagur, maí 19
Selma........búningurinn er ljótur.......
Fréttablaðið og DV voru örugglega í keppni í dag um það hver næði að fjalla meira um júróvísjón og ég býð ekki í það hvernig blöðin verða á morgun og hinn. Á meðan aðrir Evrópubúar þekkja nánast ekkert til keppninnar þá er fyrri þjóðhátíð okkar Íslendinga, Júróvísjón-keppnin. Allir að kaupa TV í bété og fá pakka með!! og EF Selma vinnur þá færðu sjónvarpið endurgreitt. Allt í einu vantaði öllum á Íslandi sjónvarp......aðallega af því að diskurinn með "ef ég hefði þína ást" fylgir í kaupbæti. Undankeppnin er í kvöld og DV segir að búningurinn geti kostað Selmu sæti í lokakeppninni. Eins og mér þykir Selma falleg, alltaf smekkleg, syngja vel, koma vel fram og örugglega skemmtileg líka......þá skil ég EKKERT í því að hún skuli hafa látið plata sig í þennan hræðilega "kjól" sem líkist helst samfestingi. Pokar illa á henni og dregur ekki fram þann þokka sem Selma hefur og sýndi árið 1999. Hún ætti hreinlegast bara að mæta í þeim kjól aftur......Hard Rock er hvort eð er farið á hausinn og þeir vita ekkert hvað þeir eiga að gera við rammann með kjólnum. HUGMYND: Senda hann út í Kænugarð!
Annars óska ég Selmu sætu alls hins besta. Stendur sig með stakri prýði og er fárinu vön er fylgir "júró".
Ég er búin að gera eins og aðrir Íslendingar - Kaupa kippu af kók - kippu af bjór - snakk - og meira snakk - partý hatta - flautur - lúðra - ýlur - búin að finna drykkjuleikjahandbókina - og setja upp tjaldið þar sem júróvísjón verður varpað upp á laugardaginn. Ef að Selma kemst ekki áfram í lokakeppnina - nú......þá hlýt ég að mega skila þessu? Er ekki í tísku að endurgreiða allt og skila þegar júróvísjón er í algelymingi? Mér finnst að maður megi allavegana skila því sem búið er að kaupa (í dag) fyrir laugardaginn ef að Selma kemst svo ekki áfam. Eða hvað?

miðvikudagur, maí 18
Lenti í smávegis vanda með lappann, hann ákvað að innstilla asísku letursforriti sem ég kann ekkert að breyta.....kom í ljós að það voru ákv týpur af bloggi sem hægt var að lesa - gamla var eitt af þeim sem virkaði ekki þannig að ég skipti yfir í þetta.
How about this? ok? yes?
........svo er nota bene hægt að kommenta á tveimur stöðum, sá að hitt hafði ekki undan að taka við kommentum þannig að ég tók gamla með í nýja lúkkið og ákvað að henda hinu ekkert út, svo þetta myndi örugglega ekki klikka.

þriðjudagur, maí 17
.......hitapoki á bak lagar lítið verki þar niðri....útihlaup við Ægissíðu gerði ögn betur.
En nú er aðeins of mikið framundan. Kolla bolla býður góðu fólki í júróvísjón partý og Heiða æskufriend og tilvonandi mamma líka ásamt frans-manni sínum, Kristó þann 21.maí. Efitr næstu helgi er stefna tekin á Eyjuna fögru, hina einu sönnu þar sem fólkið er svo frábært.......kennd við Vestmennina góða hér forðum. Þar mun Vökufólk gera allt kreisí í sprangi og annari vitleysu........heitur pottur, as always og bjór bjór bjór. Minnir á það að stúlka þarf aðeins að fara að slaka þar. Spurning um að skipta yfir í gin.....neeee. Var í alvörunni að spá í því áðan í útihlaupinu hvort ég ætti ekki bara að skrá mig inn á Vog til þess að komast yfir mjöðinn góða.....þetta er rosalegt. Ekki það að áfengið af ölinu fer mjúkum um mína.....það eru helv**** kaloríurnar og ekki gátu þeir bruggað góðan LITE bjór!!
En svo er helgi eftir Eyja-ferðina og þá er komið að hápunkti sumars: Ammli hjá stúlku sem skal haldið á æskuslóðum og uppeldistáninu, Grindjánaborg. Þar mun vera búið að pannta sal á besta stað, Riverdanshópurinn mætir á svæðið, Olsen bræður og fleiri góðir skemmtikraftar. Mjöðurinn verður settur í brake og annað og betra tekið fram.......NOTE BENE þeir sem kjósa frekar bjór þurfa þá að koma með hann með sér. Sorry.......Viking var ekki tilbúinn að gefa mér 20 kassa.
.......en nú skal tekið á því í ritgerðasmíð sem á sjálfsagt efitr að verða þess valdandi að ég hætti í stjórnmálafræði........jú, Svanur sagði að menn væru sko ekki stjórnmálafræðingar nema þeir kynnu að fara með kenningar - ég kynni það sjálfsagt ef þeir dru******* til þess að koma með útgáfu af þessari bók á íslensku. Ég er ekki slæm í ensku, en þegar kemur að því að fara að lesa um eitthvað kenningaþvætti þá er ordabok.is málið.
Anýhú.......fólk gefst ekki upp á því að ræða Frjálslynda vs Sjálfsstæðisflokkinn - Nei, Kristín er ekki að fara að skipta um skútu, skip, né bát, ekki stökkva frá borði né synda í land. Hún mun halda sig á sínum togara og halda áfram að sinna sínum hugsjónamálum - hvort sem þau heita RÚV, kvótakerfið eða skólagjöld við HÍ.

laugardagur, maí 14
Ertu nautnaseggur a la Kristín María?
Ég borða allt sem mig langar í þó svo það sé fitandi og óhollt.
Ég fæ mér það sem ég vil, þegar ég vil.
Ég sleppi því að fara út að hlaupa á morgnana vegna þess að það er svo gott að sofa.
Ég drekk reglulega bjór, þó svo ég fái bjórvömb, bjór er svo góður.
Ég nota sjampó sem er óhollt fyrir hárið vegna þess að besti ilmurinn er af því.
Ég stend lengi undir sturtunni, þó svo ég sé að verða of sein/nn, það er svo notalegt.
Ég set 5x meiri ost en þarf í alla heita rétti.
Ég neyti allt of mikils sykurs, hann er svooooo góður.
Ég horfi á allt sem mig langar í sjónvarpinu.
...........Hin nautnalyfin koma þegar ég er orðin ríkimann og eru öllu hollari og heilsusamlegri en hér að ofan :)
Oft á tíðum eru þetta hlutir sem ég andskotast yfir en þegar öllu er á botnin hvolft þá eru þetta hlutir sem gera lífið svoooo notalegt.
Fleiri nautnalyf??

fimmtudagur, maí 12
laugardagur, maí 7
Tilveran er ekkert nema endalaust rugl,
ósynd með sundfit og kút.
Lífið minnir töluvert á truflaðan fugl,
með tösku og drekkur af stút.
Í gámi inn við Sundahöfn er gæfan mín geymd,
ég get ekki leyst hana út.
Ég stend bara einn undir sturtunni og sting mér svo beint út í laug.
Já, magnað er lífið hjá murtunni,
þið megið til að fyrirgefa,
þið megið til að fyrirgefa,
þetta er bara SPAUG-STOFAN
Já, kannast ekki allir við þetta? þegar Spaugstofan var actually fyndin með eindæmum og í þokkabót með Ladda í fararbroddi.
Hver kannaðist ekki við atriði eins og "í Vesturbæjarlauginni", "Hættur á heimilum", og "ég nota bara PLÚTÓ!"??

föstudagur, maí 6

Ef einhver kann að gera við Bangsa bestaskinn og Gorm vin hans þá má hinn sami hafa samband. Vantar líka bókina, og snælduna sem gaf mér merki um hvenær ég ætti að flétta.
" þinn vin.....þinn vin.....la la la la la!!" Svona hljómaði a.m.k. eitt lagið að mig minnir.
Lenti í Grindjánaborg og rak augun í gömlu vinina (frá 1989 btw). Væru sjálfsagt ennþá í lagi ef augunum hefði ekki verið troðið inn í hausinn á þeim af litlum óþekktaranga.
Finnst að Stöð 2 ætti að taka upp á því að nýju að sýna þetta skrípó....enda með eindæmum gott.
þriðjudagur, maí 3
Hversu súrt er að fljúga á hausinn í maí?
Lenti í næst aulalegasta atviki lífs míns í dag. Var að labba í skólann, voða fín og sumarleg, í pisli, með fartölvuna tryggilega staðsetta á ská yfir mig miðja og skólatöskuna hangandi á öxlinni. Er komin inn Oddagötuna og er að fara að labba upp á gangstéttina, sem nota bene er með mjög háan kant. Stíg upp á gangstéttina og ætla að labba áfram en lendi í einhverri ósléttu og flýg framfyrir mig. Fannst eins og þetta hefði gerst í hægri endursýningu. Áttaði mig fljótt á því hversu snögg viðbrögð heilinn sendir út til líkamans og hendurnar voru ekki lengi á skjótast fram og þær voru það eina á mínum litla líkama sem bera þess merki að ég hafi flogið á hausinn. Eftir að hafa dottið svona svakalega, þar sem tölvan mín góða datt í basic af mér og hin taskan líka, stóð ég upp á 3/4 úr sekúndu, lagaði pilsið, tók töskurnar upp og strunsaði áfram í skólann. Þegar ég var búin að labba í smá stund, hægði ég á mér, leit aðeins í átt að Perlunni, svo aðeins lengra til að tékka hvort nokkur lifandi maður hefði séð þetta atvik mitt. NEI, sem betur fer. En þetta er alltaf fyndið eftir á, og þegar ég var að segja Bryndísi frá þessu áðan gat ég ekki annað en grátið úr hlátri. Fólk er ekki að ná því hvernig hægt sé að detta á hausinn, 25 ára í maí.
Bara ef einhver hefði verið með mér, like a friend, þá hefði þetta EKKI verið eins aulalegt.

ODDI....ODDI ODDI, ÞÚ TEKUR HANN UPP OG BORÐAR HANN SÍÐAN
Kom heim í nótt úr odda, magnað að það skuli alltaf fara að snjóa þegar ég rölti Oddagötuna í átt að kotinu mínu. Eru þetta einhver skilaboð eða? Þegar ég kom inn lá við forstmarki. Sé veðurguðina fyrir mér vera að slökkva og kveikja á sumrinu....bara svona til að stríða. Hækkaði ofninn aftur og hlustaði á heita vatnið streyma í tóman og kaldan ofninn og vonaði um leið að hljóðið myndi svæfa mig......nei aldeilis ekki. Of mikið koffín í þeirri von um að geta lært í sólarhring. Aaaaalveg að sofna......sms.... krap, nennti ekki að standa upp til að tékka.....snéri mér á hina......sofnuð loksins.......hringir ekki síminn.......oh krap......en alltaf gaman að heyra í góðu fólki sama hvað og hvernig tímanum líður. Eftir stutt spjall náði ég að sofna aftur, nagandi vörina eftir spennandi One tree hill þátt (sem ég stalst heim að horfa á......enda komin með nett ógeð af Odda) og að drepast í löppinni eftir samfellda lestrarsetu á ógeðsstól Í ODDA. Vaknaði svo aðeins síðar en áætlað var og ég og Sigrún hringdum hvorugar í hvor aðra? Gufunes hf. svo heitt var þegar ég vaknaði enda komin með tvær sængur síðan minns sofnaði í kuldabolalandi. Sit ennþá á náttfötunum og mana mig í að henda mér í sturtu og svo út í 10-11 til þess að þagga niður í garnagaulinu. Þarf að hendast í skólann aftur og lesa því það er jú fyrsta prófið á morgun! jei!
aðferðafræðin á heiðurinn.
Annars er komin sumarlykt, ég heyri nú ekkert í fuglunum lengur...hafa sjálfsagt frosið til dauða í nótt, en það er á stundum sem þessum sem ég læt mig dreyma um sumar í sólbaði.
Þetta er allt að koma.
Þið sem lesið eru örugglega komið með leið á Odda eins og ég. Framvegis segi ég SKÓLI.

mánudagur, maí 2
it
it´s the end of the world and you know it!!!
Þetta lag þekkjum við flest, veit ekkert hverjir eru flytjendur en þessar línur eiga engu að síður við líf mitt þessar stundirnar. Jú þannig er málið að ég er búin að vera í Odda í dag eins og undanfarna daga, reyna að lesa eitthvað af þessu námsefni mínu...að drepast í bakinu vegna þess að ég sit alltaf með krosslagðar lappirnar og er svona að reyna að skipta reglulega. En nóg um það......Kristín hefur ekki getað tengst msn neitt af ráði í dag og af þeim sökum hef ég pirrast með eindæmum út í þetta makka smakka drasl mitt. Ákvað að henda út msn og reyna að dánlóda því aftur......hvað gerist þá:
MSN for Mac OS X will soon be a thing of the past. Microsoft has announced that they will no longer be offering or supporting their MSN service for Mac OS X, effective May 31st of this year.
Said a Microsoft representative, "Beginning May 31, Microsoft will make changes and no longer support the MSN for Mac OS X Internet Software client." While unwilling to disclose how many subscribers the move will affect, they claimed it to be "a small number."
While Mac users will still be able to purchase Internet service from MSN, they will have to use their own software to actually connect, such as the Internet Connection dialer which comes with OS X. Whether the continued offering of Internet access to Mac users is due to a desire on the part of Microsoft to still service the Mac sector, or due to an obligation to...
.....næsta verkefni hjá stúlku er að labba upp í apple-umboð og henda í þeim iBook-num!!
No more MSN og líklega mun þetta verða mín meðferð við fíkninni :) Apple áróðurinn var alveg að gera sig hjá þeim þangað til núna!

sunnudagur, maí 1
Til hamingju með afmælið elsku Heiða mín! 25 ára þessi elska og spókar sig um í New York í þessum töluðu orðum með unnusta sínum.
Í tilefni dagsins skrifaði ég grein: 1.maí

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)