þriðjudagur, maí 17

.......hitapoki á bak lagar lítið verki þar niðri....útihlaup við Ægissíðu gerði ögn betur.

En nú er aðeins of mikið framundan. Kolla bolla býður góðu fólki í júróvísjón partý og Heiða æskufriend og tilvonandi mamma líka ásamt frans-manni sínum, Kristó þann 21.maí. Efitr næstu helgi er stefna tekin á Eyjuna fögru, hina einu sönnu þar sem fólkið er svo frábært.......kennd við Vestmennina góða hér forðum. Þar mun Vökufólk gera allt kreisí í sprangi og annari vitleysu........heitur pottur, as always og bjór bjór bjór. Minnir á það að stúlka þarf aðeins að fara að slaka þar. Spurning um að skipta yfir í gin.....neeee. Var í alvörunni að spá í því áðan í útihlaupinu hvort ég ætti ekki bara að skrá mig inn á Vog til þess að komast yfir mjöðinn góða.....þetta er rosalegt. Ekki það að áfengið af ölinu fer mjúkum um mína.....það eru helv**** kaloríurnar og ekki gátu þeir bruggað góðan LITE bjór!!
En svo er helgi eftir Eyja-ferðina og þá er komið að hápunkti sumars: Ammli hjá stúlku sem skal haldið á æskuslóðum og uppeldistáninu, Grindjánaborg. Þar mun vera búið að pannta sal á besta stað, Riverdanshópurinn mætir á svæðið, Olsen bræður og fleiri góðir skemmtikraftar. Mjöðurinn verður settur í brake og annað og betra tekið fram.......NOTE BENE þeir sem kjósa frekar bjór þurfa þá að koma með hann með sér. Sorry.......Viking var ekki tilbúinn að gefa mér 20 kassa.
.......en nú skal tekið á því í ritgerðasmíð sem á sjálfsagt efitr að verða þess valdandi að ég hætti í stjórnmálafræði........jú, Svanur sagði að menn væru sko ekki stjórnmálafræðingar nema þeir kynnu að fara með kenningar - ég kynni það sjálfsagt ef þeir dru******* til þess að koma með útgáfu af þessari bók á íslensku. Ég er ekki slæm í ensku, en þegar kemur að því að fara að lesa um eitthvað kenningaþvætti þá er ordabok.is málið.

Anýhú.......fólk gefst ekki upp á því að ræða Frjálslynda vs Sjálfsstæðisflokkinn - Nei, Kristín er ekki að fara að skipta um skútu, skip, né bát, ekki stökkva frá borði né synda í land. Hún mun halda sig á sínum togara og halda áfram að sinna sínum hugsjónamálum - hvort sem þau heita RÚV, kvótakerfið eða skólagjöld við HÍ.

Engin ummæli: