Selma........búningurinn er ljótur.......
Fréttablaðið og DV voru örugglega í keppni í dag um það hver næði að fjalla meira um júróvísjón og ég býð ekki í það hvernig blöðin verða á morgun og hinn. Á meðan aðrir Evrópubúar þekkja nánast ekkert til keppninnar þá er fyrri þjóðhátíð okkar Íslendinga, Júróvísjón-keppnin. Allir að kaupa TV í bété og fá pakka með!! og EF Selma vinnur þá færðu sjónvarpið endurgreitt. Allt í einu vantaði öllum á Íslandi sjónvarp......aðallega af því að diskurinn með "ef ég hefði þína ást" fylgir í kaupbæti. Undankeppnin er í kvöld og DV segir að búningurinn geti kostað Selmu sæti í lokakeppninni. Eins og mér þykir Selma falleg, alltaf smekkleg, syngja vel, koma vel fram og örugglega skemmtileg líka......þá skil ég EKKERT í því að hún skuli hafa látið plata sig í þennan hræðilega "kjól" sem líkist helst samfestingi. Pokar illa á henni og dregur ekki fram þann þokka sem Selma hefur og sýndi árið 1999. Hún ætti hreinlegast bara að mæta í þeim kjól aftur......Hard Rock er hvort eð er farið á hausinn og þeir vita ekkert hvað þeir eiga að gera við rammann með kjólnum. HUGMYND: Senda hann út í Kænugarð!
Annars óska ég Selmu sætu alls hins besta. Stendur sig með stakri prýði og er fárinu vön er fylgir "júró".
Ég er búin að gera eins og aðrir Íslendingar - Kaupa kippu af kók - kippu af bjór - snakk - og meira snakk - partý hatta - flautur - lúðra - ýlur - búin að finna drykkjuleikjahandbókina - og setja upp tjaldið þar sem júróvísjón verður varpað upp á laugardaginn. Ef að Selma kemst ekki áfram í lokakeppnina - nú......þá hlýt ég að mega skila þessu? Er ekki í tísku að endurgreiða allt og skila þegar júróvísjón er í algelymingi? Mér finnst að maður megi allavegana skila því sem búið er að kaupa (í dag) fyrir laugardaginn ef að Selma kemst svo ekki áfam. Eða hvað?
3 ummæli:
Mogginn tapaði sér meira en hin blöðin, það fylgir sérblað um júróvísjón með honum í dag!!! En hvernig er það, á ekki að kíkja í ammlið á morgun?
júts, ég ætla að mæta.......en tek pakkann til baka ef hann mætir svo ekki í mitt ammlli! :)
ekki spurning hvernig þetta fer.. nojararnir og WIG WAM taka okkur aftur til ársins 82 og bræða heiminn með out-of-shape líkömum sínum og alltof litlum búningum!!
Skrifa ummæli