laugardagur, maí 14

Ertu nautnaseggur a la Kristín María?

Ég borða allt sem mig langar í þó svo það sé fitandi og óhollt.
Ég fæ mér það sem ég vil, þegar ég vil.
Ég sleppi því að fara út að hlaupa á morgnana vegna þess að það er svo gott að sofa.
Ég drekk reglulega bjór, þó svo ég fái bjórvömb, bjór er svo góður.
Ég nota sjampó sem er óhollt fyrir hárið vegna þess að besti ilmurinn er af því.
Ég stend lengi undir sturtunni, þó svo ég sé að verða of sein/nn, það er svo notalegt.
Ég set 5x meiri ost en þarf í alla heita rétti.
Ég neyti allt of mikils sykurs, hann er svooooo góður.
Ég horfi á allt sem mig langar í sjónvarpinu.

...........Hin nautnalyfin koma þegar ég er orðin ríkimann og eru öllu hollari og heilsusamlegri en hér að ofan :)

Oft á tíðum eru þetta hlutir sem ég andskotast yfir en þegar öllu er á botnin hvolft þá eru þetta hlutir sem gera lífið svoooo notalegt.

Fleiri nautnalyf??

Engin ummæli: