Jæja, loksins druslaðist ég til að taka upp myndavélina. Var dugleg í þrettándagleði Vöku en fékk smá hjálp hjá Árna. Svo eru nokkrar myndir úr vinkonuhittingum. www.fotki.com/kristib. Annars langar mig að sjá Hostel í bíó - fékk sms frá Eyrúnu í hléi: Aldrei, aldrei, ALDREI fara á The Hostel! Mér er dauðans alvara! Ég skelf, er náföl og það illt í maganum að ég gæti ælt. Þetta er ekki viðvörun heldur skipun!
.....okei, hver er til í að koma með??
5 ummæli:
ég, en því miður verð ég bara að sjá hana í ammríkunni.
ég er til enda karlmenni mikið :P
það kitlar mig að sjá hana en samt fæ ég líka í magann...það er spurning hvort að maður meiki svona mikinn viðbjóð
mig langar aðeins til að sjá hana vegna þess að ég vil fá adrenalín flæðið á fullt - verst er reyndar þegar maður kemur heim, fer ein að sofa og þá koma alls konar ógeðsmyndir upp í hugann sbr the exorsism of Emily Rose - ennþá að ná mér eftir hana.......
sko Kristín, þetta er ekki svona scary mynd eins og Emily Rose. Þessi mynd er engann veginn góð, þetta er third class movie, hrikalegur söguþráður, en málið er bara að hún lætur manni líða rosalega illa. Ég missti bara trúna á mannkyni eftir að hafa séð hana, þvílík illska sem mönnum dettur í hug!! þannig að...ég mæli alls ekki með þessari mynd, hún er ekki scary, BARA ógeðsleg.
Skrifa ummæli