Skapháratíska
Umræðan um hvernig ber að hafa skaphárin hefur náð í fréttir NFS. Í matarboði síðustu helgi hjá Bríeti ræddum við stjórnmálafræðiskvisur mjög málefnanlega, að sjálfsögðu, um þessa tísku. Margir vilja þó ganga svo langt að líkja þessu við umskurð kvenna. Patrý Hanz fór a kostum með tveimur stúlkum sem stundum roðnuðu hreinlega yfir hreinskilni í kauða á fréttavaktinni á NFS í gær. Persóulega rakaði hann á sér bringuna. Eins persónulegt og það verður. En ég er forvitin um það hvað fólki finnst - er brasilískt vax málið? Allt af? rönd, þríhyrningur eða bara "frumskógur" eins og Hanz orðaði það?
Hver er megin ástæðan fyrir þvi að þetta er gert? Til að líða vel? Þóknast einhverjum öðrum?
Er virkilega gaman að eiga svona nærbuxur með hárin út á læri? |


7 orð í belg:
Ég sá nú ekki þennan blessaða pistil hjá NFS! Persónuleg finnst mér það vera ósnyrtilegt að vera með brúskana niður eftir lærinu,,alveg eins og að hafa brúska undir hendunum í ermalausum bol! Ég var nú einhvern tíman á fyrirlestri í háskólanum hjá kvensjúkdómalæknir, hann sagði þessi brasilíska tíska væri með þeim vitlausari sem konur hafi tekið upp,,jafn vitlaust og taka af sér litlu tána til þess að komast í mjórri skó,,og taka rifbein til þess að minnka mittið!Hann sagði að tíðni blöðrubólgu og sveppasýkinga hafa stóraukist með þessari tísku.Mér minnti nú að hann sagði að gáfulegast væri nú að skilja eitthvað eftir,,því að væri nú tilgangur með þessum hárvexti þarna að neðan!
En þetta er auðvitað mjög persónulegt eins og hvað annað í þessu lífi,,og auðvitað á fólk ákveða stærð á sínum brúski eftir sínum forsendum en ekki að þóknast einverjum öðrum!
Kveðja
Hulda Katrín
hva?! ég hélt það myndu skapast heitar umræður hér!
er ekki bara málið að finna milliveginn í þessu :) vera ekkert of brazilískur.. 100% brazilía er eitthvað svo of-nakið, eins og hárlaus köttur.
svona snyrting að neðan finnst mér bara í góðu lagi svo lengi sem til dæmis silcon barmar og endaþarmsaflitun er alveg látin vera ;/
hahahaa - þú ert snillingur - endaþarms-aflitun er ofar mínum skilningi!! -
Ég spyr nú bara eins og asni! hvað í andsk... er endaþarms aflitun?
og hvaða gagni gegnir hún?
hahahah hárlaus köttur! viðbjóður. já þessi gullni vegur er vandmeðfarin..
ég sé fyrir mér að endaþarmsaflitun þjóni þeim tilgangi að gera endaþarminn kræsilegri á einhvern hátt. væri gaman að vita hvernig slík aðgerð fer fram og sjá before-after myndin.
Fyrir þessa fáfróðu um endaþarmsaflitun, þá er það víst þannig að með aldri dökknar þar í kringum og er það nýjasta nýtt í Hollywood að láta lita´nn aftur í fallega baby bleika litnum sem við fæddumst með!! ;)
ég og Bríet virðumst fylgjast með óþarfa fréttum, meira en flestir aðrir sýnist mér... :) heh! Nú eru það bara kompás, 60 minutes og fleiri nytsamlegar upplýsingar sem horft verður á hér eftir. Er ekki stolt að hafa upplýst ykkur sérlega um þetta málefni.
með babybleikri kveðju,
Anna panna :)
Sendu inn athugasemd
<< Home