mánudagur, maí 17

MÓTMÆLI VIÐ AUSTURVÖLL
STÖNDUM VÖRÐ UM LÝÐRÆÐIÐ!
ALLIR Á VÖLLINN! SÝNUM ÞEIM RAUÐA SPJALDIÐ!

Fjöldafundur á Austurvelli miðvikudaginn 19. maí kl. 12:10.

Hingað og ekki lengra!

Lýðræði byggist á umræðum, gagnsæi, ábyrgð, virðingu og trausti. Íslensk
stjórnvöld sniðganga lýðræðislega umræðu í hverju málinu á fætur öðru og
beita handafli til að koma fram málum. Írak, útlendingalög, umhverfismál,
öryrkjar, réttindi launafólks, Hæstiréttur, Umboðsmaður Alþingis, kærunefnd
jafnréttismála, og nú síðast fjölmiðlar. Nú er mælirinn meira en fullur.
Leikreglur lýðræðisins eru ekki virtar. Við erum þjóðin, við berum ábyrgð á
lífinu í landinu og lífsskilyrðum komandi kynslóða. Látum í okkur heyra.
Þrengjum okkur í gegnum hlustir ráðamanna. Við viljum raunverulegt lýðræði!
Hingað og ekki lengra! Við mótmælum öll!

Áhugahópur um virkara lýðræði boðar til fjöldafundar á Austurvelli
miðvikudaginn 19. maí kl. 12:10.

Mætum með rauða og gula spjaldið, dómaraflautur, lúðra, trommur,
hrossabresti, ýlur og blístrur. Látum í okkur heyra!

Ýlur og blístrur verða til sölu. Rauðum og gulum spjöldum verður dreift.
Ég kemst ekki..........er að gera ritgerð sem ég verð hæplega búin með á þessum tíma!!

Engin ummæli: