Skilaði núna rétt áðan inn master-písinu minu í opinberri stjórnsýslu. Loksins eru áhyggjurnar sem legið hafa á mér eins og mara, lyft sínu þunga rassgati af mér og ég öll að braggast á vöðvabólgunni í kjölfarið...NOT. Nudd please!! Næsta fjárfesting mín verður almennilegur stóll til þess að sitja í við blessuðu tölvuna. Ég get svo svarið fyrir það að mig verkjar frá rassi upp í haus eftir törnina. Veit að þetta lagast með smá hreyfingu. Ætla að fjárfesta í svona eins og enum nuddtíma og skella mér svo í nuddpottinn. (hvar sem það verður) Svo ef einhver vill æfa sig í að nudda þá má HANN æfa sig á mér ;)
takkfyrirgóðanóttogbless
Engin ummæli:
Skrifa ummæli