.....Hvað bíður okkar handan móðunnar miklu er ráðgáta ein. En ég trúi því að eftir okkar líf herna á jörðinni þá bíður okkar eitthvað annað og meira.
Elskuleg Jórunn er farin úr þessum heimi og ég er sannfærð um að það bíður hennar annað hlutverk núna. Ég bið góðan guð að halda verndarhendi yfir fjölskyldu hennar og fjölskyldu Jonna á þessum erfiðu tímum sem framundan eru. Guð blessi ykkur.
Kveðja
Þar sem englarnir syngja sefur þú.
Sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum,lifum í trú.
Að ljósið bjarta skæra.
Veki þig með sól að morgni.
Veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær.
Faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær.
Aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
Svo vöknum við með sól að morgni.
- Bubbi Morthens
Engin ummæli:
Skrifa ummæli