Gullmolinn hennar Kristínar Maríu
Dagurinn byrjaði frekar rólega. Knús og klór við Gutta, sem er hundurinn á heimilinu. Hann er 1 og 1/2 árs og er algjör gullmoli. Þegar ég bjó í Reykjavík í vetur þá var það hann sem ég saknaði mest, og þegar ég kom í heimsókn í Grindavík þá var það fyrsta sem ég gerði var að klóra honum á maganum og knúsa hann í bak og fyrir. Kom alltaf fagnandi að manni og lagðist á bakið til að fá klór frá Diddu sinni, það er svo gott þegar maður er með svona langar neglur! Ég elska þennan hund út af lífinu og ég var einmitt að hugsa það um daginn þegar ég fór með hann niður í Bót til að leyfa honum að hlaupa, hvað lifið væri sko ekki eins án hans. Svo í dag gerðist merkilegur atburður. Ég var að spjalla við Kobba (14 ára dísapáfagauk) á milli þess sem ég var að sýna Gutta mínum athygli. Allt í einu heyri ég einhvert skrítið hljóð frá honum inni í eldhúsi. Þar stóð hann í bælinu sínu og kúgaðist. Ég hugsaði að þarna væri bara um hreinsun að ræða,enda er þetta eitt af því sem kettir og hundar gera, borða gras til að kasta því upp. Ég hugsaði að þetta væri bara eitt af þeim tilfellum enda hafði Gutti gert þetta einhvern tímann áður. Ég fór því út úr eldhúsinu og kláraði að hafa mig til í vinnuna. Aftur heyri ég hljóð sem var mun undarlegra en hitt, innan úr eldhúsinu. Þegar ég kem inn í eldhús þá liggur gullmolinn minn á gólfinu og hristist allur, eitthvað furðulegt krampakast. Kristín fékk áfall og kallaði á múttu sína sem kom í hvelli. Ég var viss um að eitthvað stæði í honum og að nú væri hann að kafna greyið. Mamma náði í sleif til að reyna að opna öndunarveginn, en hann var með svo mikinn krampa að hann beit í puttann á henni og blóð fossaði út um allt. Stuttu síðar hættir hann að skjálfa og hrökklast eitthvað í burtu frá okkur og fer að urra og gelta. Eitthvað sem hann hefur aldrei áður gert. Þarna hélt ég að litla greyið væri kominn með hundaæði. Við urðum öll skíthrædd við hann og á endanum fór hann inn í herbergið mitt og við lokuðum því á meðan við hringdum í dýralækni. Ég ætla ekki að útskýra meira í smáatriðum. Mamma fékk stífkrampasprautu vegna hundbitsins (N.B. þá beit hann hana ómeðvitað) Gutti fékk mjög sennilega flogakast og eiga þeir það því sameiginlegt með mannfólkinu. Ástæðan fyrir því að hann urraði á okkur var sennilega vegna þess að hann var að vakna úr "tranzi" sem hann man ekkert eftir. Núna er ég að vinna og get ekki beðið eftir að komast heim til að heimsækja greyið sjúklinginn á heimilinu. Ég er búin að hringja heim tvisvar í dag til að tékka á Gutta og mömmu og heilsast þeim eftir atvikum vel. Nú er bara að bíða og vona að þetta tilfelli í dag verði það eina í lífi Gutta míns enda ekki löng ævi þessara yndislegu dýra sem gjarnan eru nefnd BESTI VINUR MANNSINS
Tryggðin, vitið, traustið, blíðan
táknar feril þinn. Birtu færir,
bætir líðan besti vinur minn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli