mánudagur, nóvember 15

Fallið verk!

Kristín er ekki alveg að skilja kennara í dag........kannski af því að hún er ekki kennslukona.....kenndi nú samt einu sinni einn vetur í Holtaskóla í Keflavík. Það var mjög skemmtilegt en mikil vinna. Þá virkilega skildi ég kröfu kennara um hærri laun. En hvað er samt málið með hegðunina? Ef fólk vill láta taka sig alvarlega þá verður það nú að halda sig á virðingarstallinum. Mér finnst þeir hafa farið offari í baráttu sinni fyrir betri launum. Og að mæta ekki í dag til þessa að kenna þegar búið er að setja lög á þá.........hvaða fordæmi er það? Alla vegana, ég styð það að kennarar eiga skilið betri laun og allt það, en ekki með þessum hætti........já já, kannski má það vera að það gerist ekkert á Íslandi nema fólk geri allt brjálað, en mér finnst þetta samt einum of............

......Það var nú þannig einu sinni að sjómenn máttu þola sömu aðstöðu og kennarar í dag. Það voru sett lög á þá eftir að þeir höfðu verið í verkfalli í um tvo mánuði. Þeir voru sendir út á ballarhaf í brælu með ekki eina einustu bót meina sinna..........Ekki komust þeir upp með það að mæta ekki vegna veikinda.........enda jaxlar að guðs náð sem ekki þurfa á áfallahjálp að halda þó móti blási!


Engin ummæli: