miðvikudagur, nóvember 3

NÁGRANNAR...........afsakið þetta!

Skunduðum niður í Listasafn Reikjavíkur í gærkveldi. Gestalistinn vandlega skoðaður og merkt samviskusamlega við nafnið mitt. Sögðum okkar álit á því hvern við TÖLDUM að myndi vinna forsetakosningarnar. Smelltum á skjáinn, "Female, 24 years old, John Kerry". Fólkið í Hafnarhúsinu, sem var hátt í 500 talsins, taldi svooooo rangt. Niðurstaða þessarar könnunnar sýndu að 70% sögðu Kerry vinna en 30% Bush. Phúúúú!!

Eftir að hætt var að "servera" áfengar veigar missti fólk áhugann á því að vera þarna. Skrýtið. Fékk mér Mac kjúlla burger, hann var góður, enda stúlka hungruð as hell! Skemmtilegt hversu fjölbreyttar veitingar voru í boði og þakka ég hér með bansaríska sendiráðinu kærlega fyrir þetta skemmtilega boð.

Aftur á móti langar mig að biðja þá nágranna mína, sem ekki sváfu sökum mikillar kosningaspennu og tónlistar úr íbúð stúlku, afsökunar. Áttaði mig ekki alveg á stöðunni fyrr en tveir einkennisklæddir lögreglumenn mættu í dyrnar og spurðu um húsráðanda...........Við lækkuðum í okkur og allir sáttir.............I hope. Fékk það á tilfinninguna í gær að ég væri á Hrafnistu-campusnum.

Engin ummæli: