Omar & egg (eða nit?)
Stúlkan er komin í hollustuna........það því marki sem hún nær. Fór með moms að versla í bónus í síðustu viku. Eftir að hafa fyllt körfuna af hollum mat þá ákvað ég rétt áður en ég fór að borga að kippa einum poka af þurrkuðum eplum með mér. Finnst þau góð.
Í gærkveldi þegar sykurþörfin var allveg að fara með mig hugsaði ég til eplanna minna uppi í skáp. Reif pokann úr skápnum og opnaði hann. Hélt áfram að pikka á tölvuna og borðaði eplin úr pokanum hugsunarlaust.
Svooooooo í morgun áður en ég skaust út úr dyrunum, til þess að fara í tíma, hugsaði ég með mér "það væri nú gott að taka eplin með, til að narta í í frímó ef að ég verð nú svöng". Þannig að eplapokinn fékk að fara með í töskuna. Í gagnagreiningu tek ég upp pokann í pásunni og fæ mér. Býð Siggu Dögg og fleirum. (Atli afþakkaði, heppinn)
Þegar ég er að gæða mér á einu af eplunum, ákveð ég að skoða það aðeins, enda var ég þarna bara í dundinu í frímó. Hafði ekkert annað að gera en að tékka aðeins á því sem ég var að borða, en hefði betur gert það aðeins fyrr, eins og til dæmis í gærkveldi þegar ég var að hakka þau í mig hugsunarlaust!!
Þegar ég fer að rýna í eplið, NEI, þurfti ekki einu sinni að rýna! Er ekki bara félagi ORMUR mættur á svæðið. Svona hress bara, brosir vandræðilega framan í mig, með sitt svarta trýni, og ég er viss um hann hefur sagt á ormamálinu, ekki borða mig líka, PLESAE!
.........Og ekki borða alla ófæddu ormana sem hafa ekki enn náð að klekjast! Því ekki var einungis félagi Ormur þarna heldur trilljón egg út um allt!!
Nei, þetta var ekki draumur. Gerðist reyndar bara núna í morgun. Ég sit hérna og mig klæjar alls staðar. ALLS staðar.
Það fyndna var svo að í hádeginu fórum við krakkarnir á Vegamót. Ég og Anna Steinunn ákváðum að vera nettar og fá okkur humar og súpu. Með humrinum kom svo salat með hrísgrjónum. Litlum sætum hrísgrjónum sem minntu óneitanlega á félaga Orm og hans fjölskyldu í Lions Quest.
Ég mun fara með pokann góða á mánudaginn til framleiðanda, ákvað að tékka á félaganum, svona rétt aðeins. Hann er í góðum málum með sín egg og kúrði sig í pokanum ásamt fleirum................Spurnign hvort ég endurskoðu ekki hollustu fæðið og kaupi mér bara það sem mér finnst best..........Freyju hríspoka!! ummmmmm
Engin ummæli:
Skrifa ummæli