þriðjudagur, mars 16

MÓTMÆLUM SKÓLAGJÖLDUM!!
Núna er í gangi undirskriftalisti í öllum byggingum Háskólans þar sem þeir sem eru andvígir skólagjöldum eru beðnir um að skrifa nafnið sitt og kennitölu. Þessum listum munum við svo safna saman og leggja fyrir háskólafund sem fram fer 22.mars þar sem ákveðið verður hvort veita eigi menntamálaráðherra heimild til þess að leyfa Háskóla Íslands að innheimta skólagjöld, síðan verður að taka þetta fyrir á þinginu. En með þessu viljum við sýna fram á að við erum á móti því að jafnrétti okkar til náms verði skert með þessum hætti!

Svo er ég mjög ósátt við það að núna verðum við að fara að borga skráningargjöldin um leið og við skráum okkur í skólnann eða í næstu viku, þetta hefur alltaf verið þannig að hægt hefur verið að borga þau í júní (þegar maður er komin með smá penge) en núna er bara ákveðið að við skulum gjöra svo vel að borga strax!! Þó svo þetta sé lagalega leyfilegt þá verður nú að taka smá tillit til þeirra sem ekkert eru að vinna með skólanum! Par sem stundar háskólanám verður að punga út 70 þúsund krónum á stundinni! Þetta var eiginlega ekki á það bætandi, eftir allar umræðurnar um skólagjöldin!

Engin ummæli: