mánudagur, mars 1

Það er kominn MARS!!

Það er alveg með ólíkindum hvað þetta blogg getur tekið mann heljartökum! Þetta er eins og ópíum! Helgin mín fór ekki í það sem ég ætlaði með að nota hana í.......ég ætlaði að lesa en fór í staðinn að búa til nýtt blogg. Það hefur staðið lengi til að fara úr þessu gamla og leiðinlega "lúkki" yfir í eitthvað meira "pró", ég fylltist metnaði þegar ég sá síðuna hans Agga, en hann hannaði hana reyndar alveg sjálfur. Ég er reyndar búin að læra alveg ótrúlega mikið á þessi HTML skjöl og líka að búa til myndasíðu sem ég hafði ímyndað mér að væri alveg stórkostlegt mál að gera..........kom svo ekki bara í ljós að þetta er auðveldara en allt.......nema ég sé bara svona klár. En ennþá vantar mig að verða mér úti um digital myndavél, þannig að ef það er einhver þarna úti sem veit um ódýra (má vera notuð) myndavél þá endilega að láta Kristínu Maríu vita! Annars er skemmtst frá því að segja að það er búið að draga (að ég held) í Egils kristals leiknum sem Ölgerðin stóð fyrir, ég safnaði auðvitað 10 töppum og brunaði svo á síðustu stundu með þá upp á Grjótháls (takk Helgi) og var alltaf frekar bjartsýn á að vinna skíðaferðina til Ítalíu. En allt kom fyrir ekki, ég fékk enga símhringingu í gær og svo hef ég hvergi séð auglýst hverjir það voru sem að unnu. Ég tók mig því til þegar ég var á síðunni þeirra að spyrja bara......þarna var líknkur sem á stóð "hafði samband" og ég bara gerði það, spurði einfaldlega bara hvort það væri búið að draga og hvar ég gæt séð það hverjir hvefðu unnið! Ég meina þeir gætu allt eins bara verið að plata!! Ég að hamast við að safna töppum og svo var það kannski bara til einskis, vegna þess að það var ekkert dregið! Nei, svona öllu gríni sleppt þá ættu þeir nú að vera búnir að setja nöfn þeirra sem dregnir voru út á síðuna!

Það sem er svo næst á dagskrá hjá mér er verkefni í opinberri sem ber yfirskriftina "er farsælt að kjósa dómara í embætti?" Síðasta verkefni var um vændi og fór ég í það að tala bara um eitthvað allt annað en það sem verið var að spyrja um.......það varð líka til þess að ég fékk ekki 10 í einkunn! En svo fer að koma að því að stjórnarskipti verði í stúdentaráði og hlakka ég mikið til þess að starfa í ráðinu, og ef þið skólasnúllar hafið yfir einhverju að kvarta í sambandi við skólann þá vitið þið hvert þið eigið að leita ;)

Ég las það frá honum Hjörvari að hann þyrstir í að heyra eitthvað slúður.......mér er það ekki í blóði borið að slúðra........mér finnst slúður vera eitthvað neikvætt en ég get hins vegar farið í það að segja skemmtilegar og uppbyggilegar sögur af hinum og þessum. Það er náttúrulega allt annað mál. En ég ætla að hugsa eitthvað sniðugt til að skrifa næst, núna ætla ég hins vegar að hjóla út í Odda í rokrassgatinu og hitta hitt liðið og fara að gera eitthvað að viti, ég er búin að komast að því að ef að ég er hérna heima hjá mér þá geri ég akkúrat ekkert!!.......(að viti)
Að lokum ætla ég að láta fylgja með málshátt sem snýst einmitt um það að slúðra!!

Málsháttur 1:
Sá sem talar illa um aðra, þegar þú ert nærri, talar illa um þig, þegar þú ert fjarri.

Málsháttur 2:
Upplognar gróusögur eru vopnin, sem dvergarnir grípa til þess að fella risana.


Ég kem með slúðrið hjörvar um leið og ég frétti eitthvað ;)
Ég er ekki viss um að slúður sé svona rosalega neikvætt en mér finnst það bara á orðinu. Tala frekar um skemmtilegar sögur sem eru ekki til þess fallnar að gera lítið úr þeim sem um er rætt!

hilsen

Engin ummæli: