sunnudagur, mars 7

Búin að eiga ágætis helgi. Fór á Pravda á föstudagskvöldið, Politica var með myndakvöld og loksins gafst mannskapnum tækifæri á að sjá hið frábæra skemmtiatriði 1.árs nema sem klikkaði í sýningu á árshátíðinni. Að sjálfsögðu var bjór í boði fyrir gesti og Kristín sem var búin að ákveða að vera ekkert að fá sér féll í freistni og fékk sér nokkra. Eftir góðar stundir á Pravda í góðum félagsskap var leiðinni haldið á Leikhúskjallarann. Mikið var um dýrðir á þeim staðnum enda heimspekideild að hala sína árshátíð. Þar tjúttðum við á milli þess sem við héngum á barnum og skelltum í okkur "Lemon drop" (sjá útskýringu í "week´s best") Eftir um klukkustundar veru á kjallaranum var stefnan tekin á skemmtilegasta stað bæjarins, Celtic Cross. Þar lauk skemmtuninni undir morgun við ljúfa tóna Bubba Morthens.

Í gær gerði ég mest lítið, var í rúminu til 18.00 og borðaði fyrstu máltíðina um kvöldmat. En ég og Steinunn skelltum okkur í göngutúr um miðnætti í gær, hún var búin að tilkynna mér að það væri ferlega gott veður síðan þegar við komum út var komið þokkalegasta rok og þegar við svo héldum heim á leið var komið leiðindaveður. Núna er minns að spá í að reyna að gera eitthvað af viti, taka aðeins til, þvo nokkrar vélar og lesa svo í opinberri stjórnsýslu.

Hilsen folks!

Engin ummæli: