laugardagur, mars 13

Það hefur þó nokkuð drifið á daga mína seinnipart vikunnar. Fór á fyrsta stúdentaráðsfundinn á fimmtudag þar sem stjórnarskipti fóru fram. Ég verð í lánasjóðsnefnd auk þess sem ég er varamanneskja í stjórninni. Eftir fundinn fórum við á Vegamót til þess að skála fyrir frábærum meirihluta og fengum okkur líka að snæða þó svo ég hafi einungis fengið mér maís tortillaflögur (enda góðar með bjór). Eftir Vegamót var ferðinni haldið niður á Stúdentakjallara enda "happy hour" frá 20-22, og að sjálfsögðu nýttum við okkur það ;) Það áttum við ánægjulegar stundir og eftir því sem bjórunum fjölgaði urðu umræðurnar heitari, og ég og Borgar þrættum mikið um ákveðin mál er varða stefnu kennda við fiskkveiði. Á föstudagsmorgun vakaði ég snemma og mætti í stjórnmálaheimspekina til Hannesar en ákvað að skrópa í opinberri til þess að fara heim setja saman ræðu fyrir landsráðsþingið (skemmtilegt heiti) sem Frjálslyndi flokkurinn hélt á Hótel Loftleiðum á fös og lau. Þar flutti ég 10 mín ávarp á eftir formanninum Guðjóni. Síðan hittumst við í morgun og málefnavinnan hófst sem var mjög skemmtileg. Ég skráði mig í hópinn um utanríkismál og dómsmál það sem NATO, ESB, EES og fleira voru tekin fyrir. Núna er smá breik og ég er að spá í að leggja mig í svona klst áður en haldið verður niður í Aðalstræti þar sem ég mun hitta flokksfélagana og skála kannski í einum bjór eða svo fyrir vel heppnuðu málþingi!
Hilsen
didda mæs

Engin ummæli: