miðvikudagur, mars 10



Dagurinn hófst snemma þar sem við héldum í Flensborg klukkan 8.40. Þegar þangað var komið beið okkar fullur salur af áhugasömum nemendum um stjórnmál. Þarna voru 5 þingmenn og 5 ungliðar úr hverri hreyfingu. Þingmenn drógu sér mál til þess að ræða um og fékk Sigurjón lögleiðingu kannabisefna! Eftir flutning þingmannanna á málefnunum var komið að okkur ungliðunum að kynna okkar hreyfingar og gekk það bara vel. Eftir Flensborg fór ég upp í Odda til þess að læra smá áður en ég hélt á annan fund sem Vaka hélt í Lögbergi um forsetaembættið. Þar voru mættir Ástþór Magnússon, Svanur Kristjánsson, prófessor í stj.mála.fr og Borgþór ritstjóri Deiglunnar. Sá fundur var svo sem ágætur nema þegar spyrjendur og þeir sem sátu fyrir svörum voru beðnir að stytta mál sitt vegna tímaskorts þá hafði það þveröfug áhrif og Svanur kom með sögu forsetaembættissins frá upphafi! Eftir það fór ég upp á skrifstofu stúdentaráðs til þess að fá lykla af kosningamiðstöðinni sem við vorum með í baráttunni í síðasta mánuði til þess að ná í moppuna mína, en ég hef ekki sópað hjá mér í X langan tíma, Bryndís snúlla var svo elskuleg að skutla mér þangað en þegar þangað var komið greip ég tómt, annað hvort fékk sér einhver ókeypis moppu eða þá hefur hún verið flutt að Hólmaslóð, í Vökuheimilið! Vegna mánaðarlegrar magakveisu ákvað minns að skippa tíma í samanburðarstjórnmálum og skreið ég þess í stað undir sæng og svaf vært á meðan íbúfenið sá um að lina verkina. En nú rétt bráðum mun ég sækja þriðja fundinn minn í dag, vikulegur hittingur hjá frjálslyndum ungliðum þar sem endanleg sátt mun nást um nýmótaða stefnu í utanríkismálum!

Heppnin var líka með þeim sem áttu leið um Odda í dag, en þar voru starfsmenn Kötlu að gefa pönnuköku-, vöflu- og skúffukökumix ásamt því að við fengum líka þeyttan jurtarrjóma í þrýstibrúsa! Nú er bara að skella sér suður í Grindavíkina sem fyrst og fá afnot af vöflujárninu og pönnukökupönnunni hennar moms!...............Mama I coming home, Because I miss you all :)

Engin ummæli: