mánudagur, mars 15

LOKSINS KOM GOTT VEÐUR!!
Það hefur aldeilis lifnað við landanum í dag, alla vegana hérna í Reykjavík. Eftir leiðindaveður svo vikum skiptir er loksins farið að rofa til. Ég skelltir mér í hlaupa-göngutúr, átti reyndar bara að vera hlaup en þegar mín var lögð af stað kom í ljós að þolið sem ég hafði eitt sinn (fyrir langa löngu) byggt upp, var hrunið til grunna nánast. En ég tók samt sem áður klukkutíma túr í kringum Vatnsmýrina, fór meðfram Ægissíðunni og upp að Perlu, framhjá Loftleiðum og svo niður hjá BSÍ og framhjá Öskju (nýja náttúrufræðihúsinu) og síðan framhjá Ísl. erfðagreiningu og skellti mér loks inn í 1011 til þess að lesa blöðin (ekki fæ ég Fréttablaðið lengur......nema um helgar) Og ég hugsa alltaf með mér þegar ég er búin að taka svona slurk, "af hverju gerir maður þetta ekki oftar?" Sæluvíman sem situr eftir í líkamanum þegar maður er búin að taka á því er þvílík, líka ódýrari og heilsusamlegri en einhver önnur víma.............En nóg um ræktina..........ég var að tala um það áðan hvað það lifnar yfir fólki þegar vel viðrar, allt fólkið sem ég mætti var skælborsandi út að eyrum, annað hvort á hjóli, línuskautum eða á rölti með barnavagninn! Ég stend engu að síður klár á því að það hefur helling með andlega líðan að gera hvernig veðrið er..........þó svo mér finnist það mjög kósý að liggja undir sæng og horfa á góða bíómynd þegar það er blindbylur úti ;)

Engin ummæli: