miðvikudagur, mars 3

Ég fer að slá íslandsmet í fundarsetu! Ef að ég er ekki þegar búin að slá það. Það er mikið búið að vera að gera hjá minni síðustu daga. Stúdentaráðsliðar Vöku eru búnir að vera að koma saman og ræða næsta starfsár, svo er mikið um að vera hjá okkur í UF og svo er það náttúrulega skúlen..........er að vinna að verkefni í opinberri stjórnsýslu um það hvort það sé farsælt að kjósa dómara í embætti.

Ég var annars á mjög svo fjörugum fundi áðan hjá UF. Við vorum að ræða utanríkismálin, en síðast ræddum við NATO og í kvöld var það EES og ESB. Ég er persónulega á móti því að við göngum inn núna. Ég er ekki tilbúin að sjá okkur afsala okkur fullveldi okkar og að hlutunum sé stjórnað frá Brussel. Svo finnst mér mikilvægt að við höldum fullum yfirráðum yfir fiskimiðum okkar. En nóg um ESB......í bili.

Pepsí eru búnir að gera MASSA auglýsingu sem ég sá sýnda á popp tv áðan. Og ekki spurning að karlpeningurinn á ekki eftir að geta haldið vatni yfir henni. En hún er svona í anda Gladiator. Þarna koma Pink, Britney og Beoncé léttklæddar í einhvers konar skylmingar-"outfitti", þær labba inn í hringinn þar sem þrælarnir voru látnir koma inn í til að berjast. Svo er Enrique Iglesias keisarinn sem er að fylgjast með. Svo fara þær allar að syngja "We will rock you" þangað til að pepsíið dettur af pallinum. Ég bjóst alltaf við að heyra línu frá kauða en allt kom fyrir ekki.........enda kannski ekki skrítið, kann maðurinn nokkuð að syngja?

En þetta er komið gott í bili, Paradise Hotel er að byrja, ég verð að fylgjast með því svo ég geti verið með í umræðunum í skólanum á morgun!

Engin ummæli: