Mér finnst Hannes Hólmsteinn leiðinlegur í dag.......ég er ekki í tíma hjá honum núna er var það í gær. Og hann var leiðinlegur þá, og pirraður. Stundum er hann ágætur og líka skemmtilegur og líka skrítinn á köflum, en í gær var hann leiðinlegur og hann er það ennþá í dag. En að sjálfsögðu hendi ég ekki svona fullyrðingu bara fram í gamni mínu. Þannig er mál með vexti að skv. kennsluskrá er prófið 50% og svo eru 2 ritgerðir sem eiga að gilda 50%, allt í lagi með það. Svo hefst önnin og við fengum enga kennsluáætlun (eins og ég er búin að fá í öllum kúrsum sem ég hef tekið í HÍ) Þegar það er komið fram í mars bólar ekkert á ritgerðarefnum, þangað til einhver vogar sér að spyrja hann. Þá segir hann víst (var ekki í tímanum) já, þið viljið gera ritgerð. Það verður tímaritgerð eftir viku, eða svona nokkurs konar próf. Allt í lagi með það, en rólegur á fyrirvaranum! Eftir mikið kvart og klag ákvað hann að fresta því og gefa okkur annan kost, sem er skv kennsluskrá, 2 ritgerðir, annari eigum við að skila 26.mars sem er á sama tíma og tímaritgerðin og svo á mánudeginum 29.mars. Ég ætla klárlega að fara í þetta ritgerðarpróf. Svo í gær, þegar hann varð leiðinlegur segir hann okkur að hann ætli ekkert að fara yfir ritgerðirnar og prófin fyrr en eftir lokaprófið, vegna þess að hann ætlar að sjá hvort við náum, og ef að við náum ekki, þá ætlar hann ekki að eyða tímanum sínum í það að vera að fara yfir ritgerðir og tímaprófið!!! Halló! Þetta eru hvoru tveggja 50% og ef að við náum ekki þessu ritgerðum ekki þá erum við hvort eð er fallinn!! Gaman að vera að lesa og lesa og lesa fyrir lokaprófið og svo er maður bara að því til einskins, við erum hvort eð er fallinn. En svona er kallinn í hnotskurn, passar sig á því að eyða ekki óþarfa púðri í eitthvað sem ekki er þess virði að vera að gera!! Hvað er maðurinn að gera í kennslu?, með fullri virðingu fyrir manninum, það er yfirleitt mjög gaman í tímum hjá honum og hann veit svoleiðis hafsjó um allt og allt, en kommon. Allt í lagi að vera pínu sanngjarn. Ég er ennþá svo pirruð og mér finnst hann ennþá leiðinlegur í dag og ég veit ekki hvar þessi maður á heima! (sama hversu vel ég les bókina hans)...........og hann verður örugglega leiðinlegur þangað til í vor, þegar ég fæ 8 :D, þá verður hann ágætur aftur
Engin ummæli:
Skrifa ummæli