Ég verð nú bara að lýsa andúð minni á forseta Bandaríkjanna. Fyrir það fyrsta þá hefur maðurinn aldrei verið í mínu uppáhaldi enda hefur hann ekki gert neitt til þess að vinna sér þá málsbót inn. Nýjasta dæmið er auglýsingin sem hann ætlar að nota í kosningaherferð sinni í nóvember sem verður á móti John Kerry, klárlega. Bush var víst búinn að lofa því að nota ekki þá atburði sem gerðust 11.september 2001 í baráttunni en allt kom fyrir ekki. Auglýsingin sem er svona 30 sek á lengd inniheldur þann hræðilega atburð sem átti sér stað fyrir tæpum 3 árum. "A day of tragdedy" Þar sjást þessir atburðir í mynd, svo kemur "A test for Americans" Eins og Bush hafi staðið það próf af sér með sóma! Ég meina það, er mönnum ekkert heilagt? "Rising to the challange" My ass. Ég er svo handviss um það að Kerry eigi eftir að vinna þessar kosningar og ég vona að þeir sem búa í USA og hafa rétt til þess að kjósa sjái að Bush er langt frá því að vera hæfur til þess að vera forseti eða stjórna nokkrum sköpuðum hlut.
Ég skil vel að fólk skuli vera ósátt, sérstaklega þegar fórnarlömb þessarar árása eru notuð sem auglýsingarvara. What is the world coming to?.......Æi ég veit ekki, ég er bara svo ósátt við manninn og vona svo heitt og innilega að Kerry sigri án þess að ég viti kannski nákvæmlega hvernig maðurinn er, en utanríkisstefnur Demókrata hafa yfirleitt verið mun friðsamlegri en rauðu djöflanna! nei smá grín. Hvað gerði ekki Clinton, hélt Ísraels og Palestínumönnum við samningaborðið og svo tekur Bus við þá er fjandinn laus. Ég held að það verði öllum heiminum til tekna ef að Bush fari bara að gera eitthvað annað, skrifa bók bara, hvað það er skemmtilegt að vera minnst sem Anti-krists, sem kom fram á 21 öldinni eins og Nostradamus spáði fyrir. Annars væri ég líka alveg til í að Hillary Clinton yrði bara varaforseti, það eru töggur í kellu.
Að lokum vil ég bara lýsa yfir ánægju minni með háskólarektor að það skuli verða kennt táknmál næsta vetur, það verður allavegana þeim heyrna- og mállausu til tekna!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli