mánudagur, september 12

Nyr simi, nyr kurs og goð helgi að baki




jæja gullin mín - stúlka komin með nýjan síma og þakkaði sínu sæla að hafa gert "back-up" á símaskránni þegar númerin voru að nálgast 200 á sínum tíma. Nýja elskan er hinn fínasti nema að ég var ekki sátt við kommentið hans Adda á lau......"já,svo þú ert komin með svona dömubindasíma". Æi þið vitið - einhver segir eitthvað um einhvern eða eitthvað og það svona festist við hann eða það.
Helgin var massive og tekið á djamminu bæði fös og lau. Byrjar gáfulega þessi önn - tel skynsamlegast að klára kvótann sem fyrst svo ég eigi örugglega ekkert eftir þegar kemur að prófum. Þakka annars Vökuliðum frábæran föstudag - myndir eru komnar á síðuna - gjössovel Boggi minn. Svo þakka ég Sigrúnu afmælisboðið, krökkunum hressleikann og Bríeti og vinkonu ferðina á Ólíver sem var skemmtileg. Þar stóðu uppúr hressir boltastrákar með allt of blekaðan þjálfara enda drengir nýkomnir upp í úrvalsdeild. Til lykke með það.
Annars er minnið hjá stúlku eftir svona bæjarferðir ekki að gera sig - á laugardaginn leitaði ég dauðaleit að jakkanum mínum og trefli. Fann ekkert á þessum "200" fermetrum sem ég bý á og rölti niður á Hressó, hrindgi í Hreyfil, talaði við þau á Quiznos en engan jakka að finna. Kom heim og fann hann vafinn í rúmteppið. Er það ekki orðið slæmt þegar maður man ekki hvort maður koma heim í jakka eða ekki? *jafnvel að Vaka hafi boðið OF mikinn bjór? Það er a.m.k mín kenning. En hressleikinn var að drepa Kristínu á laugardeginum, því ekki labbaði hún bara niður í bæ, heldur fyrst niður á Granda, nánar tiltekið að Hólmaslóð 4 til þess að pikka upp ibookinn minn - þreif svo hátt og lágt og tók saman 10.milljónir af dósum og flöskum. Geri aðrir betur.

annars er ég mjög hamingjusöm með það að ekki eru nema 4 dagar í næstu helgi sem verður með heldur breyttu sniði. Stúlka mun taka að sér vinnu í erfidrykkju og hala inn nokkrum aurum í leiðinni. Ég ætla að kaupa mér hús og bíl nefninlega.......í framtíðinni sjáðu til.

Já - og ég skráði mig úr mann"killer"sögunni og fór í Fjölmiðlafræðinna - sem er skemmtileg. Sagan er það líka - hentaði bara ekki.

3 ummæli:

Kristín María Birgisdóttir sagði...

æi, lenti í smá veseni í gær - kemur meira síðar, meira að segja rétt bráðum!

Nafnlaus sagði...

Mátt klárlega taka þessa mynd af mér út, bara ljót sko !!!!

Nafnlaus sagði...

Viltu vinsamlegast minna mig á hvað var svona fyndið hjá mér á þessari rosa hlátursmynd ?? Kannski bara mína almenna fyndni að slá í gegn hjá sjálfri mér ;)