mánudagur, september 26

Mogginn stikkfri skv Doddsyni


Ég tók eftir í því þegar ég horfði á fréttirnar í gær að Baugsmálið tók næstum hálfan fréttatímann. Það er kannski ekki skrýtið þar sem að allt of mikið virðist vera að koma fram í dagsljósið varðandi þetta mál. Almenningur hefur ekki undan að lesa sig til um allar þær "lygar" og "rógburð" sem að fréttamenn virðast vera að henda fram í útvarpi, sjónvarpi og blöðum. Merkilegt finnst mér að Davíð Oddsson skuli segja í útvarpsviðtali að fjölmiðlar hafi látið misnota sig. Hann segir þá ótrúverðuga, þeir "steli" persónulegum gögnum og að lokum gat hann sagt að Morgunblaðið hefði EKKI farið illa með sig í þessu máli. Ég spyr nú bara sjálf: Er miðill trúanlegur þegar ritstjóri blaðsins liggur eins og hæna á eggi á eins mikilvægum upplýsingum eins og virðist hafa komið í ljós í þetta langan tíma? Er Styrmir bara gúddígæ? Ég hreinlega spyr.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, hann er óttalega gúddí gæi bara... :)

Kristín María Birgisdóttir sagði...

hehehe - frábært að einhver hefur skoðun á þessu máli ;)

Huginn sagði...

Hef nú ekki nennt að fylgjast með þessu Baugsmáli að neinu ráði. En það liggur fyrir að það er heilmargt sem við vitum ekki, þetta sem hefur komið í ljós er bara toppurinn á ísjakanum ef svo má að orði komast. Þykir nýjustu upplýsingar renna sterkum stoðum undir að það hafi verið pólitískt unnið gegn Baugi, hvort sem það hafi komið skilaboð beint frá Davíð eða ekki. Menn hafa þá kannski fundist þeir vera að vinna að sameiginlegum hagsmunum, enda Davíð gagnrýnt þá harðorð í fjölmiðlum. Svipar til þess er herstjórar fóru hart um í Serbíu, fengu sumir aldrei sannanlega beinar tilskipanir um óverkin en ljóst þykir að það hafi verið í anda stefnu Milosevic og því komið frá honum. Menn þurfa ekki endilega að blanda sér beint í málin með svo marga félaga að vinna fyrir sig. Mig er farið að gruna að Davíð hafi eitthvað átt hlut að máli en líklegast fær maður aldrei að vita alla málavexti... en nú lofa ég að röfla ekki meir hér :) Það er bara svo sjaldan sem maður rekst á pólitíska umræðu á netinu..

Nafnlaus sagði...

Það virðast nú ansi margir hafa legið á þessum upplýsingum... ekki bara Morgunblaðið.

Kristín María Birgisdóttir sagði...

já, það er rétt hjá þér - allir að verja hvorn annan