Vil byrja á því að tileinka færlsunni bróður mínum, honum Sigurði. Hann á afmæli í dag 14.september, fyrst af öllu er hann merkilegur fyrir þær sakir að hann kom í heiminn fyrir 28 árum, en einnig vegna þess að Morten í AHA leit líka dagsins ljós þó sennilega þónokkuð mörgum árum áður. Þótti ekki leiðinlegt hérna í dentíð að eiga sama afmælisdag og hann. Annars vona ég að kauði muni eiga góðan dag og fái fullt af pökkum. Sem stendur er ég að reyna að hringja í hann en auðvitað er á tali og fólk keppist við að bjalla í gæjann - sennilegast að tékka á því hvað hann vilji fá í afmælisgjöf.
Annars er heilsuátakið byrjað enn einu sinni enn - í c.a. 150. sinn! EN..... betra að byrja oft en aldrei :)
Fyrir þá sem eru í vandræðum með að finna sér eitthvað hollt og gott að borða að morgni dags er hér smá uppskrift. Algjörlega idiot-proofed. Þetta er mjög gott og kemur á óvart.
1 og 1/2 bolli haframjöl (og svo vatn þannig að það nái rétt yfir mjölið).
1 stk lítið grænt epli
1 tsk kanill (ekki sykurinn)
1/2 bolli kókoshnetumjólk (tælensk í niðursuðudós)
Hitið haframjölið og vatnið saman í c.a. 3 mín (ekki við mikinn hita). Skerið eplin í bita, takið hýðið af þeim. Þegar grauturinn er farinn að hitna þá skellið eplunum út í og hrærið saman. Blandið saman kókósmjólkinni og kanil og hellið út í þegar grauturinn er orðinn þykkur og hrærið saman. Hitið áfram í c.a. mínútu. TILBÚIÐ!
Þessi uppskrift var í boði tilraunaeldhúss Kristínar.
Note bene: Uppskriftin er gefin með það í huga að fólk kunni ekki að gera hafragraut......já, ég veit, það er nauðsynlegt þar sem að þarna úti fyrirfinnast einstaklingar sem hvorki kunna að sjóða egg né kartöflur!
Annars
1 ummæli:
takk - þú ert lika ágætur..
Skrifa ummæli