laugardagur, september 24

karamellu Haagen Dazs takk!


nei - ekki alveg hættissu - fór yfir gærkvelið í höfðinu sem var bara frekar gott. útihlaup reddaði svo heilsunni og til að toppa daginn í dag ákvað ég að koma við í 10-11 og láta eftir mér box af Haagen dazs ís - boxið er 1/2 lítri og kostar litar 789 krónur - það misheppnaðist að toppa daginn. Haagen dazs er nebbla alls ekki eins góður með jarðaberjabragði eins og karamelluísinn. Hann er bara vondur.
Annars eru Valsmenn Bikarmeistarar eftir frekar leiðinlegan leik og Pravda og Hressó fá verðlaun fyrir að vera drepleiðinlegir skemmtistaðir.

2 ummæli:

sunnasweet sagði...

Muhaha...hefði getað sagt þér þetta með Pravda og hressó long time ago ;)
Gusgussarar voru æði á Nasa í gær...svo var stemming á Kbarnum!
Stemmingin í dag var aftur á móti í takt við drykkjuna í gær...

Kristín María Birgisdóttir sagði...

hehehee - já, vissi fyrir löngu hvernig þetta væri á þessum tveimur stöðum svo sem - en maður eltir vísindapakkið á Pravda og svo fer maður í kveðjupartý á Hressó - allt annar rúntur tekinn í gær skal ég þér segja - edrú, labbað heim og hressleiki í dag ;)