fimmtudagur, september 29

Mun alnæmi lækna sig sjalft?

Alnæmi ásamt krabbameini virðast vera þeir sjúkdómar sem læknavísindin eru ráðþrota yfir. Árlega deyja þúsundir í heiminum úr krabbameini og alnæmi og mætti skipta þessu niður á þróuð lönd og vanþróuð. Mikil krabbameinstíðni er á vesturlöndunum og í Afríku deyr fjöldinn allur úr alnæmi, þó svo að tilfellin séu vitaskuld í báðum þessum heimshornum. En rannsóknir hafa sýnt að HIV veiran sem veldur jafnan alnæmi, er að veikjast. Þegar borin voru saman sýni síðan 1986-89 annars vegar og svo frá 2002-3 kom í ljós að veiran hefur veikst. Þrátt fyrir þetta ætla vísindamenn að sjálfsögðu ekki að draga úr tilraunum sínum til þess að finna lækningu við þessari skæðu veiru og telja þeir að hugsanlega eftir 50-60 ár mun vírusinn ekki lengur reynast banvænn.

Engin ummæli: