Sat á spjalli við nokkra varnarliðsmenn í vinnunni í sumar. Vorum að tala um hvaðan þeir væru í Bandaríkjunum. Einn þeirra sagðist vera frá NEW Orleans og var mjög stoltur af sinni borg og fylki. Ég lét í ljós mína þekkingu á borginni (síðan ég las Lifandi vísindi hér um árið. "Já, blúsborgin góða sem liggur milli tveggja fljóta og dælur hafa ekki undan við að dæla vatni alla daga". Jú mikið rétt hjá stúlku. Talið barst að nokkuð alvarlegri hlutum og ég skellti fram þeirri spurningu hvað myndi eiginlega gerast fyrir borgina ef mikill jarðskjálfti bæri að þar sem borgin væri um 2 metra undir sjávarmáli, t.d. ef stíflur myndu bresta og annað? Þeir svöruðu að þá myndi borgin þurrkast út en litlar líkur væru á því að jarðskjálftar kæmu til á þessu svæði.
- ekki óraði okkur fyrir á þessum tíma að mánuði síðar myndi skæðasti fellibylurinn í sögu Bandaríkjanna leika borgina svona grátt.
2 ummæli:
alls staðar tekst fólki að auglýsa!
já, fun, I lost my mobile phone......seen it??
Þetta er tilviljun segi ég en sumir segja karma en allavega athyglisvert að ræða þetta og svo gerist þetta.
Skrifa ummæli