Ólukkan virðist elta mig upp þessa dagana. Ofan á margt annað slæmt sem hefur hent mig síðustu daga þá tókst mér að týna símanum mínum. Þið sem hafið þurft að ná í mig undanfarið þurfið að sýna þolinmæði - kemst í borgina í dag og mun þá festa kaup á nýjum síma.......ódýran sem skilar sínu, þarf ekkert GPRS eða hvað það kallast, myndavél, reminder...eða jú kannski það...og punktur. Líst vel á þennan hér til hliðar.
Nokia 2650
Einstaklega flott hönnun gerir þennan síma eftirtektarverðan. Þegar síminn hringir blikka ljós. Fagurhvítur.
Tilboðsverð: 12.900 kr. eða engin útborgun og
1.090 kr. í 12 mánuði
- ljósablikkið væri náttla alveg að gera sig!
6 ummæli:
Mér finnst þessi flottur!
Mér!
ég keypti sko miklu flottari
Myndir myndir myndir
Hvernig keyptiru??
já, þær fara alveg að koma - ég keypti 6101 nokia
kveðja Kristín María
Skrifa ummæli