...að þurfa alltaf að lýða ofbeldi á menningarnótt. Aumingjans fólkið. Ótrúlegt hvað undirheimar í þessu landi eru orðnir svæsnir. Skera undir hnéskeljar og stinga í hjartastað eru dæmi um ósómann. Annars langar mig að tileinka þessari færslu þremur aðilum....eða svona allt að því og fá fyrstu tvö sætin sérstakt hrós fyrir að meina vel.
Í fyrsta lagi henni Önnu Alberts sem er mjög framtakssöm ung stúlka og átti frumkvæði að því að stofna samtök í Reykjanesbæ sem eru samtök gegn ofbeldi og eru kölluð SGOR.
Í öðru lagi langar mig að hrósa Grindavíkurbúum fyrir ótrúlega samstöðu þegar einhverjir íbúana þufa á stuðningi að halda. Þegar styrktartónleikar eru haldnir fyrir aðila sem annað hvort þurfa að fara erlendis í líffæraskipti eða þegar að ófætt barn þarf að fara erlendis strax eftir fæðingu í hjartaaðgerð eru íbúar boðnir og búnir og setja ekki fyrir sig að greiða frjáls framlög í aðgangseyri allt að 60.000 krónur per mann.
Að lokum ætla ég að hrósa FH fyrir gott sumar og tilti í ágúst og um leið að óska JP FH-ingi með meiru til lykke með sitt lið.
1 ummæli:
Takk sæta :)
Skrifa ummæli