Gísla Martein sem bogarstjóra! Hvað finnst fólki um það? Persónulega leist mér vel á Þórólf, kallinn átti sínar dökku hliðar sem greinilega flestir í þessu þjóðfélagi sem ná að verða "opinberar" persónur eiga. Stefán Jón er ágætis karakter og hefði ég auðvitað miklu frekar viljað sjá hann sem borgarstjóra en Steinunni......sama hversu lengi hún hefur verið í borginni þá er það ekki BARA starfsaldur sem á að ráða því hvort að fólk komist í svona ábyrgðarstöður heldur getan og karakterinn til þess að ráða við starfið líka. Ef rétt reynist sem komið hefur fram í fréttum að ástæðan fyrir því að Steinunn hafi fengið stöðuna hafi verið hræðsla Framsóknar við að búa til "annan" leiðtoga í borginni fyrir Samfylkinguna þá ættu þessir listar í borginni að fara að starfa hver í sínu horni. R-listinn státar sig greinilega ekki af mikilli samstöðu og allir virðast vera í keppni við hvorn annan við að ota sínum tota. Það verður spennandi að sjá hvernig málin fara innan Sjálfstæðisflokksins: Gísli Marteinn og Vilhjálmur vilja báðir 1.sætið og Gísli virðist fullur sjálfstrausts og gerir sjálfsagt ráð fyrir því að RÚV áhorfendur sendi sér hvatningarbréf og heiti atkvæðum sínum. Vilhjálmur hefur þessa blessuðu REYNSLU og STARFSALDUR sem margir halda að sé ávísum á farsælan borgarstjóra. Steinunn talaði um það þegar hún var valin borgarstjóri að hún væri starfi sínu vaxin. Dæmi hver fyrir sig. Stefán Jón gengur líka með borgarstjórann í maganum að mati Steinunnar og klarlega er hún ekki að fara að gefa þumlung eftir. Það er því ljóst að allir telja sig geta orðið borgarstjóra enda kannski ekki miklar kröfur sbr hvernig síðasta ár hefur verið. En hvernig sem málum lyktar innan Sjálfstæðisflokksins þá eru tvær "vonarstjörnur" yet to come en það eru þau Hanna Birna sem klárlega hefur leiðtogahæfileika að mínu mati og Bolli nokkur Thoroddsen sem skv DV ætlar sér í 3ja sætið. Miðað við allt sem gengur á í borginni er komið efni í sápu sem hægt væri að nefna "Reykjavík city".
Ég get því ekki sagt annað en ég hlakki til að flytja í borgina aftur :)
- já það var gaman á föstudaginn!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli