Já maður, það styttist í að stúlka keyri með hnútinn í maganum, rifjandi upp leiðtogaráð, ráðherraráð og allt heila klabbið í kringum þetta blessaða Evrópusamband og hvers vegna í ósköpunum við erum ekki ennþá búin að ganga í þetta "súper" union. Tvær næturvaktir núna þar sem Kristín þarf að leggja sig alla fram við að nýta þær dauðu stundir sem koma á milli véla til þess að lesa. Mun eyða helginni hjá Eyrúnu og ætlum við að vera massa duglegar að sjúga í okkur fróðleik sem kann að nýtast á prófi. Annars er dinner reservation að verða klárt fyrir menningarnótt og jafnvel að Enrico´s verði lendingin.
Annars finnst mér fyndið að Herbie sjálfur sé að koma aftur á skjáinn og nú er þessi bjalla komin í bíó "Herbie full loaded" að mig minnir. Hver man annars eftir Herbie Mexico???
3 ummæli:
8-0...
átta núll!
við duttum þó ekki út úr bikarnum eins og þið í undanúrslitunum!!.......munum kannski einhvern tímann komast þangað!
KM
nei það er rétt hjá þér, þið duttuð út í 16 liða úrslitum!!!!
Meistarar, tvö ár í röð og þetta er rétt að byrja!
Skrifa ummæli