miðvikudagur, ágúst 24

Gleðilegt haust!


þar sem engin formleg dagsetning er á fysta haustdegi sem segir okkur hvenær sumri líkur og hvenær haust hefst hef ég ákveðið að gefa 24.ágúst nafnbótina "Fyrsti haustdagur". Vaknaði í frystiklefa heima í morgun þar sem ég svaf með opinn gluggann eins og alltaf. My god var kalt! Tók mig til á hlaupum - ekki vegna þess að ég var að verða of sein heldur til að deyja ekki úr kulda! - Kobbi hreyfði sig ekki og hélt ég á tíma að hann væri dauður þarna í búrinu.

Prófið gekk annars þokkalega og nú er bara að bíða eftir 1.september en þá hefst elskulegi skólinn - stúlka æltar þó að beila þann daginn þar sem hún er að fara í sjóstangveiði og bíður spennt að fá að upplifa herlegheitin. Pabbi gerði reyndar mjög lítið úr þessar eftirvæntingu þar sem ég sá sjálfa mig fyrir mér berjast við stöngina og draga af öllum lífs og sálarkröftum inn sjólax! Nei nei - segir þá ekki bara gamli að það muni maður koma til með að kasta út fyrir mig og svo er þetta bara DORG!! Oh well, gaman verður engu að síður að prufa og vona ég að minn sleppi við vændræðauppákomur í þeirri ferðinni.

Hlakka annars til að flytja í borgina sem mun gerast í næstu viku og má vel fara svo að smá endurkomu-hittingur verði í kotinu ;)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hlakka til að fá þig hingað:) !!

Erla Ósk sagði...

Gaman ad fylgjast med ther vinkona :) Ja, gledilegt haust. Her er reyndar enntha um 20 stiga hiti (og a ad hita um helgina) thannig ad eg kalla timann nuna her i Minneapolis bara gott islenskt sumar :)

kvedja fra Minneapolis,
Erla Osk

Kristín María Birgisdóttir sagði...

oh man! Hlakka til að koma til þín eyrún mín.......og líka þín Erla mín....þegar ég loks druslast til að hafa fjármagn og tíma til að skreppa til USA!....er að verða þunglynd vegna veðurs btw