Hef stundum verið að velta fyrir mér hvort ekki sé sniðugt að hefja framleiðslu á þessu gamla góða - sem féll svo vel í kramið. Það sem að Kristín væri til í að fá aftur er t.d.
- ísboltana, (ís sem maður borðaði upp úr bolta með krúttlegri skeið)
- Glætu ísinn (allir eiga að þekkja hann)
- Gamla breikísinn (þar sem hægt var föndra með spýturnar)
- Gosa (Svalardrykkur með gulum broskalli framaná)
- RC cola (fyrir Sibba)
- Íscola
- Póló gosið
- Gömlu týpuna af Prins pólu (í brúna álpappírnum með stjörnunum)
- HLH flokkurinn ætti að koma aftur saman (gætu verið með comeback á næstu þjóðhátíð :)
- ......man ekki meira í augnablikinu, aðrar hugmyndir vel þegnar...
9 ummæli:
Spur
Vá ýkta flashbackið sem ég fékk þegar þú komst með ísboltanna. Var búinn að steingleyma þessu. Þetta var mjög vinsælt þegar maður var aðeins minni en í dag. :)
Primo
hvað er spur?
Kristín, hefurðu ekki séð Sódóma Reykjavík? Fyrir utan fjarstýringuna þá snýst sú mynd um akkúrat um spur
SiggaD
jú! ég sá hana - en ég fatta samt ekki hvað þetta spur er! geturu ekki komið með svarið í staðinn fyrir einhverjar svona vísbendingar - thanx luv
Spur Cola.. hmm :)
Það var nú mynd af slíkri flösku inn í VKB tjaldi
....ég er sammála með prince pólóið - þetta í gömlu umbúðunum var einfaldlega betra....
Oh, takk takk fyrir að muna eftir Glætu. Uppáhalds ísinn minn í öllum heiminum sko og hingað til hefur enginn kannast við að muna eftir honum nema ég og litla systir !!!!
Vanillu Ís-hopp, most def...
Skrifa ummæli