Heyrði þetta skemmtilega lag áðan með Síðan skein sól síðan árið 1990 (um það leyti) og rosalega rifjaði þetta lag upp margar skemmtilegar minningar síðan í dentíð.
En svo er það blessaða menningarnóttin - ég veit að eftir nóttina í fyrra þá getur hún ekki farið upp á við, einfaldlega vegna þess að EGO voru í fyrra og gerðu allt vitlaust. Spurning hvort að menningarnefndin í ár verði sniðug eins og í fyrra og bóki aftur "comeback" bandið úr Eyjum og við fáum fyrir vikið að hlusta á Grafík spila - grenjum ekki rigninguna það kvöldið heldur syngjum fegin með og hver veit nema gamlir síðanskeinsól slagarar fái að fljóta með og við dönsum svo eggjandi.
....nú er bara að bíða og vona - en dagskráin mun víst birtast í Fréttablaðinu þann 18.ágúst.
4 ummæli:
Ég á einmitt öll þessi gömlu góðu með Síðan Skein Sól á vínyl...total trip down memory lane að hlusta á etta...
já klárlega verð ég að fara að kaupa mér plötuspilara - og ipod - og Tomma og Jenna
kem til þín við tækifæri þegar ég flyt aftur og fæ að hlusta hjá þér - svo gaman að hlusta á vínyl
Alveg sammála þér skvísa. Þetta er alvöru.........Grafík er málið í ár, ekki spurning. Mundi ekki gráta mikið, spurning um að krossleggja fingur og vona hið besta.
Bæ ðe væ, takk fyrir seinast;-)
já maður - takk sömó, skilst að það muni verða reunionhittingur fyrstu helgi í sept.....
og Boggi: ég VERÐ að fá tomma og jenna þættina hjá þér
Skrifa ummæli