
Jæja þá er hátíðin hafin og enn og aftur missir Kristín af henni. Þessi vaktavinna er náttla ekkert að gera sig á svona dögum. En samt ætlar mín að reyna að skella sér í borgina í kvöld þar sem að elskuleg vinkona mín og unnusti hennar, þau Kolla og Árni eru að slá til fagnaðar - drengur ku vera búinn að ná 30 árum og þess virði að fá til sín sómafólk. Jafnvel að farið verði í bæinn til að bera fallegar dragdrottningar augum og annað skemmtilegt fólk. Þið sem náið að fara í gönguna góðu - góða skemmtun og ég vona að veðrið haldist áfram dásamlegt. Geri ráð fyrir að Reykjavíkurbúar séu blessunarlega lausir við rokrassgatið sem æðir hér um flugvallarheiðina.
Friður út.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli