föstudagur, ágúst 19

RIGNING

já ógeðsveður úti......þar sem svipuð veðurspá er fyrir morgundaginn ætlar Kristín að sleppa því að fara í "mini"pilsið sem hún keypti á shopping-spree-inu með siggu og fara í gallabuxurnar góðu sem standa alltaf fyrir sínu. Annars var ég nálægt því að giska á rétta hljómsveit á mennó - Todmobile verður aðalnúmerið en minn tippaði á Grafík. Hefði frekar viljað fá þá hljómsveit en Todmobile er ágæt. Ferlega innihaldslaust lífið mitt þessar stundirnar og bloggið því eftir því - við stúlknahópurinn getum hins vegar ekki beðið eftir morgundeginum. Höfum ekki hist allar saman síðan í vor - en aldrei, að ég held - farið allar saman og gert eitthvað svona. Kristín verður auðvitað með myndavélina á lofti en lofar að setja ekki þær svæsnu inn. Eftir dinner á Enrico´s verður farið í kokteil einhvers staðar (ef lítið verður um augnakonfekt á þeim bænum) og svo eftir það á hafnarbakkann. Því næst verður haldið á Austurvöll og þaðan inn á óþekktan stað.
Annars báðu eigendur NASA mig um að setja þessa auglýsingu á bloggið mitt:

Laugardagurinn 20.ágúst Menninganrnótt
Sálin hans jóns míns
Danshópurinn STREET STYLE sýnir kl. 23.30
Húsið opnar kl.23
Miðaverð kr.1900
Forsala á föstudaginn 19. ágúst milli kl.13-17
Aldurstakmark 20 ára

Engin ummæli: