fimmtudagur, ágúst 18

Jeg elsker mit liv og hrísmjólk.

svo mörg voru þau orðin. Ekki nema 2 dagar í viðburðin og óhætt að fullyrða að hópurinn er orðin verulega spenntur fyrir menningarnótt. annars er stúlka að mygla við lesturinn og getur ekki beðið eftir því að vera búin á þriðjudaginn. Kosturinn við sumarprófin er sá að maður fær að upplifa próflokasæluna aftur!! hollustuvika er tekin við með útihlaupi og vatnsdrykkju en inn á milli er hrísmjólkin góða tekin upp og ummmmm hvað þetta er gott! Er fólk að átta sig á því hvað hrísmjólk er góð með karmellusósu? Prufið.

Fannst annars mjög fyndið að DV sagðist hafa átt Einkaviðtal við Cameron Diaz - heilar þrjár setningar voru inni í blaðinu eftir hana og allir sem voru í FLE þegar þær duttu út úr kellu hefðu getað státað sig af einkaviðtali. Merkilegt.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er alveg ferlegt að vera í sumarprófum! maður kemst einhvern veginn aldrei í lestrargírinn!

en alveg ótrúlegt með DV....við þurftum náttúrulega ekkert að lesa blaðið! enda fengum við þetta beint í æð;) en ekki orð um það meir

gangi þér vel í lestrinum!

Kristín María Birgisdóttir sagði...

hahaha - rétt er það. blessuð sumarprófin.....ef ég fer ekki að setja í fluggírinn þá sé ég ekki fram á útaðborðakvöld með stjórnmálafræðiskvísum - en gangi þér vel sömó og það styttist í próflokasæluna :D

Nafnlaus sagði...

Hrísmjólk með karamellu......þó ég sé mikill sælkeri þá er hrísmjólk með karamellu of sætt fyrirbæri fyrir mig !! Þótt ótrúlegt sé....núna er ég með æði fyrir ABT mjólk með ferskjum og svona urli á lokinu. Mjög gott og víst ágælega hollt líka ;)