laugardagur, janúar 29

Vökupartýið á Hressó var OF skemmtilegt og þakka þér, þú þarna trúbador. Aðeins of góður, náði stemmningunni fyrirhafnarlaust. Vökumerkt fólk fékk bjórinn nánast frítt, skíttnar 350 krónur. Nú styttist í kjördagana góðu og makmið stúlku er að raka inn ÖLLUM atkvæðum sér og sínum í hag :)

Annars er það nýjasta á mínum bæ að rigerðin er óðum að taka á sig skiladagsmynd, þungu áhyggjurnar af þessu verkefni hafa hvílt á mér sem mara og svei mér þá ef Kristín hefur ekki bara bognað við þær áhyggjur. Nei djók. Skólinn er skemmtilegur.

Skellti mér á Fjölskylduhátíð Vöku áðan og hjálpaði við að mála litlu krílin sem vildu annað hvort vera prinsessa með hvítt nef, Eyrún, Láki, Spiderman, voffi eða tígur :) Þau eru svoooooo mikið æði og ég gat ekki annað en hlegið að þeim þegar þau sátu með andlitsmálninguna í framan að reyna að syngja lög sem þau höfðu ekki ennþá náð tökum á. Börn eru yndisleg.

Engin ummæli: